Bókasafnið - 01.01.1974, Page 17
Öflun og miðlun upplýsmga
Um þessar mundir á sér stað víðtækt
starf að áætlanagerð, sem stefnir að því
m. a. að treysta samstarf um framkvæmd
Scandia-áætlunarinnar, — að koma upp
kerfi til samskráningar á erlendum tíma-
ritum í norrænum bókasöfnum — og glæða
samvinnu á sviði vélvæðingar og sjálfvirkni
í söfnum almennt.
Jafnframt er unnið að myndun samtaka
í nýju formi, er njóti opinbers tilstyrks og
hafi að markmiði að efla samvinnu milli
norrænna rannsóknarbókasafna og upplýs-
ingamiðstöðva. Fundurinn vill leggja ríka
áherslu á, að greitt sé, svo sem framast má
verða, fyrir þátttöku Islendinga í þessum
nýju samtökum.
# # #
Trúlega hafa fleiri en undirritaður þá
reynslu af þátttöku í fundum norrænna
starfsbræðra, að Islendingar eigi á þeim
vettvangi mikilli velvild og vináttu að
mæta. Hins vegar er því ekki að neita, að
ókunnugleiki á aðstæðum öllum hér á landi
hefur sett eðlilegu samstarfi nokkrar höml-
ur. Margir sjá ísland í einhvers konar róm-
antískum ljóma, sem líklega á a.n.l. rætur að
rekja til þess, sem fólk las í skólabókum sín-
um á unglingsárunum. Aðrir hafa þá tilfinn-
ingu, að sakir smæðar þjóðarinnar sé þess
vart að vænta, að hér séu skilyrði til menn-
ingarlífs í líkingu við það, sem gerist meðal
stærri þjóða. Og vitanlega skapar lega lands-
ins og smæð þjóðarinnar okkur nokkra sér-
stöðu. Hins vegar eigum við að mörgu leyti
við sambærilegan vanda að fást og starfs-
bræður nágrannaþjóðanna, og er mikil-
vægt, að menn fái metið rétt, hvaða viðfangs-
efni séu þannig vaxin, að þátttaka íslend-
inga sé raunhæf og hafi gildi, og þá bæði
fyrir íslendinga sjálfa og samstarfsþjóðirn-
ar. Með auknum samskiptum, þ. á m. ferð-
um norrænna bókavarða hingað til lands,
hlýtur skilningur á þessum þátturn að glæð-
ast. Mál þurfa að skipast svo, að virk þátt-
taka íslendinga þyki sjálfsögð og eðlileg,
þar sem hún á við. Eg er ekki í vafa um,
að sá fundur, sem hér hefur lítillega verið
sagt frá, sé spor í þá átt.
Við fundarslit sagði John Brandrud, for-
maður NVBF, m. a.: „Þetta er fyrsta ráð-
stehra sinnar tegundar, sem haldin er á ís-
landi, og er því merkur áfangi í samstarfi
norrænna bókavarða. Ráðstefnan hefur að
efni til verið þátttakendum mikils virði.
Með henni hefur stofnast til faglegra og per-
sónulegra tengsla milli bókavarða frá ís-
landi og öðrum Norðurlandaþjóðum, og
íslenskir starfsbræður hafa orðið virkari
þátttakendur í starfsemi sambandsins en
áður.“
17