Bókasafnið - 01.01.1974, Page 18
ÞÓRDÍS Þ O RVALDSD ÓTT I R
Málverkamiðlun í nokkrum íslenskum
bókasöfnum
Tilefni þessa greinarkorns er sú miðlun á
málverkum, sem fram fór á bókasafni Nor-
ræna hússins um þriggja mánaða skeið vet-
urinn 1973—74. Verður nokkrum orðum
vikið að tildrögum þessarar þjónustu.
Málverkin, sem um ræðir, eru hluti nor-
rænnar farandsýningar, „biblioteksut-
stállning", sem nú er í umferð á Norður-
löndum. í allri sýningunni eru 50 málverk
eftir jafnmarga málara, valin af Norræna
listbandalaginu, 10 verk frá hverju Norður-
landanna. Þetta er tilraun, gerð til að kanna
áhuga bókasafna og bókasafnsgesta á mál-
verkalánum. Sýningin stendur samtímis á
Norðurlöndunum, og listbandalagið ákveð-
ur, hver málverk fara til hvaða lands. Verk-
unum er skipt þannig, að verk tveggja lista-
manna frá hverju landanna er í hverjum
sýningarhluta, og verða verkin þannig 10 í
hverju landi. Bókasöfnum er gefinn kostur
á að hafa málverkin til sýnis og listamenn
leyfa útlán eða öllu heldur leigu á verkun-
um, og einnig má selja þau. Þar með geta
bókasafnsgestír fengið heim með sér mál-
verk á svipaðán hátt og bækur, hljómplötur
eða annað bókasafnsefni.
Á íslandi var það Félag íslenskra mynd-
listarmanna, sem kannaði áhuga bókasalna
á þessari þjónustu. Fimm almenningsbóka-
söfn vildu frá upphafi taka þátt í tilraun-
inni: í Reykjavík Borgarbókasafn og Bóka-
safn Norræna hússins, Amtbókasafnið á
Akureyri, Bæjarbókasafnið á ísafirði og
Bæjarbókasafnið á Akranesi. Síðar bætt-
ist Bókasafn Seltjarnarness við. Málverkin
á að sýna í 2—3 mánuði á hverjum stað, og
þessari farandsýningu skal vera lokið um
áramótin 1974—75. Mun henni ljúka í
Reykjavík, þar sem hún hófst. I Reykjavík
var málverkunum skipt milli bókasafns
Norræna hússins og Borgarbókasafns. Voru
3 málverk í Borgarbókasafni, Bústaðaúti-
búi, en 7 í Norræna húsinu.
Um útlán var farið eftir reglum, settum
af Norræna listbandalaginu. Var útlánstími
ákveðinn frá einni viku til eins mánaðar og
var leigugjald ákveðið kr. 250 fyrir h'verja
viku. Við sölu kom ákveðinn hluti leigu-
greiðslu, ef kaupandinn hafði áður fengið
verkið leigt, til frádráttar kaupverði. Kaup-
18