Bókasafnið - 01.01.1974, Page 28
Aðalfundur Bókavarðafélagsins
Aðalfundur Bókavarðafélags íslands var
haldinn í Norræna húsinu í Rvík fimmtu-
daginn 6. júní 1974. Formaður, Ólafur
Pálmason, flutti skýrslu stjórnar og rakti
ýtarlega þau mál, sem stjórnin fjallaði um
á síðasta kjörtímabili. Hann gat m. a. um
ný félagslög, sem afgreidd voru á framhalds-
aðalfundi 21. okt. 1973, rakti aðdragandann
að útgáfu Bókasafnsins og undirbúning
undir landsfund bókavarða. Þá gerði for-
maður grein fyrir afskiptum stjórnar af
hinu nýja frumvarpi til laga um almenn-
ingsbókasöfn og frumvarpi til laga um
námsgagnastofnun ríkisins, en þessi frum-
vörp bafa bæði verið lögð fram á alþingi.
Landsbókavörður, Finnbogi Guðmunds-
son, sagði frá starfsemi Deildar rannsókhar-
bókavarða. Minntist hann m. a. á hring-
borðsfund norrænna rannsóknarbókavarða,
sem haldinn var á vegum deildarinnar s.l.
haust. Enn fremur gerði hann grein fyrir
nýju frumvarpi að lögum um afhendingu
prentskilaeintaka, sem lagt hefur verið fyrir
alþingi. Páll Skúlason gerði fundarmönn-
um grein fyrir útgáfu Bókasafnsins og Ein-
ar Sigurðsson sagði frá undirbúningi undir
landsfund bókavarða í september.
Kosin var stjórn félagsins, en hana skipa
eftirtaldir félagar: Þórdís Þorvaldsdóttir
formaður, Eiríkur Hreinn Finnbogason
varaformaður, Nanna Bjarnadóttir gjald-
keri, Þórir Ragnarsson ritari og Hrafn A.
Harðarson meðstjórnandi. Varamenn voru
kosnir Stefanía Eiríksdóttir og Einar Sig-
urðsson. Björn Sigfússon og Grímur M.
Helgason voru kjörnir endurskoðendur og
Páll Jónsson til vara.
A fundinum kom fram tillaga frá fráfar-
andi stjóm Jæss efnis, að aðalfundur fé-
lagsins skyldi haldinn í sept. ár hvert, en
ekki í júní, svo sem félagslög mæla fyrir um.
Akveðið var að vísa þessari tillögu til fram-
lialdsaðalfundar, sem haldinn yrði í tengsl-
um við landsfund bókavarða. Þ. R.
MÁL O G MENNING — HEIMSKRINGLA
NÝJAR BÆKUR 1973 — 1 974
Björn Th. Bjömsson:
Aldateikn
Brynjólfur Bjarnason:
Með storminn í fangið I—II
Jóhannes úr Kötlum:
Ljóðasafn III
Jóhannes úr Kötlum:
Ljóðasafn IV
Helgi Hálfdanarson:
Kínversk ljóð frá liðnum öldum
Hjörleifur Guttormsson:
Vistkreppa eða náttúruvernd
Þórbergur Þórðarson:
Ofvitinn
Þórbergur Þórðarson:
Jóhannes úr Kötlum:
Ljóðasafn V
Jóhannes úr Kötlum:
Ljóðasafn VI
Þorleifur Einarsson:
Gosið á Heimaey
Bréf til Láru
(íslenzk, ensk, norsk og þýzk útgáfa)
Bókaskrá Máls og menningar — Heimskringlu kemur út í byrjun hvers árs