Alþýðublaðið - 14.01.1967, Side 3
tórbruni í
lew York
NEW YORK, 13. jan. (NTB.Reut.)
Um eitt búsund slökkviliðsmenn
reyndu í allan dag að ráða niður-
lögum eldhafs í einni útborg New
York. Þetta er mesti eldsvoði,
sem orðið hefur í New York á
síðari tímum.
Eldurinn kom upp í útborginni
Quenns snemma í morgun og
hafði enn ekki verið slökktur í
Sjálfvirk símstöð
á Ólafsfirði
í gær um klukkan 17 var opnuð
sjálfvirk símstöð á Ólafsfirði. Er
slöðin gerð fyrir 300 númer en
fjöldi símnotenda er í dag 175 og
eru þar með taldir 38 nýir sím-
notendur.
Símanúmer þessara notenda eru
frá 62100 til 62399 en svæðisnúm-
erið er 96, eða hið sama og fyrir
Akureyri.
kvöld. Enn liafa ekki borizt frétt
ir um, að nokkur hafi farizt í
eldsvoðanum, og segir lögreglan
að það gangi kraftaverki næst.
Hundruð manna urðu að yfir
gefa heimili sín í miklum flýti í
morgun, margir í náttfötum. Um
tíu búðarhús höfðu orðið eldinum
að bráð í kvöld og meiri eða
minni skemmdir urðu á 20 öðr
um.
Gífurlegar sprengingar urðu þeg
ar eldurinn læsti sig í gasleiðslur
í hverfinu. Lögreglumenn voru
sendir til hverfa, sem voru í
hættu, til að fá fólk til að yfir-
gefa heimili sín.
Hitinn var svo rnikill, að marg
ir slökkviliðsmenn urðu að leggja
frá sér brunaslöngurnar, koma
þeim fyrir á grindum og liörfa í
hæfilega fjarlægð. Tugir bifreiða
eyðilögðust og hlutir úr málmi
bráðnuðu.
Sumum tókst að klæða sig í
Framhald á 15. síðu.
,90 föndurverkefni'
Nýlega er komin út bókin „90
föndurverkefni“ eftir Þóri Sigurðs
son kennara. Útgefandi er Skóla-
vörubúðin.
Bókin fjallar aðallega um verk-
efni, sem heppileg igeta verið í
tómstundavinnu barna og ung-
linga, bæði á heimilum og í skóla.
í henni eru um 400 teikningar eft-
ir höfundinn til skýringar efninu.
licynt hefur verið að velja verk-
efnin svo, að sem flestir hafi gam-
an af að spreyta sig á þoim og að
hafa orðaskýringar þannig, að þær<
verði auðskildar hverju barni.
Einnig hefur verið hyllzt til að
velja verkefni, sem auðleyst eru
með ódýrum tækjum og auð-
fengnu efni.
í bókinni er fjallað um allmörg
verkefni, til að mynda leirmótun,
ýmiss konar pappírsföndur, gerð
muna úr eldspýtnastokkum, kork-
töppum, tvinnakeflum, pípuhreins
urum, leir og. basti.
Prentun £\nnaðist offsetprenlt-
smiðjan Litbrá hf.
i Hin nýju glæsilegu húsakynni, Ingólfskaffi.
j Bridgespilarar
f Spilum bridge í dag, (laugardag), í hinum nýju
1/úsakynnum Ingólfskaffi. Hefst kl 2 e. li. stundvíslega.
f Stjórnandi Guðmundur Kr. Sigurðsson. Öllu bridgeáhugafólki
á lieimil þátttaka.
j AlþyðuflokksfélagReykjavíkur.
Atriði úr Henrik IV,
Fleiri en styttri
sjónvarpskvöld
Shakespeare og Danger Man koma
á mánudagskvöldum í febrúar
Ríkisútvarpið hefur í hyggju
að auka sjónvai*psdagskrána
upp í sex daga á þessu ári.
Munu hefjast útsendingar 4
daga vikunnar þegar í febrúar
fimmta deginum verður vænt
anlega bætt við í maí og hinum
sjötta 1. september. Dagskrárn
ar verða að ijafnaði styttri hvern
dag, sjaldan yfir 2 Ké tíma, en
liafa undanfarið komizt allt
upp í 4Vi> tíma eins og síðastlið
inn miðvikudag, er kvikmyndin
Canaris var sýnd og stóð langt
fram yfir miðnætti. Sennilega
bætast mánudagskvöld við út-
sendingar í næsta mánuði.
Það hefur alla tíð verið á-
form Ríkisútvarpsins, að sjón
varpið færi eins fljótt og unnt
er upp í sex daga útsendingu.
.40 vísu hefur það verið almenn
skoðun, síðan útsendingar hóf-
ust, að tveir eða þrír dagar
væru nóg. Reynslan sýnir þó
ótvírætt, að fólk hættir fljót
lega að sitja við sjónvarpstæki
sín og horfa á allt, en tekur
að velja úr efni. Þegar svo er
komið, mun reynast hentugra
að hafa meira efni úr að velja
dreiftyfir fleiri daga. Þá er rétt
að geta þess, að með styttri
og dreil'ðari dagskrá hefur sjón
varpið miklu minni áhrif á fé
lagslíf og aðra menningarstarf-
semi en nú.
Þrátt fyrir lengingu dagskrár
innar mun íslenzkt efni, sem
starfslið sjónvarpsins framleið
ir, ekki aukast. Það hefur frá
upphafi verið eins mikið og
starfsmannafjöldi, tæki og húsa
kostur leyfir — og raunar
meira, því eftirvinna hefur ver
ið mjög mikil. Verður þetta
nú að komast í eðlilegt horf
eins og aðstæður leyfa.
Hins vegar mun úrval af er
lendu efni aukast. í febrúar er
til dæmis áformað að hefja út
Framhald á 14. síðu.
14. janúar 1967 - ALÞYÐUBLAÐI0 3