Alþýðublaðið - 28.01.1967, Síða 1
Laugardagur 28. janúar 1967 48. árg. 22. tbl. - VERÐ 7 KR.
Samningur um
frið í geimnum
MOSKVU, 27. jan. (NTB-Reuter)
— Samningnrinn um friðsamlega
liagnýtingu himingeimsins var
undirritaðui- í Moskvu í dag að
viðstöddum Kosygin forsætisráff-
herra, sem lék á als oddi og veif-
affi kampavínsglasi. Kosygin fór
lniklum viffurkenningarorffum um
samninginn og kvaff hann fyrsta
Skrefiff í áttina aff lausn stærri
vandamála heimsins.
Athöfnin fór fram í villu utan-
ríkisráðuneytisins, Spiridonovka.
Synir Brandts
vekja hneyksli
BONN, 27. janúar (NTB-Reuter)
i— Talsmaður vestur-þýzka innan-
ríkisráðuneytisins sagði í dag, að
umdeild atriði yrðu klippt úr kvik
myndinni ,,Köttur og mús“, sem
m.a. hefur leltt til harðra árása
á Willy Brandt utanríkisráðherra.
Tveir ungir synir Brandts, Lars
og Peter, leika í myndinni, sem
Framhald á 13. síðu.
Samningurinn var undirritaður af
Andrei Gromyko, utanríkisráð-
herra Rússa, Llewellyn Thompson,
hinum nýja sendiherra Bandaríkj-
anna í Moskvu, og Geoffrey Har-
rison, sendiiverra Breta.
Tveimur tímum eftir að „iiinir
þrír stóru“ höfðu undirritað samn
inginn kom röðin að fulltrúum
annarra ríkja. Hinir fyrstu sem
rituðu nöfn sín undir samninginn
voru fulltrúar hinna sjö kommún-
istalanda í Austur-Evrópu. Á
fyrstu tveimur klukkutímunum
var samningurinn einnig undirrit-
aður af fulltrúum Svíþjóðar, Dan-
merkur, Finnlands, íslands og V-
Þýzkalands.
Samningurinn kveður á um
hvernig haga skuli könn.un og hag
nýtingu geimsins, bannar beitingu
kjarnox-kuvopna og annarra fjölda
eyðingaa-vopna í himingeimnum
og ábyrgist að tunglið verði ekki
notað í hernaðarlegum tilgangi.
Búizt er við að yfir 100 lönd
gerist aðilar að þessum samningi
eins og tilraunabannssamningnum
frá 1963. Lönd utan Sf> geta und-
irritað samninginn.
Líkan af nýju tollstöðinni og næsta nágrenni hennar.
Bygging nýrrar toll-
stöðvar hafin í Rvík
Bygging tollstöðvai-húss í Rvík
hófst í gær og tók Magnús Jóns-
son fjármálaráðherra fyrstu skóflu
stunguna og Torfi Hjartarson
'flutti stutt ávarp. Húsið verður
byggt á lóð sem tollstjóraembætt-
ið hefur tekið á leigu hjá Reykja-
víkurhöfn á bakkanum norðan
Þrír geimfarar farast
CAPE KENNEDY, 28. jan. (NTB-
Keuter) —
ÞRÍR AMERÍSKIR geim-
farar, er átti að senda með
geimfarinu Apollo 21. fe-
brúar næstkomandi, fór-
ust í eldsvoða á skotpalli
á Kennedyhöfða seint í
gærkveldi. Geimfararnir
hétu: Virgil Grisson, Ed-
vvard White og Roger
Schaffee. Óhappið átti sér
stað á æfingu, sem var lið-
ur í undirbúningi undir
geimferðina 21. febrúar.
Schaffee, sem var 31 árs gamall,
hafði ekki farið neina geimferð,
en Grissom, sem var 39 ára, var
fyrsti Bandaríkjamaðurinn sem
fór tvær geimferðir. Edward
White, sem er 35 ára, var fyrsti
Bandaríkjamaðurinn, sem dvald-
ist utan geimfars.
Talið er líklegt að um spreng-
ingu hafi verið að ræða, en or-
sakir eldsvoðans voru að öðru
leyti ókunnar í gærkveldi. Mörg
hundruð manns voru í námunda
við skotpallinn, er slysið verð, en
þá mun ekki hafa sakað.
11
FUNDUR í ALÞÝÐUFLOKKS-
FÉLAGINU Á MÁNUDAG
ALÞÝÐUFLOKKSFÉLAG REYKJAVÍKUR heldur félagsfund
næstkomandí mánudagskvöld kl. 8.30 í Iðnó. Umræðuefni: 1)
Stöðvunarstefnan. Frummælandi Gylfi Þ. Gíslason, viðskipta-
málaráðherra. 2) Sjávarútvegsmál. Frummælandi Eggert G.
Þorsteinsson, sjávarútvegsmálaráðherra. — Auk þess verffur
kosin uppstillingarnefnd vegna væntanlegs stjórnarkjörs.
Tryggvagötu milli Pósthússtrætis
og Nausta, en þar var áður vöm-
geymsla Eimskipafélagsins og
Sameinaða. Þarna verður aðalað-
setur tollstarfseminnar í Reykja-
vík.
Stærð lóðarinnar sem tollstjóra-
embættið tók á leigu er 4846 fer-
metrar og verður nyrzti hluti
hennar undir umferðarbrú þeirri
sem liggja á yfir hafnarsvæðiff
samkvæmt skipulagi. Byggingin
verður þrjár hæðir. Á fyrstu hæð
Framhald á 15. síðu.
Shinwell
gerir
uppreisn
LONDON, 27. jamíar (NTB-Reut
er ) — Nokkuð uppnám hefur orð-
ið í Vcrkamannaflokknum vegna
uppreisnar, sem hinn skapmikli
formaður þingflokksins. Emanuel
Shinwell, sem er 82 ára gamall,
hefur 'gert gegn tilraunum stjórn-
arinnar til að fá aðilá að Efna-
hagsbandalaginu.
Shinwell missti algerlega stjórn
á sér á flokksfundi, þar sem
Brown utanríkisráðherra skýrði
frá því að hann rnundi halda ræðu
til stuðnings brezkri aðild að EBE
á almennum fundi. Shinwell mót-
mælti þessu harðlega. og krafð-
Framhald á bls 14.