Alþýðublaðið - 28.01.1967, Qupperneq 6
,\V\V >s
* :
tlptp
sN s'í >rt ''v'
IP
> '■ '■•
> (
\ s4-' V 'ít»'v'
m a ' v;
®S@fetet
:s*
.... •*.
• w •->. '
. • • .
Á mánudaginn hófust fyrstu
sýnirugar á vor- og sumartízkunni
ihj á tízkuhúsum Parísar. Meðal
þeirra, sem sýndu á mánudag voru
Jacques Esterel og Louis Féraud
500—600 sýningarstúlkur frá mörg
um löndum iheims hafa undan
fárinn mánuð þyrpzt til Parísar.
Og nú um síðustu helgi komu þang
að blaðamenn og Ijósmyndarar til
að fylgjast með því sem gerist.
Eftir fyrstu sýningum hjá Fer
aud, Esterel, Emanuelle Khan og
fleirum kom í ljós, að pilsin stytt
ust enn, og er nú um 20—25cm.
ofan við hné. Hjá Louls Ferud
komu fram sérkennilegir frakkar
með einskonar tjaldsniði (sjá teikn
aða mynd). Frakkarnir eru mjög
stuttir og við þ'á eru notuð há
stígvél.
Það vakti athygli, að margar af
isýninganstúlkunum .hjá Feraudf
Laroche og Heim voru dökkar á
hörund og hár og sagt er, að ljós
ihærðu norrænu stúlkurnar séu
ekki lengur vinsælustu sýningar
stúLkurnar.
Hjá Esterel var sýndur brúðar
kjóllinn_ ,sem sést hér á einni
myndinni. Eins og sjá má er hann
all óvenjulegur og það sérstak
lega, að stúlkan er í þröngum, síð
um hlúndubuxum. Brúðarkórónan
er úr hvítu silki og minnir á trjá
spæni.
Esterel segir að fastir viðskipta
vinir sínir séu um 500, það er
að segja þær konur, sem hafa ráð
á að ganga í fötum frá hans tízku
húsi og þær, sem hætta á það.
Nokkrum milijónum viðskiptavina
selur hann svo fjöldaframleiðslu
föt.
Það vakti furðu á sýningu Fer
auds að sýningarstúlkumar höfðu
nú látið Iokka hár sitt og minnti
það helzt á, að hárið væri ógreitt
og rúllurnar hefðu verið nýteknar
úr hárinu.
Einkennandi hjá Feraud voru
föt með röndum, bæði kjólar, og
sokkar. i,
Hjá Molyneux sj'áum við allt
annað. Þar er meira fyrir kon
urnar, ekki fyrir þær yngstu. Kjól
arnir eru stuttir, en ekki um of,
og eru mjög klæðilegir. Þarna eru
sígildar dragtir í bláum og hvítum
litum. Einnig léttar sumardragtip
úr lérefti, mynstraðir silkikjólar
með einlitum frökkum. Þar eru
líka kjólar með abstrakt mynstr
um í bláum og gulum litum.
Hjá Arlett ReaL eru fötin næst-
um eins og barnaföt. Stutt pils me®
leggingum sýnast hlægileg á sýn
ingarstúlkum, sem eru orðnar 17
ára.
Framhald á 10. síðu.
KONAN OG HBMÍlÍ"
0 28. janúar 1967 -
ALÞYÐUBLAÐIÐ