Dagur - 17.10.1997, Page 12
Föstudagur 17. október 1997
Það heitasta
í krakkatískunm
Stelpur og strákar smitast
af tískunni þó að ung séu
og láta sér ekki standa á
sama um hverju þau klæð-
ast hvað svo sem pen-
ingapyngjúnni líður. Það
er kannski eins gott til
lengri tíma litið, þau venj-
ast því þá að vera hrein og
snyrtileg og vel til fara. I
skólanum er náttúrulega
gott að vera í góðum bux-
um og þykkri peysu og svo
er nauðsynlegt að yfir-
höfnin sé þykk og skjólgóð
og falleg um leið. Krakkat-
íska haustsins var sýnd á
tískusýningu krakka í
Grafarvoginum nýlega og
þar eru það fallegar
mynstraðar peysur í bland
við Spice Girls boli sem
blíva.
Stelpur hafa alltaf gaman af því að vera
í fallegum kjólum og þessir virðast sætir
og heppilegir i skólann. Strákurinn sýnir
réttu skólaúlpuna. myndir: hilmar þór
Áhorfendur máttu til með að fylgj-
ast með þessum duglegu krökkum
sem voru ófeimnir við að ganga
fram og aftur um gólfið og sýna
fatnaðinn.
rgóð tilþnf ^ fíHfSspeSeW
"PJöuiéttgs^^
Þetta er strákatískan i dag. Með húfu
ofan í augum, buxum og peysu. Húfan
skiptir öllu máli. Það er enginn strákur
með strákum nema hann eigi réttu húf-
una og það hefur verið svo lengi.
Það heitasta hjá sjö ára stelpum og upp úr í dag eru óneitaniega
Spice Girts-botir. Strákarnir þola nefnilega ekki Spice Girls og þá er
hægt að stríða þeim svolítið... Fallegir Moon Boots-skór eru líka inni,
sér í lagi efþeir eru svolítið skrautlegir.