Dagur - 24.10.1997, Qupperneq 4
4-FÖSTUDAGUR 24.0KTÓBER 1997
FRÉTTIR
Sex milljóna króna kiarasamningar
Kostnaður Verkamannasambands íslands við gerð síðustu kjara-
samninga nam ríflega sex milljónum króna í útlögðum peningum.
Þessi kostnaður er skýrður með Iöngu samningaferli og breyttu um-
hverfi vegna nýrrar vinnulöggjafar. Þótt þetta hafi valdið tímabundn-
um erfiðleikum í rekstri sambandsins er þetta ekki talið vera neitt
fjárhagsvandamál. Skatttekjur sambandsins á sl. ári námu tæpum 23
milljónum króna. Tekjur umfram gjöld voru hinsvegar 944.066 krón-
ur í fyrra á móti 1.875.799 krónum árið 1995.
Fólki fækkar í VMSÍ
I ársbyrjun voru félagsmenn aðildarfélaga VlMSI alls 27.791. Það er
l. 274 færri en í fyrra. Þar af hafði körlum fækkað um 923 og kon-
um um 351. Konur eru nokkuð fleiri en karlar í VMSI, eða 14.637
en karlar 13.154. Engin breyting varð hinsvegar á fjölda aðildarfé-
laga innan sambandsins á sl. ári og eru þau samtals 52.
Styttri viimutími
1 lögum Verkamannasambandsins kemur fram að markmið þess sé
m. a. að vinna að styttingu vinnutímans, rdnna að afnámi allrar yfir-
vinnu, helgidagavinnu og næturvinnu sem ekki ber ítrasta nauðsyn
til að unnin sé. Auk þess er kveðið á um það að sambandið beiti sér
fyrir vinnuvernd bama og unglinga.
Skipt á framsóknarmönuuui í kjör-
nefnd
I kjömefnd VMSI hefur sú breyting verið
gerð að Þórði Olafssyni, formanni Boðans í
Hveragerði og stjórnarformanni Atvinnuleys-
istryggingasjóðs, hefur verið skipt út í staðinn
fyrir Björn Snæbjörnsson, formann Einingar
á Akureyri. Báðir eru þeir Þórður og Bjöm
framsóknarmenn. Þórður hefur verið nær
fastamaður í kjörnefnd fram til þessa. Astæð-
an fyrir því að hann er ekki lengur í kjör-
nefndinni er sögð vera vegna starfa hans í At-
vinnuleysistryggingasjóðnum og fækkun út-
hlutunarnefnda atvinnuleysisbóta.
Aðrir í kjörnefnd eru þeir Hervar Gunnars-
son, formaður Verkalýðsfélags Akraness,
Kristján Gunnarsson, formaður Verkalýðs- og
Sjómannafélags Keflavíkur og nágrennis,
Halldór Björnsson, formaður Dagsbrúnar og Þuríður Valtýsdóttir frá
Verkakvennafélaginu Framsókn. Ef að líkum lætur kann það að verða
siðferðilega erfitt lyrir nefndarmenn að stilla sjálfum sér upp til emb-
ætta í stjórn VMSI. -GRH
Þórður Ólafsson.
Veltan 2 milljarðar
Gögn um fjármál þjóðkirkjunnar sýna að heildarvelta helstu stofnana
hennar var 1,6 milljarður króna á síðasta ári. Þar af kom 525,7 millj-
óna króna framlag beint úr ríkissjóði, tekjur Kirkjumálasjóðs voru 93
milljónir, tekjur Jöfnunarsjóðs sókna 152 milljónir og hlutur þjóð-
kirkjunnar í sóknargjöldum var upp á 820 milljónir. Ofan á 1,6 millj-
arð má síðan bæta við tekjum ýmissa hliðarstofnana eða -sjóða, upp
á rúmlega 400 milljónir króna. Þar er t.d. átt við Hjálparstofnun
kirkjunnar, Kirkjugarðasjóð o.fl. Arsvelta kirkjunnar var því upp á tvo
milljarða króna á síðasta ári.
Vaxandi ásókn í fjölskylduráðgjöf
A síðasta ári leituðu 328 fjölskyldur til Fjölskylduþjónustu kirkjunn-
ar (FÞK) um aðstoð í hverskyns vanda. 19. september sl. höfðu 225
fjölskyldur leitað aðstoðar og hefur þeim fjölgað mikið á undanförn-
um vikum, samkvæmt því sem fram kemur í skýrslu Þorvalds Karls
Helgasonar, forstöðumanns FÞK. Bein viðtöl voru 768 á síðasta ári,
en voru það sem af er ársins komin upp í 600 og eru nú að meðaltali
80 til 90 á mánuði. Athyglisvert er að af þeim 328 fjölskyldum sem
Ieituðu aðstoðar f fyrra voru 114 í „Reykjavíkurprófastsdæmi eystra“,
væntanlega Breiðholti, Arbæ og Grafarvogi.
Ráðgjafamefnd um kynferðisbrot
Starfshópur þjóðkirkjunnar um málsmeðferð á kynferðislegum brot-
um innan kirkjunnar leggur til að kirkjumálaráðherra skipi þriggja
manna ráðgjafarnefnd til að taka á málum er varða kynferðislega
áreitni og ofbeldi. Fagt er til að starfið mótist af fyrirmynd frá Nor-
egi. Ráðgjafarnefndina skipi einn Iögfræðingur, einn sálfræðingur
eða geðlæknir og einn guðfræðingur.
s****80*1.
StmwV0*31
(00 Akurn0
jskkAoWUK**1
Svona lltur boðsbréfið út en það hefur valdið talsverðd m vandræðagangi þvi viðtakendur hafa ekki verið alveg vissir hvort þetta væri bara grin, eða
grínagtug alvara.
Sendiráð Akureyrar
opnað í Reykjavík
Ferðamálamiðstöð
Eyjafjarðar stendur
fyrir formlegri opnun
sendiráðs „Sambands-
lýðveldisins Akur-
eyrar“ í Hafnarhúsinu
við Tryggvagötn í dag.
Til hátíðarinnar er boðið klukkan
17.00 og er þangað boðið ráð-
herrum, alþingismönnum, for-
svarsmönnum fyrirtækja, ferða-
þjónustuaðila o.fl.
Meðal dagskráratriða er ávarp
menningarfulltrúa sendiráðsins,
söngdagskrá frá Þjóðleikhúsi
Sambandslýðveldisins, ávarp
Jakobs Björnssonar, aðalflokks-
ritara Sambandslýðveldisins og
frú Ingibjörg Sólrún Gísladóttir,
ríkisstjóri Reykjavíkur, tekur við
trúnaðarbréfi hr. Sigmundar
Ernis Rúnarssonar, sendiherra
Sambandslýðveldisins.
Að loknum söng ríkislista-
manns Sambandslýðveldisins,
Michael Jóns Clark, verður
tískusýning Sunneva Design,
sem opinberar fágað hugvit og
hönnun þegna Sambandslýð-
veldisins sem á sér engin tak-
mörk að mati Guðmundar Birgis
Heiðarssonar, ferðamála- og ut-
anríkisráðherra Sambandslýð-
veldisins Akureyri.
„Einstaka menn hafa skiiið
þetta sem grín, en okkur er
fúlasta alvara þó framsetningin
sé í léttum dúr. Sú hugmynd að
opna sendiráð kaupstaðar í höf-
uðborginni þarf að markaðssetja
með ákveðnum léttleika en þetta
er ekki bara hugsað sem regnhlíf
yfir ferðaþjónustuna heldur
einnig matvælaframleiðendur
sem margir hverjir munu kynna
framleiðslu sína þarna. Hags-
munir ferðaþjónustu og mat-
vælaframleiðslu fara oft saman,
m.a. ímynd hreinleika og gæða.
Hér er ekki verið að opna skrif-
stofu, enda verða Hafnarbúðir
ERRO-safn í framtíðinni,“ sagði
Guðmundur Birgir Heiðarsson,
forstöðumaður Ferðamálamið-
stöðvar Eyjafjarðar.
Pétur Rafnsson, forstöðumað-
ur Ferðamálasamtaka höfuð-
borgarsvæðisins, segir að verið sé
að markaðssetja vörur og þjón-
ustu á Eyjafjarðarsvæðinu og
umbúðirnar séu bæði húmorísk-
ar og skemmtilegar.
„Þessi framsetning og umgjörð
vekur miklu meira umtal en
formleg framsetning og nær til-
gangi sínum. Þarna verður mun
fleira fólk en ella mundi hafa
orðið. Þeir sem taka þessu sem
gríni og telja að gengið sé of
langt eru húmorslausir. Það felst
heldur ekki vottur af minnimátt-
arkennd í þessu boði, sem betur
fer, og eins gott að fleiri hugsð-
uðu á svipuðum nótum í þessu
landi. Þetta mun örugglega hafa
töluverð áhrif á aukna sókn á
„Gjugg í bæ“, þ.e. helgarferðir út
á Iandsbyggðina, og ýtir undir
notkun á íslenskum framleiðslu-
vörum,“ sagði Pétur Rafnsson.
— GG
Skelfiskviimsla að
hefjast á Hofsósi
Rækjimes hf. í Stykk-
ishólmi er að hefja
vinnslu á skelfiski í
húsnæði því á Hofsósi
sem Skagaskel hafði
sína framleiðslu í
áður.
Skelfiskveiðar hafa verið stund-
aðar á Skagafirði frá því um mitt
sumar en aflinn hefur verið
fluttur að Hauganesi í Eyjafirði
eða vestur í Stykkishólm til
vinnslu. Eftir að frágangur húss-
ins verður tilbúinn verður aflinn
unnin á Hofsósi. Þegar vinnslan
verður komin á fullt skrið munu
um 15 manns starfa þar, og mun
atvinnuleysi við það nánast til-
heyra fortíðinni á Hofsósi. At-
vinnuástand hefur verið mjög
ótryggt þar undanfarin misseri
eftir að Fiskiðjan-Skagfirðingur
á Sauðárkróki lagði þar niður
bolfiskfrystingu.
Hjá salfiskverkunarfyrirtæk-
inu Höfða á Hofsósi hafa starfað
um 25 manns en vegna tölu-
verðs háefnisskorts í september
og október hefur stór hluti þess
fólks aðeins unnið hálfan dag-
inn. Starfsmenn voru ráðnir í
hálft starf og vinna allan daginn
því hrein viðbót hjá fólkinu.
Sæmilega hefur fiskast þegar
sótt hefur verið, en sjósókn hef-
ur verið minni en gert var ráð
fyrir. Allur bolfiskur til saltfisk-
verkunarinnar hefur verið keypt-
ur af fiskmörkuðum, aðallega frá
Vestmannaeyjum. - GG