Dagur - 31.10.1997, Síða 1
Fj ölhæf kona vill
lifa af listmni
Vitavörður, hafnar-
vörður, leirkerasmiður,
trillusjómaður, lyfsali
og einstæð móðirmeð
tvö ung böm. Hvað
eiga þessi stöifsameig-
inlegt? Kannski ekkert
annað en að hún Lóa
Odds á Suðureyri
hefurgegnt
þeim öllum.
Ólöf Oddsdóttir er fædd á ísa-
firði og valdi sér snemma óvenju-
leg sumarstörf. Tvö sumur, þá
17 og 18 ára, leysti hún Jóhann
Pétursson af sem vitavörður á
Horni og í 8 sumur var hún hafn-
arvörður á Isafirði. Harla óvenju-
leg sumarstörf fyrir unga stúlku.
„Eg fór síðan suður og settist í
öldungadeild Menntaskólans við
Hamrahlíð en hélt síðan til Sví-
þjóðar til náms við textíl og síðan
leirkerasmíði við frábæran einka-
skóla, Capella Gaarden á Öland í
Svíþjóð. Þaðan kem ég svo heim
árið 1995 og fer þá beint til Suð-
ureyrar á skak á trillu. Sú útgerð
gekk mjög vel en ég nýtti mér all-
ar stundir til að vinna í leirn-
um en fór ekki að snúa mér
f alvöru að leirnum fyrr en
fyrir þremur árum og
opnaði síðan vinnustofu
og verslun sem heitir
„Lóa - leirkeragerð". Það
hefur gengið alveg ágæt-
lega, en margir ferðamenn
hér á sumrin virðast
verða nokkuð undrandi
að finna listmunaverslun þar
sem þeir eiga ekki von á neinu
nema atvinnustarfsemi kringum
fiskinn. Vonandi tekst mér ein-
hvern tíma að lifa af listinni, en
þá verð ég að selja mun meira,
t.d. í Reykjavík, en það væri sem
best hægt að hafa sitt aðsetur hér
í Súgundafirði. Eg hef selt á höf-
uðborgarsvæðinu hjá Heimilis-
iðnaði en hef aldrei fylgt því eftir
þótt ég hafi fengið mjög áhuga-
verðar viðtökur þar og jafnvel
frekari fyrirspurnir og hvatningu.
Það er framtíðarsinfonía og
viss ögrun að horfa meira til
Reykjavíkurmarkaðarins. En þeg-
ar maður er einn með tvö börn
þá er maður ekki eins vogaður að
taka þá áhættu að vinna ein-
göngu við listina. Til þess þyrfti
ég eignilega að hafa fyrirvinnu!
Þegar ég hætti á skakinu tók ég
að mér útibú apóteksins á ísa-
firði og er lyfsalan fjárhagslega
akkerið mitt þó vissulega væri
gaman að geta séð sér og sínum
farboða með listinni. Það væri al-
gjör draumur!
Hvernig hafa íbúar Suðnreyrar
tekið þér?
„Þeir taka öllum mjög vel, enda
fór ég í fyrstu að vinna í fiski og
þar kynntist ég öllum. Það er svo
annað mál að ég fer örugglega
ekki aftur á sjó, það var ömurlegt
og eingöngu tekjumöguleikarnir
sem lágu þar að baki. En þetta
var góður skóli, en lyktin maður,
oj!!“
Lóa er kennari í Listaskóla
Rögnvaldar Ólafssonar í Edin-
borgarhúsinu á ísafirði, leiðbein-
ir þeim yngstu, 4 til 5 ára, með
leirinn þrisvar í viku og ekur frá
Suðureyri til þess. Eftir tilkomu
Vestfjarðaganganna segir Lóa
það ekkert vandamál, en það
hefði getað orðið snúið áður
fyrr þegar brjótast þurfti f ófærð
yfir Botnsheiðina. Við Lista-
skólann eru auk þess námskeið
fyrir verðandi málara, söngv-
ara, glernámskeið o.fl. en skól-
inn er auk þess verktaki hjá
ísafjarðarbæ að mynd-
menntakennslu efri bekkj-
anna á ísafirði og allra nem-
enda í Önundar-
firði. Listaskólinn
fær til kennslunnar
m.a. listamenn frá höf-
uðborgarsvæðinu sem
auk launanna fá sem
sérstaka umbun að
sýna eigin Iistaverk í
Slunkaríld á ísafirði án
endurgjalds.
„Nú eru í gangi lista-
og menningarvika á
ísafirði sem heitir Vet-
urnætur og þar hef ég
verið
með sölusýningu í Rammagerð
Isafjarðar sem gengið hefur alveg
„glimrandi". Eg held þó að ég fly-
tji eldd nær markaðnum, t.d. til
ísafjarðar eða Reykjavíkur, færi
frekar til útlanda. Ég tók í fyrra
þátt í alþjóðlegu verkefni „As-
hmatica" ásamt fleiri Islending-
um auk Norðmanna, ítala og
Austurríkismanna, og var sýnt í
Austurríki og á ltalíu. Sýningin
fékk mjög góða umsögn gagn-
rýnenda svo kannski á maður eft-
ir að fara á þessar slóðir aftur.“
GG
Súgfirski listamaðurinn á vinnustofu
sinni, en þar er að finna marga eiguiega
muni. Listina er því viða að finna.
mynd: gs.
Veitum hagstæð
lán til kaupa á
landbúnaðarvélum
’ SP-FIÁRMÖCNUN HF
Vegmúli 3 • 108 Reykjavik • Sími 588-7200 • Fax 588-7201
Hvað er að
gerast um
helgina?
Líf og fjör
Lefkdómur um
Grandaveg 7.
bls. 19