Dagur - 04.11.1997, Page 1

Dagur - 04.11.1997, Page 1
Bestu flatkökur í heimi! Katrín er nokkuð ánægð með sig og flatkökurnar. Hún liggur ekkert á þvi' að hún baki bestu flatkökur í heimi og engin furða að fjáröflun skyldi hafa gengið vel þarna um árið miðað við að þá fór þessi afurð fyrst á heimsmarkað. mynd: sjh. „Það varfyrír 16 árum að ég byrjaði að baka fyrír Jjáröflun Kvenfélagsins, “ segirflatkökukonan Katrín Brynjólfsdóttir í Vík um það hvemig stóð á því að húnfór að baka flatkökur. „Þaðvarbesta fjáröflunaráríð hjá okk- ur“ segirhún. Katrfn er nokkuð ánægð með sig og flatkökurnar. Hún Iiggur ekkert á því að hún baki bestu flatkökur í heimi og engin furða að fjáröflun skyldi hafa gengið vel þarna um árið miðað við að þá fór þessi afurð fyrst á heimsmarkað. „Heimsmarkað" er kannski full stórt orð fyrir Kaupfélag- ið í Vík. Gegnum það seldi Katrín árum saman og vann tiltrú og holl- ustu flatkökuunnenda. Um tíma var einungis hægt að kaupa þessar dýrð- arkökur á þremur stöðum í heimin- um: í Kaupfélaginu, í bílskúrnum hjá Katrínu og gegnum klíku í ákveðnu útibúi Islandsbanka í Reykavík. Það þurfti ekki meira: kökurnar seldu sig sjálfar. Nú aðcins hjá Katrínu Nú fást kökurnar aðeins hjá Katrínu. Hún rekur gistiþjónustu allan ársins bring en kökurnar bakar hún í bíl- skúrnum. Þar er húið að koma fyrir einni góðri rafmagnshellu, haganlega undir „reykháf" sem gleypir reyk inni í dulitlu baksturshólfi og leiðir út. Þarna situr hún á upphækkuðum kolli á daginn og „það er svo assgoti gott að hafa eitthvað að gera í ellinni" segir hún; hlustar á Pétur Pétursson á rás 1. Ekki alveg einsömul. Litla barnabarnið, sex ára hnáta, er í gæslu og drífandi í bakstrinum: „Amma eig- um við ekki að fara að baka flatkökur" er viðkvæðið hjá þeirri stuttu. Þetta er rekstur með mjög litla yfirbygg- ingu. Aðeins þessa túðu yfir raf- magnshellunni sem hún bakar á, og frystikistu sem hún bakar oní. „Þær eru jafnvel betri úr frysti," segir Katrín. Þær eru dýrlegar hvort heldur sem er: beint af hellunni eða frosnar 10 saman í pakka. Heilbrigðiseftirlitið Jú jú, hún er með allt á hreinu, það vantar ekki að heilbrigðiseftirlitið er búið að koma að skoða og hún borg- ar eftirlitsgjald árlega: „En svo koma þeir bara ekkert aftur!“ segir hún og hefur greinilega ekkert á móti því að fá heimsókn fyrir gjaldið. Og svo hefur hún aðgang að endurskoð- anda sem telur fram, þetta er allt á hreinu. Og tekjurnar? „Ja, ég er nú búin að klæða húsið að utan og inn- rétta aftur allt að innan fyrir kök- urnar,“ segir hún. „Ellilaunin gera ekki meira en hafa til að borða“. Samt eru kökurnar ekki svo dýrar, hún hefur frétt af þeim dýrari í Ás- byrgi fyrir norðan og svo „kom hing- að Grikki og honum fannst ég fá lít- ið fyrir kökurnar!" Það eru alþjóð- legir straumar á gistiheimilinu. Leyndarmál! Uppskriftin er leyndarmál. „NEI!“ segir Katrín harðákveðin þegar beðið er um hana. „Magnús Skarphéðins- son lét sig ekki fyrr en hann fékk hluta af henni," segir Katnn brellin á svip þegar hún segir „hluta af“. Magnús var fastagestur lengi og Katrín lét undan á einhveiju vafasömu augna- bliki, en þó ekki meira en svo en halda aðalatriðinu fyrir sig og sinn bílskúr. Og Magnús? „Hann hefur ekki kom- ið síðan!" í þessari sögu býr mikill sannleikur um leyndardóm viðskipt- anna. Hún hær dillandi hlátri. Sálin í baksturinn Snemma á morgnana koma barna- börnin og fá að maula hjá henni þangað til kominn er tími á skólann. Þá fer hún niður í skúr „að baka flat- kökur“; þegar hún segir þessi orð er eins og manni hlýni öllum að innan. Tónninn er þannig. Kankvís og sposk á svip „að baka flatkökur"; sú litla kemur stundum með ömmu sinni og það er auðvelt að ímynda sér andrík- ið yfir bakstrinum þegar þær tvær eru að. Katrín er rösk til munns og handa og enginn kemur að tómum kofanum hjá henni, í orðsins fyllstu merkingu: full kista af kökum og uppbúin rúm í „Gistiheimili Katrín- ar“, Vík í Mýrdal. -SJH. ! Veitum hagstæð lán til kaupa á landbúnaðawélum SP-FJARMOGNUN HF Vegmúli 3 • 108 Reykjavik • Simi S88-7200 • Fax 588-7201 Þoó tekur oöeins eitrn m ■ ■virkan dag aö kortta póstinum þinum til skila mim nctsiNUftt | -JBUM Tolli Og Thor skrifa bók. bis. 21 1 verslnar- ferð á íslandi. Bls. 19

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.