Dagur - 04.11.1997, Blaðsíða 6

Dagur - 04.11.1997, Blaðsíða 6
22 — ÞRIDJUDAGVR 4.NÓVEMBER 1997 1997 Sorpa hlaut umhverfisverðlaun UMFÍ Sorpa hlaut Umhverfisverðlaun Umhverfissjóðs verslunarinnar og Ungmennafélags íslands sem afhent voru í lok október. Er þetta í annað sinn sem umhverfisverðlaun eru afhent en í sumar hlaut Hótel Geysir fyrstu umhverfisverðlaunin. Á myndinni að ofan, sem er frá afhendingu verðlaunanna, eru: Ingimundur Sigurpálsson, stjórnaformaður Sorpu, Þórir Jónsson formaður UMFÍ, Guðmundur Bjarnason umhverfisráðherra, Bjarni Finnsson formaður umhverfissjóðs verslunarinnar og Ögmundur Einarsson framkvæmdastjóri Sorpu. Fréttir frá HSK Unglingamót í sundi - 3 HSK met sett á mótinu Fjölmennur hópur frá Selfossi, Þór og Garpi mætti til leiks á Unglingamóti HSK í sundi sem haldið var í Sundhöll Selfoss s.l. fimmtudag, en keppt var í flokkum 12 ára og yngri og 13 og 14 ára. Sérstaka athygli vakti þátttaka sundkrakka úr Garpi, en þeir hafa ekki tekið þátt í sundmótum HSK áður og var Inga Heiða Heimisdóttir formaður sundnefndar HSK ánægð með að fá nýtt félag inn í sundstarfið innan sambandsins. Tvíburabræðumir Daníel og Leifur Gunnarssynir, Selfossi, settu þrjú HSK met í sveinaflokki 12 ára og yngri á mótinu. Leifur bætti 22 ára gamalt met Tryggva Helgasonar í 50 metra bringusundi sveina um 3 sekúndur, synti á 37.4. Daníel setti HSK met í 50 metra skriðsundi, synti á 31.6 og bætti met Þrastar Ingvarssonar frá 1975 um 0.2 sekúndur og hann bætti einnig metið í 50 metra baksundi, synti á 37.0 en gamla metið átti Huginn Harðarson frá 1975 sem var 37.5. Selfyssingar unnu til 8 HSK meistaratitla á mótinu. Þór vann 3 titla og Garpur 2 titla og í stigakeppni félaga vann Selfoss með yfirburðum hlaut 120 stig. Garpur varð í öðru sæti með 39 stig og Þór í þriðja með 23. Framfarabikar mótsins fyrir mesta bætingu milli móta vann Sigþór Magnússon, Þór, sem bætti sig um 17.5 sekúndur í skriðsundi sveina. Hestamenn sameinast í ein landssamtök -félög iiman HSK sækja um að halda fslandsmótið 1999 Fjölmennur hópur frá sunnlenskum hestamannafélögum var á þingum Landsambands hestamanna og þingi Hestaíþróttasambandsins sem haldin voru á Egilsstöðum um helgina. Sameining þessara samtaka var samþykkt með miklum meirihluta atkvæða á báðum þingum þeirra urn helgina. Nýju samtökin heita Landsamband hestamanna og munu starfa innan Iþróttasambands Islands, en Hestaíþróttasambandið hefur verið aðili að ÍSÍ undanfarin ár. Einn af stjómarmönnum nýrra samtaka kemur af sambandssvæði HSK, eða Sigurgeir Bárðarson á Hvolsvelli. í varastjóm eiga sunnlendingar líka fulltrúa sem er Haraldur Þórarinsson í Laugardælum. Birgir Sigurjónsson frá Sörla í Hafnarfirði var kosinn formaður og Jón Albert Sigurbjömsson úr Fák í Reykjavík varaformaður. Á þinginu sóttu 6 félög innan HSK sameiginlega um að halda íslandsmót í hestaíþróttum árið 1999 en það ár eiga tvö stærstu félögin á svæðinu stórafmæli, Sleipnir verður 70 ára og Geysir 50 ára. Umsókninni var vísað til stjómar, en þar sem aðrir sóttu ekki um mótið má reikna með að það verði haldið á Hellu eftir tvö ár. r 4. tölublað Skinfaxa er komið út en þar er meðal annars að finna skemmtilegt viðtal við Forseta íslands, herra Ólaf Ftagnar Grímsson. Skinfaxi kominn út f síðustu viku kom 4. tölublað Skinf'axa, tímarits Ungmennafélags íslands, út. Efni er ijölbreytt að vanda þótt meginhluti blaðsins sé tileinkaður 22. Landsmóti UMFÍ sem haldið var í Borgarnesi í sumar. Forseti fslands, herra Ólafur Ragnar Grímsson, er í skemmtilegu viðtali í blaðinu þar sem hann kemur meðal annars inn á kynni sín af hreyfingunni allt frá því að hann var ungur. Einnig eru viðtöl við: Arna Þorgilsson, formann HSK, Björgvin Rúnarsson, handboltakappa á Selfossi og Gunnar Oddson, knattspyrnumann hjá Keflavík. Hafir þú áhuga á að nálgast blaðið getur þú hringt í þjónustumiðstöð UMFÍ í sími: 568-2929. Ný stjórn UMFI Þórir Jónsson er áfram Jóhann Ólafsson, ritari, og formaður Ungmennafelags íslands en ekkert mótframboð kom gegn honum á 40. sambandsþingi UMFÍ. Ný stjórn UMFÍ var kosin og hana skipa auk Þóris: Björn B. Jónsson, varaformaður, Kristján Yngvason, gjaldkeri, Margir á leið Mörg héraðssambönd og félög innan UMFÍ hafa sett fræðslustarf vetrarins í gang og pantað námskeið hjá Félags- málaskóla UMFÍ á næstu vikum. Héraðssambandið Skarp- héðinn heldur þrjú námskeið á Hvolsvelli fyrstu þrjá miðvikudagana í nóvember. Þann 5. nóvember er námskeið fyrir viðtakandi stjórn, þá kemur námskeið um stjórnun og rekstur félaga þann 12. nóvember og loks námskeið um ijármál félaga 19. nóvember. Áhugasamir skrái sig hjá IISK í síma 482-1189. Námskeiðin taka öll þrjá tíma og eru létt og skemmtileg. Héraðssambandið Hrafna- Flóki heldur líka námskeið um HUmsjón Jóhann Ingi Árnason s: 568-2929 Ingimundur Ingimundarson, Kristín Gísladóttir og Siguður Aðalsteinsson, meðstjórnendur. í varastjórn voru kosnir: Páll Pétursson, Sigurbjörn Gunnars- son, Anna R. Möller og Helga Guðjónsdóttir. á námskeið stjórnun og rekstur félaga sunnudaginn 9. nóvember. Nánari upplýsingar gefur UMFÍ í síma 568-2929. Eins og nöfn námskeiðanna benda til er verið að Ijalla um ýmsa hagnýta hluti í félagslffi. Má þar nefna að koma félagsskapnum á framfæri, gera markvissar áætlanir um starfið, virkja fleira fólk til starfa og gera fundina styttri og skemmtilegri. Einnig er ijallað um verkefnin sem hvfia á hverjum stjórnarmanni. Þess vegna væri gaman að sjá heilu stjórnirnar koma á námskeið og eiga saman skemmtilega kvöldstund. Rétt er að geta þess að sumir framhaldsskólar meta þessi námskeið til eininga og ætti það að vera hvetjandi fyrir ungt fólk að sækja námskeiðin. Auk þess þarf ekki að ijölyrða um það hvað félagsleg þekking og leikni er dýrmæt og nauðsynleg í lífinu. Allar nánari upplýsingar um námskeið I?élagsmálaskólans eru veittar hjá UMFÍ.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.