Dagur - 04.11.1997, Qupperneq 12
Enginn vandi að hætta!
Leikaramir Valgeir
Skagfjörð og Pétur
Einarsson ætla að
kenna reykingafólki að
hætta fyrir lífstíð; það
erenginn vandi, segja
þeir.
Leikararnir, leikstjórarnir og þús-
undþjalasmiðirnir Valgeir Skag-
ijörð og Pétur Einarsson ætla í
næsta mánuði að hefja nám-
skeiðahald fyrir reykingafólk sem
vill hætta að reykja. Námskeiðið
byggir á aðferð AUen Carr um
auðveldu leiðina til að hætta, en
hjá Valgeiri og Pétri verður
mottóið: Enginn vandi að hætta.
„Við viljum hjálpa langt
gengnu reykingafólki að hætta að
reykja og erum sannfærðir um að
þessi aðferð er pottþétt. Reyndar
svo sannfærðir að við tölum um
90% árangur og lofum endur-
greiðslu ef fólk hættir ekki,“ seg-
ir Valgeir í samtali við Dag.
Engin trix - bara sannleikur
Carr þessi skrifaði bók fyrir
nokkrum árum, sem hefur farið
sigurför um heiminn. Hann þró-
aði námskeiðahald, sem tekið
hefur verið upp í hverju landinu
á fætur öðru og fengu Vaigeir og
Pétur styrk frá tóbaksvarnanefnd
til að kynna sér aðferðina.
„Námskeið er kannski ekki
rétta orðið, réttara væri að tala
um ldíník og þerapíu. Ferlið er
ekki flókið, við tökum fólk á fjög-
urra klukkustunda námskeið eða
meðferð og á meðan á því stend-
ur má fólk reykja að vild. I lokin
drepur fólkið samt í sinni síðustu
sígarettu og fær svo „hypnoter-
apíu“ eða Iétta dáleiðslu, sem þó
er ekki dáleiðsla í venjulegum
skilningi. Við tölum um 90% ár-
angur og eigum við að flest öllum
dugar eitt skipti, en fólk má
koma aftur og aftur án þess að
borga nema einu sinni. Ef ekkert
gengur fær fólk pening sinn end-
urgreiddan. Það eru engin trix í
þessu. Við notum ekkert annað
en sannleikann. Eg veit hvað ég
er að tala um; sjálfum tókst mér
Ioks að hætta með þessari aðferð,
eftir 25 ára reykingar," segir Val-
geir. -FÞG