Dagur - 06.11.1997, Blaðsíða 10

Dagur - 06.11.1997, Blaðsíða 10
26 - FIMMTUDAGUR 6.NÓVEMBER 1997 ro^tr LÍFIÐ í LANDINU L. A Gróskan er í hugbúnaði Aflvaki hf. hefurfeng- ið vel á þríðja hundrað mála til skoðunarfrá þvístarfsemi fyrírtæk- isins hófstfyrírfjórum árum ogfjárfest í lið- lega 30 verkefnum, gjaman í hugbúnaðar- geiranum. Páll Guð- jónsson segir að grósk- an sé mikil. Aflvaki hefur tekið fjárhagslegan þátt í liðlega 30 verkefnum og er áberandi hversu mikil gróska er í hugbúnaðargeiranum en hlut- verk fyrirtækisins er að bæta umhverfi atvinnulífsins og veita áhættufjármagn í nýsköpunar- fyrirtæki. Páll Guðjónsson, framkvæmdastjóri, segir að í hugbúnaðargeiranum sé mikið af margbreytilegum hugmynd- um á ferðinni og býst við að þaðan geti komið „innan tíðar mjög spennandi hlutir." Þá er mikið að gerast á svokölluðu „megatronic" sviði, þar sem vél- búnaður og hugbúnaður tvinn- ast saman. Dæmi um slíkt fyrir- tæki er Marel, þar sem flæðilín- urnar eru annars vegar og hins vegar stýribúnaðurinn. Samruni og samstarf Viðhorf manna í fyrirtækja- rekstri hefur verið að breytast á síðustu árum og segir Páll að nú sé ný hugsun komin inn í fyrir- tækin. Fyrirtækin séu opnari og leiti allra leiða til að ná sem bestum árangri, til dæmis með samstarfi, sameiningu eða sam- runa við önnur fyrirtæki ef menn sjá hag í því. Hann á von á því að þessi tilhneiging aukist enn frekar. „Fæst þessara fyrirtækja eru farin að skila þeim árangri sem við eigum von á en við sjáum vonandi á næstu tveimur til þremur árum að þetta fer að springa út,“ segir hann. - Geturðu nefnt einhver dæmi um fyrirtæki sem eru þegar farin að skila árangri? „Fyrirtækið Imúr, sem fram- leiðir íslenskar múrblöndur, er farið að gera það gott í sam- keppni við innfluttar lausnir, endurreisn Landssmiðjunnar, sem var smiðja en er nú orðið megatrónískt fyrirtæki. Við erum líka þátttakendur í hugbúnaðar- fyrirtækjum, til dæmis Tauga- greiningu, Softis og Islenskri vöruþróun," svarar Páll að lok- um. -GHS. Ekkert smá skemmti- □ LEGUR STRAUMRAS Furuvöllum 3 ■ 600 Akureyri Sími 461 2288 ■ Fax 462 7187 Ætlarðu til Höfum allan búnað sem til þarf i--------------- Haglabyssur Haglaskot Skotfærabelti Gönguskór Áttavitar Rjúpnapokar Vesti Hlífðarfatnaður og margt fleira... Veiðileyfi í Þórðarstaða-, Sigríðarstaða- og Melaskógum BYGGINGAVORUR Gerðu þér ferð - það borgar sig! / Sími: 4fi0 350 Páll Gudjónsson, framkvæmdastjóri Aflvaka ht: „Fæst þessara fyrirtækja eru farin að skila þeim árangri sem við eigum von á en við sjáum vonandi á næstu tveimur tii þrem- ur árum að þetta fer að springa út.“ mynd: hilmar. Vaxtarbroddar! Sjónvarpsstöð og Útboðsbanki em í hópi þeirra fimm fyrírtækja semAtvinnumála- nefnd Akureyrar hefur ákveðið að styrkja. Atvinnumálanefnd Akureyrar styrkti nýlega vænlega vaxtar- brodda í íslensku atvinnulífi. Þeir eru ólíkir en áhugaverðir, og þykja líldegir til að auka fjöl- breytni. Gervikrabbi Teista ehf., í eigu Jóns R. Krist- jánssonar og Isaks Oddgeirsson- ar, hlýtur 200 þúsund króna styrk til undirbúnings full- vinnslu sjávarafurða til fram- leiðslu á heilsufæði. Hráefni til framleiðslunnar er „surimi“, fiskafskurður og annað sjávar- fang. Surimi er fiskprótein sem notað er til íblöndunar á vörum eins og t.d. gervikrabba. Surimi er flutt inn en stefnt er að þróun sh'krar framleiðslu hjá Teistu. Eldvari Rafverk ehf. hlýtur 200 þúsund krónur til að vinna að þróun frumgerðar á „Eldvara", sem er búnaður sem rýfur rafstraum af eldavél ef hiti frá hellu skapar eldhættu. Hönnuður „Eldvara" er Svavar Guðni Gunnarsson. Fersk en frosin rækja Loftur Sigvaldason hlýtur 200 þúsund króna styrk vegna stofn- unar lítils matvælafyrirtækis sem framleiðir til niðurlagningar á valinni, frosinni rækju í sér- stökum legi sem viðheldur fersk- leika vörunnar og er varan til markaðssetningar innanlands. Unnið verður að að könnun á möguleikum á sölu á veitinga- húsa- og iðnaðarmarkað og markaðsmöguleikum erlendis. Svæðissjónvarp Það er sjónvarpsstöðin Aksjón, sem hafið hefur svæðisbundnar útsendingar, sem hlýtur 300 þúsund krónur en stefnir að stækkun sendisvæðis á útmán- uðum sem þá mun ná til 20 þúsund manns. Útboð - upplýsingar Árni Laugdal hlýtur 200 jrúsund króna styrk vegna stofnunar „Utboðsbanka“, fyrirtækis sem fylgist með útboðum og miðlar upplýsingum til áskrifenda auk Jress að vinna að upplýsinga- miðlun um útboðsmarkaðinn. Þjónustan mun helst nýtast verktökum á Akureyri og ná- grenni. Við mat á umsóknum er lagt til grundvallar nýsköpunargildi, skilgreinds og raunhæfra verk- efna. Einnig er lögð áhersla á verkefni sem stuðla að þróun og hagræðingu innan fyrirtækja og verkefni sem snúa að markaðs- setningu á nýrri framleiðslu. GG Vaxtarbroddar! Hluti styrkþega ásamt formanni atvinnumálanefndar, Hákoni Hákonar- syni og Berglindi HaHgrimsdóttur, starfsmanni nefndarinnar. mynd: brink

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.