Dagur - 06.11.1997, Blaðsíða 15
FIMMTUDAGVR 6.NÓVEMBER 1997 - 31
LÍFIÐ í LANDINU
Guðrún
Gunnars-
dóttir, söng-
kona ogút-
varpskona,
eraðfara til
Svíþjóðar til
að bæta við
söngkunn-
áttu sína.
SöngnámíSvíþjóð
Norræna ráðherranefndin
styrkir Gurúnu til þessarar
ferðar, en eins og kunnugt er
hefur Guðrún verið ötul við
sönginn undanfarin ár. Hún
söng hlutverk Maríu Magda-
lenu í Jesus Christ Superstar
og söng með Agli Ólafssyni á
sólóplötum hans. Guðrún hef-
ur tekið þátt í leikhúsuppfærsl-
um og sungið inn á margar
plötur, m.a. með Snörunum,
sem eru að koma með nýja
plötu, án Guðrúnar þó. „Eg
hreinlega gat ekki verið með,
sökum anna. Maður verður að
geta gefið svona dæmi góðan
tíma og hann hef ég ekki
núna,“ segir Guðrún.
„Eg hef verið að syngja síðan
ég man eftir mér,“ segir Guð-
rún. „En þó svo að söngurinn
heilli stöðugt og sé stór hluti af
lífi mínu, þá dregur útvarpið
mig alltaf til sín aftur.“
Eg hefverið að
syngja frá því að ég
man eftirmér...
Nýr liðsmaður
Guðrún var í 10 ár á Rás 2, en
vinnur núna á Bylgjunni, sér um
síðdegisþáttinn Þjóðbrautina
ásamt Skúla Helgasyni og sér
ekki eftir því að hafa skipt.
Henni líkar ákaflega vel að
vinna á Bylgjunni, segir góðan
starfsanda þar og skemmtilegt
fólk.“ Það er að bætast nýr liðs-
maður í hópinn, hann Jakop
Bjarnar Grétarsson, sem verið
hefur í King Kong, kemur til liðs
við okkur í næstu viku. Þá verð-
um við þrjú og við það verður
þátturinn ennþá öflugri," segir
Guðrún.
Alltaf í vinminni.
Hún segir starfið við útvarpið
grípa sig föstum tökum. „Maður
er eiginlega alltaf í vinnunni, þó
maður sé í fríi, þá er maður
alltaf að hugsa um hvort þetta
eða hitt sé efni í þátt.
„Söngurinn og útvarpið er
orðin samofin heild, því þegar
ég var búin að ákveða för mína
til Svíþjóðar, hugsaði ég strax
um að nota tímann líka til að
taka einhver viðtöl þar eða
hringja pistla í þáttinn."
Guðrún á fjölskyldu, mann og
þrjú börn. En er ekki erfitt að
vera í vinnu allan daginn með
þrjú ung börn?
„Eg var í vinnu hálfan dag-
inn,“ segir Guðrún, „en það
gengur bara ekki upp í þessu
starfi. Eg var farin að vinna svo
mikið heima, hringja í allar áttir
og eiginlega orðin í fullri vinnu,
svo það var alveg eins gott að
vera bara í vinnunni allan dag-
inn.“
Kollafer í bíó
ConspiracyTheory
**
I Conspiracy Theory leikur Mel
Gibson leigubílstjóra sem virðist
ekki ganga heill til skógar. Hann
er haldinn þeirri sjúklegu þrá-
hyggju að sjá samsæri í hverju
horni og predikar ótrúlegar
kenningar sfnar fyrir daufum
eyrum. En einhver hinna fjöl-
mörgu kenninga hans virðist
vera rétt því illmenni ræna hon-
um og gera tilraun til að þvinga
hann til sagna. Okkar maður veit
elcki hvað honum er ætlað að
játa, tekst að flýja með hóp óvina
á hælum sér og leitar skjóls hjá
tortryggnum, ungum lögfræð-
ingi, sem Julia Robert leikur.
Conspiracy Theory er ákaflega
köflótt mynd. Eftir fremur lang-
dregna byrjun kemst myndin á
nokkurt flug en upp úr miðju
fellur hún í meðalmennsku og
nær sér aldrei almennilega á
strik. Myndin er einfaldlega of
löng og sundurlaus. Engu er lík-
ara en leikstjórinn hafi ekki vit-
að hvaða stefnu hann ætti að
taka og því ákveðið að láta
mynda sem mest. En það er ekki
einungis Ieikstjórnin sem hefði
þurft að vera markvissari. Hand-
ritið er ekki sérlega burðugt sem
er synd því hugmyndin er góð.
Lausn ráðgátunnar er einkar
klén og veldur vonbrigðum.
Það er Mel Gibson sem held-
ur myndinni á floti með stjörnu-
leik í erfiðu hlutverki og sannar
rækilega að hann er miklu meira
en einungis snoturt andlit. Julia
Roberts er út á þekju mestalla
myndina, og hið sama má segja
um aðra leikara myndarinpar,
fyrir utan undur sjarmerandi
blökkumann sem stendur sig
með prýði í hlutverki Ieyniþjón-
ustumanns.
Conspiracy Theory er spennu-
mynd í meðallagi. Myndin er
aldrei beinlínis leiðinleg en hún
nær sér alltof sjaldan á flug. I
henní er þó að finna nokkur
æsispennandi atriði en helst til
langt er á milli þeirra. En Mel
Gibson, sem ég hef fram að
þessu aldrei litið á sem alvöru
leikara, er ansi árans góður.
J SMÁTT OG STÓRT
UMSJON
GuðPún Helya
Sigurðardóttip
Viltu fá þér huud eda kött?
Hundar og kettir fyrirfinnast í öðru hverju húsi
út um allt land, páfagaukar, hamstrar og jafnvel
slöngur eða
útlendar
kóngulær og
risaskjald-
bökur. í
flestum tilfellum er þó gælu-
dýrið hundur eða köttur enda
er fólk tilbúið að eyða tugum
þúsunda í slík dýr. Þegar um
svo háar upphæðir er að ræða
þá er eins gott að þeim pen-
ingum sé ekki hent út um
gluggann. Viltu finna út hvort
hentar þér betur? Veltu þá
eftirfarandi hlutum fyrir þér.
Sumir geta hugsad sér aö eiga slöngu eða
útlenska risaskjaldböku fyrir gæiudýr en
flestir velja hund eða kött.
Hefurðu lyst á að þrífa upp skítiun?
'V. A\ %
f' im
i wfzjjsú
/. ■ ^
■ / . f
■
■
■-ál -
Rísa hárin á þér i hvert skipti sem þú heyrir óvæntan hávaða? Þá hlýturðu að fá
þér kött.
Rísa hárin á þér í hvert skipti sem þú heyrir óvæntan hávaða og
ferðu að svitna? Finnst þér gaman að horfa á annað fólk? Ertu
alltaf að heiman? Þig langar til að fá fólk í kvöldmat en finnur
þér aldrei tíma til að búa til mat? Þú breytir um áætlun gjarnan á
síðustu stundu? Ferðu snemma á fætur um helgar? Geturðu
hugsað þér að þrífa upp skítinn eftir gæludýrið? Þessar spurning-
ar ættu að geta leiðbeint þér eitthvað, að minnsta kosti um það
hvort þú færð þér hund eða kött.
Ekki hara manuamál sem
dýriu skHja
Margir tala við gæludýrin sín og byggja upp mjög persónulegt
samband við þau og við hin hljótum að velta fyrir okkur á hvaða
hátt það gerist. Margir telja að dýr skilji mannamál og sjálfsagt er
það að einhverju leyti rétt. Sumir segja þó að það sé ekki bara
mannamálið sem dýrin skilja heldur fer samtal fram með hugar-
orkunni einni saman.
Ef umhverfið er rólegt og afslappað eru möguleikarnir á gagn
kvæmu samtali meiri. Gott er að hugsa um nafn dýrsins og gera
sér mynd af dýrinu í hugarlund. Síðan má reyna að senda skila
boðin. Gjarnan má
spyrja í huganum
hvort það sé eitthvað
sem hægt sé að gera
fyrir dýrið. Það fyrsta
sem kemur í hugann
er líklega svarið. Og
að sjálfsögðu teku
maður alltaf fullt
mark á svarinu, sama
hversu fáránlegt það
kann að virðast. Best
er að takmarka þessi
samskipti aðeins við
10 mínútur í hvert
skipti.
Margir geta byggt upp sérstakt samband við
* , . ... Þýtt oc endursact
gæludyrio sitt meo hugarorkunni emm saman.
Hundar ku skilja bædi mannamál og hitt málid.