Dagur - 07.11.1997, Page 2
2 —FÖSTVDAGUR 7.NÓVEMBER 1997
ro^*r
FRÉTTIR
Halldóra Bjarnadóttir, framkvæmdastjóri Krabbameinsfélags Akureyrar, og Valdimar Brynjólfsson, framkvæmdastjóri He/lbrigðiseftirlits Eyjafjarðar,
brugðust skjótt við meintum tóbaksauglýsingum. mynd: brink
Tóbakslöggan
vel á verði
KEA-Nettó setti upp sölu-
kerfi fyrir sígarettur. Mis-
tök urðu við uppsetning-
una og tóbakslöggan
skarst í leikinn.
„Ef að þarna eru myndir af sígarettu-
tegundum, þá er þetta skýlaust brot á
tóbaksvarnalögunum," sagði Halldóra
Bjarnadóttir, framkvæmdastjóri
Krabbameinsfélags Akureyrar, þegar
Dagur sagði henni frá söiukerfi í KEA-
Nettó þar sem viðskiptavinir geta ýtt á
takka þannig að þeirra tegund rennur
inn á færibandið. „Ef þetta er sjálfsali,
þá er það líka bannað."
Halldóra brást skjótt við og mætti í
KEA-Nettó ásamt Valdimar Brynjólfs-
syni, framkvæmdastjóra Helbrigðiseft-
írlits Eyjafjarðar, sem hefur opinbert
eftirlit með því að verslanir virði tób-
aksvarnalögin. Halldóra og Valdimar
voru sammála um að sölukerfið, eins
og það var sett upp, bryti í bága við lög-
in. „Veit hann Júlíus af þessu,“ sagði
Halldóra við starfsmann verslunarinn-
ar og minnti á að verslunin hefði feng-
ið viðurkenningu fyrir að veifa ekki
tóbaki framan í viðskiptavini sína.
Júlíus Guðmundsson verslunarstjóri
var í fríi og í ljós kom að fyrirskipanir
hans um uppsetningu búnaðarins
höfðu ekki verið virtar. Júb'us sagði í
samtali við Dag að það hefðu verið sín
fyrimæli að takkar kérfisins væru hjá
afgreiðslufólki og að þetta væri ekki
sjálfsafgreiðsla. Hann sagði búnaðinn
settan upp til að koma í veg fyrir rýrn-
un og þetta kerfi kæmi í veg fyrir að
börn og unglingar hnupluðu tóbaks-
vörum. Einnig væri hugsunin sú að af-
greiðslufólk þyrfti ekki að beygja sig
eftir tóbaksvörum. Júlíus sagðist
harma þennan misskilning og þessu
yrði þegar f stað kippt í lag.
Valdimar og Halldóra voru sátt við
viðbrögð verslunarinnar og skýringar
hennar á mistökunum. Halldóra tekur
því ekki tóbaksvarnaviðurkenninguna
af Júlíusi og hann fær kannski aðra fyr-
ir að hefta enn frekar aðgengi unglinga
að tóbaki. — HH
FRÉTTAVIÐTA LIÐ
Nú er orðið ljóst að kratar og aUaballar mætast á
miðri leið í Rúgbrauðsgerðinni, þar sem lands-
fundur Alþýðubandalagsins er haldinn. Þegar
pottverjar rýndu í dagskrá landsfundarins sáu
þeir að gert er ráð íýrir að fundarstörfuin á laug-
ardag ljúki kiukkan 19.30. Á sömu mínútu
verður húsið opnað iýrir krötum og öðrrnn þeim
sem mæta í kveðjuhóf Jóns Baldvins Hannibals-
sonar og Bryndísar Scram. Allaballar á útleið
mæta sem sagt krötum á leiðinni iim, nema ein-
hverjir þeirra kj ósi að vera eftir og taka þátt í far-
vel Jón gleðskapnum.
En það eru ekki allir alþýðubandalagsmenn jafn
spenntir fyrir landsfundinum og í pottinn hcyr-
ast áhyggjuraddir úr þremur kjördæmuin þar
sem talsvert er af alþýðubandalagsbændum.
Þetta er Norðurland vestra og eystra og Austur-
land. Á þessum svæðum þykir það ekki vegs-
auki meðal bænda að vera í slagtogi með kröt-
um...
Á Alþingi í gær munu
menn liafa fylgst grannt
með því þegar brotið var
blað 1 þingsögunni. Þá tal-
aði í fýrsta shtn sendilierra
í umræðu um utanríkis-
mál. Jón Baldvin þótti sér-
lega ríkisstjórnarlegur í
ináli sínu og þau fáu skeyti
sem flugu lentu hjá allaböll-
um...
Pottverjar spá mikið í hvort Gísli Bragi Hjartar-
son, bæjarfulltrúi og oddviti krata á Akueyri
muni draga sig í hlé í pólitíkinni. í pottinum
segja menn að stórlega hafi dregið úr líkum á
því eftir að Sigríður Stefánsdóttir tilkynnti um
að hún væri að hætta, en hún og Gísli Bragi hafa
löngurn eldað grátt silfur hvort við annað og Sig-
ríðarlaus í
V___________
pólitíkbmi sé hann til alls vís!!.
MiMQ kuxr meðal lækna
Guðmundur
Bjömsson
formaður Læhnafélags íslands og
yfirlæknir Heilsustofnunarinnar í
Hveragerði.
Læknastéttin í heild sinni
erí kjarabaráttu og vígstöðv-
amar em minnstþrjár. For-
maður Læknafélagsins segir
óánægju ríkjandi meðal
lækna og segirfrá freistandi
tilboðum að utan.
- Er allt upp í loft í samningamálum
læknastéttarinnar?
„Það ríkir almenn óánægja hjá læknum
með ganginn í samningamálum. Samningar
eru Iausir hjá öllum, en lítil hreyfing á sér
stað.“
- Læknasamtökin skiptast upp í nokkra
hópa og viðsemjendurnir eru ólikir. Hvað
er að frétta af heilsugæslulæknum?
„Þeirra mál eru fyrir Kjaradómi og hafa
verið það í rúmt ár. Það er mikil vinna í
gangi og upplýsingasöfnun um kjör heilsu-
gæslulækna, en lítið fréttist af því hvenær
niðurstöðunnar er að vænta. Eg veit ekki
hvort óeðlilegur dráttur hafi orðið á málum
hjá Kjaradómi, en sennilega verður þetta að
teljast mjög langur tími.“
- Eru heilsugæslulæknar eklii að gefast
upp á hiðinni, einkum á landsbyggðinni?
„Jú, það er mikil óvissa ríkjandi meðal
þessara lækna um framtíð sína og þessarar
þjónustu. Þessir Iæknar eru farnir að horfa
til útlanda um vinnu og það hafa borist mik-
il og feit tilboð. Meðal annars frá Norður-
Noregi, þar sem bjóðast þreföld grunnlaun
og það fyrir styttri vinnutíma. Og menn eru
að tínast í þetta. Það hefur lengi rfkt kurr á
þessum vettvangi, því það er búið að plokka
ýmsa tekjumöguleika af þessum læknum,
t.d. tekjur af apótekum og greiðslur vegna
notkunar á einkabíl."
- Sjúkrahúsalæknar hafa verið hjá
sáttasemjara um nokkurra vikna skeið.
Er þar hreyfing í gangi?
„Já, samninganefndirnar eru komnar á
góðan skrið, þótt seint gangi að ná endum
saman. Þar er stórt mál að unglæknar hafa
sagt upp sinni yfirvinnu frá 1. desember og
vilja vinna í samræmi við EES-reglur um
vinnutíma. Einnig er uppi á borðinu að
umbuna á einhvern hátt þeim Iæknum sem
helga sig sérstaklega vinnu á sjúkrahúsum
og eru ekki með eigin stofu. Mér sýnist að
báðir samningsaðilar séu jákvæðir."
- Sérfræðingar hafa í hópum sagt upp
samningum sínum við Tryggingastofnun.
Hvað eru þeir margir og hver er staðan?
„Yfir 50 sérfræðingar hafa sagt upp samn-
ingum, en það eru fleiri að huga að upp-
sögnum og sérfræðingar með samninga
hafa verið hátt á annað hundrað. Þarna hef-
ur lítið gengið saman, en meginkröfur sér-
fræðinganna lúta að því að eðlilegt tillit
verði tekið til þess kostnaðar sem af rekstri
læknastofa stafar, m.a. vegna endurnýjunar
á tækjabúnaði og framþróunar á hinum
ýmsu sviðum. Því miður hefur ríkt lítill
samningsvilji hjá Tryggingastofnun og raun-
ar má tala um skilningsleysi af hálfu stofn-
unarinnar."
- Læknar á hinum ýmsu sviðum hafa oft
tekist duglega á, svo sem séifræðingar og
heimilislæknar. Eru innanbúðarmál
lækna ekkert að flækjast fyrir um þessar
mundir?
„Það er mikill einhugur ríkjandi meðal
lækna. Það er rétt að menn hafa stundum
tekist á með tilþrifum, ekki síst í túlkun fjöl-
miðlanna, en Iæknar hafa slíðrað sverðin og
reyna að leysa sín ágreiningsmál með
stefnumótunarvinnu um hlutverk og stöðu
lækna og svo um heilbrigðisþjónustuna al-
mennt. Samningaleiðin hefur orðið ofan á.“
- FÞG