Dagur - 07.11.1997, Blaðsíða 7

Dagur - 07.11.1997, Blaðsíða 7
 FÖSTUDAGUR 7. XÓVEMBER 1997 - 7 ÞJÓÐMÁL Breiðu bökin fundin í Degi á föstudaginn 31. októ- ber, var slegið upp með stríðsletri á forsíðu, hvernig þessi háværi og óbilgjarni aldurs- hópur fólks, sem kominn er yfir sjötugt, veltir sér í vellystingum praktuglega upp úr peningaflóð- inu. Það var nú ekki vanþörf á að einhver vandaður fjölmiðill kæmi stjórnvöldum til stuðnings í réttlátri baráttu þeirra við þennan kröfuharða hóp. Þennan hóp sem sífellt kvartar og kvein- ar. Kvartar og kveinar í hvert skipti sem stjórnvöld loks finna einhverja leið til þess að sporna við fjáraustrinum í þennan lýð. Þó ekki sé með öðru en því, eftir langa og stranga leit að að- ferðum til þess að koma höndum á bruðl hópsins, en að ráðherr- ann, sem passar kassann, taki sér nú vald til að skammta hópn- um sjálfur, en sé ekki sífellt að láta þessar tryggingagreiðslur elta hin uppsprengdu launakjör í landinu. Og hópurinn kvartar einnig yfir því að fjármálaráðherranum skuli takast að ná í nokkrar krón- ur af þessu lúxusfólki í gegn um svo kallaða jaðarskatta, eða takast að ná til sín því sem lífeyr- issjóðirnir eru að spreða út til þessa fólks í viðbótar eyðslueyri. Nú þegar breiðu bökin eru loksins fundin, þökk sé Degi, þá ætti að vera sæmilega tryggt að hægt verði áfram að halda hér úti sæmilega reisulegu banka- stjóra, sægreifa og topp-embætt- ismannakerfi. Það hefur nefnilega tekist að búa til nokkurskonar „eilífðar- vél“, sem menn hafa hingað til trúað að ekki væri hægt að finna upp. Eilífðarvél sem vinnur þannig að það er sama hvað eftirlauna- fólk eða lífeyrissjóðir þess gera til þess að ausa fé í þetta óráð- síufólk. Eilífðarvélin sér til þess að kassavörðurinn fái þetta fé. Það er sama hvort fólkið er að rembast \áð að vinna og taka auðvitað með því vinnu frá öðr- um, eins og sagt er, eða að lífeyr- issjóðurinn þess, vegna bættrar stöðu sinnar, er að greiða því hærri lífeyri, vélin sér til þess að þetta renni til kassans. Þannig er komin eilífðarvél, fleiri krónur merktar eftirlauna- fólki en afraksturinn í ríkiskass- ann. Þetta er fútt kerfi Og Dagur hefur nefnilega fund- ið það út að þetta fólk hafí það að meðaltali ágætt og við þurfum ekki að hafa áhyggjur af því. Það hafi í tekjur að meðaltali um 80% af tekjum einstæðra kvenna og hafi nánast allar þarfir fríar. Ja, bragð er að þá barnið finn- ur og mikil er nú reisnin yfir við- miðuninni. Dagur hefur hins vegar ekki útskýrt það hvernig meðallaunin eru fundin. Hann segir t.d. ekki frá því að í hópi þessa aldurs- flokks eru nokkrir af tekjuhæstu einstaklingum þjóðfélagsins. Hann segir heldur ekki frá því að 4-5 þúsund einstaklingar í þess- um aldurshópi eru með það háar tekjur að þeir fá ekki greiddan grunnlífeyri almannatrygginga. En þeir vigta vel í meðaltalinu. Dagur segir heldur ekki frá því að af 23 þúsund einstaklingum, sem fá greiddan grunnlífeyri frá almannatryggingum, grunnlíf- eyri sem er um 14 þúsund krón- ur á mánuði, fá nær 20 þúsund einnig greidda svokallaða tekju- tryggingu, sem bendir nú ekki til þess að það fólk hafi háar tekjur. Tekjutryggingin er nefnilega háð því að fólk hafi mjög lágar tekjur. En meðaltalsaðferðin er góð, að mati fréttamanns Dags, og sett fram án skýringa eða at- hugasemda, þó fjórir fimmtu- hlutar af fjölda eftirlaunafólks lifi kannski við sult og seyru, þá segir meðaltalið að þeir hafi það bara ansi gott því að 10% þeirra hafi svo háar tekjur að allir hafi þeir að meðaltali tekjur sem jafngiltu um 80% af meðaltekj- um einstæðra kvenna. Dagur segir ekki frá því að af 23 þúsund einstakling- um, sem fá greiddan grunnlífeyri frá al- mannatryggingum, 14 þúsund krónur á mánuði, fá nær 20 þúsund einnig greidda svokallaða tekjutryggingu, sem bendir nú ekki til þess að það fólk hafi háar tekjur. Við þökkum Degi fyrir frá- bæra skarpskyggni Og það er kannski full ástæða til að slá upp með stríðsletri á for- síðu svona frétt, sem getur stutt stjórnvöld í réttlátri baráttu þeir- ra gegn öfgahópum eins og elli- lífeyrisþegum, sem nú eru allt að sliga í okkar þjóðfélagi, svo vand- séð er hvernig hægt er að verja okkar fráhæra sægreifa- og for- réttindahópakerfi. Þökk sé Degi. Hvað gera þingmenn öldruðum? Bréf til Dags frá aðgerðarhópi aldraðra. Þriðjudaginn 7. október s.l. létu aldraðir vita af sér á stórum úti- fundi við Alþingishúsið og gerðu þar með þingheimi ljóst að þeir eru ekki dauðir úr öllum æðum! Sumir höfðu á orði að jafnvel æðri máttarvöld hefðu gengið í lið með gamlingjunum, svo dýrð- legt var veðrið! Þessi dagur var valinn vegna þess að verið var að leggja fram (járlagafrumvarp fyrir næsta ár. Það var greinilegt á ávarpi fjár- málaráðherra að hann var ekki glaður með að þurfa að vera í þessu hlutverki, enda varð manninum illilega „fótaskortur" á tungunni. Það er athyglisvert að Davíð Oddsson er oftast fjar- verandi þegar mál aldraðra eru á dagskrá eins og við þetta tæki- færi og við þær atkvæðagreiðslur sem hafa verið kannaðar og ver- ið er að greina frá. Vissulega var ánægjulegt að sjá allan þennan hóp gamals fólks flykkjast niður á Austurvöll þennan fagra októberdag, en hinsvegar ömurlegt að sjá þarna noklcra þingmenn, sem sannar- lega greiddu atkvæði á móti hagsmunum fundarmanna á s.l. þingi, vera að spranga á milli þeirra með bros á vör, voru þeir kanske að storka fólkinu? Þeir þurftu eldki að minna á sig við þetta tækifæri, svo mikið er víst. Nú birtist hér framhald skoð- ana á atkvæðagreiðslum sem fram fór í þinginu 18. desember 1995 um afnám 15% skattafrá- dráttar sem aldraðir höfðu feng- ið vegna tvísköttunnar lífeyris, og er nú komið að þingmönnum utan Reykjavíkur og Reykjaness. Næst munum við skoða hverj- ir sviftu okkur Iaunatengingu við almenna launaþróun í landinu. Þessir landsbyggðarþingmenn samþykktu afnám 1 5% skattafrá- dráttar til aldraðra sem tilkom- inn var, í tíð fyrri ríkistjórnar Davíðs Oddssonar, vegna tví- greidds skatts lífeyris. Guðjón Guðmundsson 4. þm. Vesturlands Sturla Böðvarsson 2. þm. Vest- urlands Magnús Stefánsson 3. þm. Vesturlands Ingibjörg Pálmadóttir 1. þm. Vesturlands Einar K. Guðfinnsson 1. þm. Vestljarða Einar Oddur Kristjánsson 3. þm. Vestíjarða Gunnlaugur M. Sigmundsson 2. þm. VestQ. Hjáimar Jónsson 2. þm. Norð- urlands vestra Páll Pétursson 1. þm. Norður- lands vestra Stefán Guðmundsson 3. þm. Norðurlands vest. Vilhjálmur Egilsson 5. þm. Norðurlands vest. Tómas Ingi Olrich 5. þm. Norðurlands eystra Guðmundur Bjarnason 1. þm. Norðurlands ey. Halldór Blöndal 2. þm. Norð- urlands eystra Valgerður Sverrisdóttir 3. þm.Norðurlands ey. Guðni Agústsson 2. þm. Suð- urlands Isólfur G. Pálmason 4. þm. Suðurlands Þorsteinn Pálsson 1. þm. Suð- urlands Arni Johnsen 3. þm. Suður- lands Arnbjörg Sveinsdóttir 5. þm. Austurlands Egill Jónsson 3. þm. Austur- lands Halldór Asgrímsson 1. þm. Austurlands Jón Kristjánsson 2. þm. Aust- urlands A móti voru : Gísli S. Einarsson 5. þm. Vest- urlands Hjörleifur Guttormsson 4. þm. Austurlands Kristinn H. Gunnarsson 5. þm. Vestfjarða Sighvatur Björgvinsson 4. þm. Vestfjarða Ragnar Arnalds 4. þm. Norð- urlands vestra Lúðvík Bergvinsson 6. þm. Suðurland Margrét Frímannsdóttir 5. þm. Suðurlands Svanfríður Jónasdóttir 6. þm. Norðurl.eystra Steingrímur J. Sigfússon 4. þm. Norðurl eystra. Aldraðir, haldið listanum til haga!

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.