Dagur - 07.11.1997, Side 4
4-FÖSTUDAGUR 7.\ÓVEMBER 1997
FRÉTTIR
Uppbyggmgu Háskólans hraðað
Jakob Björnsson, bæjarstjóri á Akureyri, sagði á bæjarstjórnarfundi á
þriðjudag að Háskólinn á Akureyri væri gleggsta merkið um að vænt-
ingar um aukna menntun á landsbyggðinni befðu gengið eftir. Nokk-
ur fjöldi nemenda væri af höfuðborgarsvæðinu og margir þeirra sett-
ust að á landsbyggðinni að lokinni útskrift. Það tæki hins vegar allt
of langan tfma að byggja skólann upp fyrir 700 nemendur, eða 30 ár
ef núverandi IJárveitingar hækkuðu ekki. Kostnaður næmi um 800
milljónum króna. Menntamálaráðuneytið hefur skipað í nefnd um
hraðari uppbyggingu skólans, en í henni sitja tveir fulltrúar mennta-
málaráðuneytis, einn frá fjármálaráðuneyti og tveir frá Akureyrarbæ.
Akureyringar aftur 15 þixsimd?
Sigríður Stefánsdóttir, Alþýðubandalagi, sagði að vaxandi fjöldi fólks
á Akureyri hefði áhyggjur af stöðu bæjarins, og það kæmi m.a. fram
í viðtalstímum bæjarfulltrúa. Þar mætti nefna ógnvænlegan fólks-
flutning af landsbyggðinni til höfuðborgarsvæðisins og að öll at-
vinnuuppbygging Iandsins færi fram á suðvesturhorni Iandsins með
fulltingi ríkisstjórnarinnar. Heimir Ingimarsson (G) taldi að í ljósi
þróunar mannfjölda yrði Akureyrarbæjar að fagna 15 þúsundasta
íbúanum að nýju í nánustu framtíð. Sigríður vakti athygli á því að á
fundi Sambands sveitarfélaga nk. laugardag væri fyrirhuguð skoð-
anakönnun um nýgerða kennarasamninga og hún varpaði fram þeirri
spurningu hvar við værum stödd ef meirihluti þátttakenda væru and-
vfgir samningunum. Málið yrði síðan enn viðkvæmara ef kennarar
felldu samninginn, sem allt eins mætti búast við.
Tryggingar á röngiim forsendum
Gildanai tryggingasamningur Akureyrarbæjar við VÍS rennur út um
næstu áramót og hefur bæjarráð fallist á tillögu bæjarlögmanns um
að samningurinn yrði framlengdur um eitt ár. Þórarinn B. Jónsson,
Sjálfstæðisflokki, sagði samninginn hafa hljóðað upp á 16,8 milljón-
ir króna árið 1995 en 21,6 millj. króna á sl. ári og hann vildi fá skýr-
ingar á hækkuninni. Hann sagðist líka undrast að bæjarlögmaður og
hagsýslustjóri mæltu með endurnýjun VÍS-samningsins, það væri
gert á röngum og villandi forsendum.
Netþróunin má
ekki stöðvast
„Netveijar eru einhverjir bestu
viðskiptamenn Pósts og síma og
þeim er sífellt að fjölga. Það væri
mjög einkennilegt viðhorf ef
Póstur og sími fer að leggja ein-
hveijar álögur á þennan hóp með
þeim hætti að hann telji sér mis-
boðið,“ segir Björn Bjarnason
menntamálaráðherra.
Björn hefur verið ötull baráttu-
maður fyrir notkun Intemetsins
og hann segir Islendinga standa
vel að vígi. „Okkur hefur tekist á
örfáum árum að komast í
fremstu röð á þessu sviði. Bæði
hvað varðar skólakerfið og eins
tengingar heim-
ila og einstak-
linga. Það er
mjög mikils
virði fyrir fram-
vindu þjóðfé-
lagsins og nú-
tímavæðingu að
þessi þróun
stöðvist ekki
vegna ágrein-
ings um gjald-
skrá,“ segir
menntamála-
ráðherra. Björn Bjarnason menntamálarádherra segir einkennilegt ef Póstur og
— gþ sími ætli að misbjóða netverjum.
Ölöglegt eftirlitsgjald
Lyfjaeftirlitsgjald hef-
ilt ekki stoð í lögiun.
Ríkið þarf að endur-
greiða apótekum
milljónatugi.
Lyfjaeftirlitsgjald, sem Lyfjaeftir-
lit ríkisins hefur innheimt af ap-
ótekum landsins, er að dómi
Héraðsdóms Reykjavíkur án
nægilegrar stoðar í lögum og því
ólögmætt að innheimta það. I
vikunni var ríkið, fyrir hönd
LyQaeftirlitsins, dæmt til að end-
urgreiða Jóni Þórðarsyni, apótek-
ara í Hveragerði, 130 þúsund
krónur vegna lyíjaeftirlitsgjalds
1996, en ljóst er að dómurinn
hefur fordæmi um gjaldtöku af
öllum apótekum og því um mun
hærri upphæðir að tefla, í heild
varla undir 20 milljónum króna.
Jón Þórðarson höfðaði mál
gegn ríkinu sl. vor í því skyni að
fá lyfjaeftirlitsgjaldið endurgreitt,
með þeim rökum að reglugerð
sem heilbrigðisráðherra setti um
eftirlitsgjald vegna lyfjaeftirlits
árið 1996 ætti sér ekki stoð í
lyfjalögum. Apótekarafélagið
mótmælti þessari gjaldtöku og
var mál Jóns prófmál. Sækjendur
vildu meina að um skatt væri að
ræða en ekki þjónustugjald en
því var dómarinn reyndar ósam-
mála. - FÞG
KVOLDSTUND MEÐ
JÓNI BALDVINI 0G BRYNDÍSI
Stjórn Alþýðuflokksins og aðrir vinir og félagar Jóns Baldvins og
Bryndísar efna til kvöldfagnaðar til heiðurs þeim hjónum laugardaginn
8. nóvember n.k. í tilefni þess að þau hverfa nú senn til annara starfa.
Kvöldfagnaðurinn verður í Borgartúni 6 (Rúgbrauðsgerðinni) og hefst
kl. 19:30 með fordrykk. Klukkan 20:30 verður gengið tii borðs og
snæddur veislukvöldverður.
Fjölbreytt dagskrá verður í boði í umsjá listamanna úr hópi vina þeirra
hjóna. Tónskáldin Atli Heimir Sveinsson og Hjálmar H. Ragnarsson
hafa veg og vanda af flutningi hljómlistar og rithöfundarnir Guðmundur
Andri Thorsson og Hallgrímur Helgason sjá um texta og talað mál.
Töframaðurinn Pétur Pókus fremur galdra og gjörninga.
Veislustjóri verður Jakob Frímann Magnússon, fjöllistamaður.
Hljómsveit Andra Bachman leikur fyrir dansi.
Verð miða er 2.500 kr.
Pantanir óskast gerðar á skrifstofu Alþýðuflokksins, Jafnaðarmannaflokks íslands, Alþýðuhúsinu í Reykjavík, sími 552-9244,
og þar verða miðar afgreiddir. Einnig má kaupa miða við innganginn.
Allir vinir Jóns Baldvins og Bryndísar innan og utan Alþýðuflokksins eru hjartanlega velkomnir svo lengi sem húsrúm leyfir.
Eigum góða og skemmtilega kvöldstund með Jóni Baldvini og Bryndísi!
Vinir og félagar Jóns Baldvins og Bryndísar.