Dagur - 07.11.1997, Qupperneq 5
FÖSTUDAGURR 7 .NÓVEMBER 1997 - 5
FRÉTTIR
Mun forystan kljúfa?
Hjörleifur Guttorms-
son segir aö forysta
Alþýðubandalagsins
stefni leynt og ljðst í
klofning með sam-
fylldngarviðræðum.
Hann viH nppgjör á
landsfundi og sér-
framboð flokksins til
Alþingis.
Hjörleifur Guttormsson alþing-
ismaður vill uppgjör um sam-
fylkingarmálin á landsfundi Al-
þýðubandalagsins og sakar for-
ystu þess um að stefna flokkn-
um í klofning; hann sér engan
ílöt á samfylkingu með Alþýðu-
flokknum og skorar á sam-
flokksmenn sína að „söðla um“
og skipta einfaldlega um flokk,
standi vilji til samstarfs.
„Eg hef enga trú á þessu,“
segir Hjörleifur um samfylking-
aráform A-flokkanna. Hann
segir að engin ástæða sé til að
ýta málinu á undan sér fram á
næsta sumar. Verði tillaga fram-
kvæmdastjórnar samþykkt fær
formaður umboð landsfundar til
að ganga til málefnavinnu með
Alþýðuflokknum. Um það segir
Hjörleifur: „Málefnavinnan
svokallaða sldptir ekki sköpum,
það sem skiptir máli er hvort
menn hafa yfirleitt trú á því að
svona „naglasúpa" skili árangri.11
Þá trú hefur hann ekki.
Endurkjöri Margrétar Frímannsdóttir sem formann Alþýðubandalagsins var lýst við
upphaf landsfundar flokksins í gær. Margrét lýsti í setningarræðu 13.landsfundar
flokksins vilja til samfylkingar jafnaðar- og félagshyggjumanna og kallaði einnig eft-
ir skýrri stefnu i sjávarútvegsmálum, en nefndir flokks/ns hafa eki komið sér saman
um hana. Hjörleifur Guttormsson sagði f ræðu í gærkvöld að enginn grundvöllur
væri fyrir samfylkingu með Alþýðuflokki.
Sakar Margréti um klofn-
ingstilburði
Hjörleifur sagði í ræðu í gær-
kvöld á landsfundinum að menn
ætluðu að „flytja flokka og fé-
laga þeirra hreppaflutningi yfir í
allt annað samhengi, á annan
grundvöll en þeir hafa staðið
fyrir.“ Hann sagði að slíkt væri
ávísun á klofning og margt
benda til að „það sé slíkur klofn-
ingur sem núverandi forysta AI-
þýðubandalagsins stefnir að,
leynt og ljóst."
Menn fari bara í Alþýðu-
flokkinn
„Hvað er þeim að vanbúnaði
sem finna málefnalega sam-
stöðu með Alþýðuflokknum að
söðla um?“ segir Hjörleifur um
þá samflokksmenn sína sem
fara fyrir í samfylkingarumræð-
unni. Að mati Hjörleifs væri
æskilegt að fá botn i málið á
fundinum sem nú stendur og
taka ákvörðun um að Alþýðu-
bandalagið standi á eigin fótum
í næstu Alþingiskosningum.
Margrét ítrekar samjylking-
arvilja
Margrét Frímannsdóttir, for-
maður Alþýðubandalagsins, vill
einnig að landsfundur taki skýra
afstöðu í samfylkingarmálum.
„Ég er fús að fara í það verk af
alvöru að vinna að málefna-
samningi milli þessara flokka,“
sagði hún í setningarræðu sinni.
Margrét vill einnig að lands-
fundurinn tali skýrt í sjávarút-
vegsmálum. Starfshópur
flokksins um sjávarútvegsmál
hefur í 2 ár reynt að komast að
samkomulagi um sjávarútvegs-
stefnu, en árangurslaust. Mar-
grét sagðist ekki geta sætt sig við
það ranglæti sem viðgengist f
núverandi kvótakerfi og er ósátt
við að flokkurinn skuli ekki hafa
komið sér saman um skýrar til-
lögur til úrbóta. „Það er ekki
hægt að kenna sig við róttæka
vinstri stefnu en verja um leið
það fyrirkomulag sem við búum
við í sjávarútvegi og afleiðingar
þess,“ sagði formaður Alþýðu-
bandalagsins í setningarræðu á
landsfundi flokksins í gær.
- sjh/vj
Tvísýnt hjá
kcTimirum
„Menn hefðu auðvitað viljað fá
meira,“ segir Eiríkur Jónsson,
formaður Kennarasambands ís-
lands, aðspurður um viðtökur
grunnskólakennara við kjara-
samningi þeirra.
I dag, föstudag, lýkur atkvæða-
greiðslu grunnskólakennara um
nýgerðan kjarasamning. Atkvæði
verða talin í næstu viku.
Urslitin í kosningunum þykja
nokkuð tvísýn, enda þykir mörg-
um kennurum að samningurinn
gefi þeim lítið í aðra hönd þótt
hann feli í sér allt að 33% kaup-
hækkun á samningstíma til árs-
loka árið 2000. Sú kauphækkun
er hlutfallslega mest í grunn-
launum byrjenda en sýnu minni
hjá þeim sem lengri starfsaldur
hafa. Verði samningurinn felldur
skellur á verkfall mánudaginn
17. nóvember nk. og lamar
skólastarf um 40 þúsund grunn-
skólanemenda. - GRH
Sfðustu forvöð fyrir kennara að greiða
atkvæði um kjarasamninginn. Kynningu
er lokið og atkvæði talin i næstu viku.
Eirikur Júnsson, formaður KÍ.
Stuðningur ríkisvaldsins við landbúnað hefur minnkað verulega á síðustu árum.
Landbúnað arfr amlög
minnkað um helming
Þar á ofan hafa framlög stórlega
lækkað til: Búnaðarfélags Is-
lands, sauðfjárveikivarna, fisk-
eldislána, Jarðasjóðs og fleiri
liða.
Framlögin í landbúnaðarkerf-
inu gagnast ekki landsbyggðinni
eingöngu, þáf ' sem stofnanir
greinarinnar eru margar hverjar á
höfuðborgarsVæðinu. Aflvaka-
skýrslan áætlar að „meintur
ávinningur af fjárframlögum rík-
isins til beinnar atvinnusköpunar
á höfuðborgarsvæðinu vegna
sauðfjár- og mjólkurframleiðslu
sé á bilinu 400-500 milljónir
króna“ - þ.e. næstum 10. hluti
heildarframlaganna. - HEI
Árleg framlög ríMsins
gegnum landbúnaðar-
kertfið hafa minnkað
um næstum helming
frá 1991. Um 400
500 miUjóna M. bú-
vörustyrkir fara tH
ReykjavHmr.
Stuðningur ríkisvaldsins gegnum
landbúnaðarkerfið hefur minnk-
að um næstum helming á ára-
lugnum, úr 10,2 milljörðum árið
1991 niður í 5,6 milljarða árið
1995, samkv'æmt útreikningum í
skýrslu Aflvaka. Það ár voru
framlögin öll vegna beingreiðslna
vegna mjólkur- og sauðfjárfram-
leiðslu. Einungis 700 milljónir
voru þá eftir til annars, sem í
rauninni renna að mestu til
Reykvíkinga.
Mest munar að útflutnings-
uppbætur (3,5 milljarðar) lögð-
ust af frá og með árinu 1993.
Einnig hafa lagst af hundruð
milljóna króna framlög til: Líf-
eyrissjóðs bænda, Stofnlána-
deildar, Hríseyjarstöðvarinnar,
graskögglaverksmiðja og endur-
greiðslu á gjöldum í landbúnaði.
ALÞÝÐU-
BANDALAGIÐ
Verkalýðsforiitgj -
ar hnykkja á sam-
fýlkingarkröfu
Breiðfylking verkalýðsforingja
áréttaði í gærkvöld á landsfundi
Alþýðubandalagsins kröfu um að
flokkurinn gangi ákveðið til við-
ræðna um samfylkingu fyrir
næstu alþingiskosningar. Tillag-
an gengur skrefi lengra en tillaga
framkvæmdastjórnar sem fyrir
Iandsfundinum lá. Sett er ákveð-
in dagsetning við það að Alþýðu-
bandalagið sker úr um þátttöku-
vilja í samstarfi við aðra flokka í
júní komandi. Þar með verði
búið að ganga frá öllum málefn-
um sem varða sameiginlegt
framboð A-flokkanna og fleiri.
Að tillögunni standa meðal ann-
ars Grétar Þorsteinsson, forseti
ASÍ, Björn Grétar Sveinsson,
forseti VMSÍ, Halldór Björns-
son, formaður Dagsbrúnar og
Guðmundur Þ. Jónsson, formað-
ur Iðju.
Klofnir í sjávarut-
vegsmálum
Alþýðubandalagsmenn virðist
ekki aðeins klofnir í afstöðu til
samfylkingar vinstri manna held-
ur einnig í utanríkis- og sjávarút-
vegsmálum, samkvæmt drögum
að ályktunum sem liggja fyrir
landsfundi flokksins.
Starfshópi í sjávarútvegsmál-
um tókst ekki að ná samkomu-
lagi og eru þvf Iagðar fram grein-
argerðir um 3 ólíkar leiðir. í
einni er lagt til að veiðiheimildir
verði leigðar út á opnum mark-
aði, í annarri að tekin verði upp
sóknarstýring og í þeirri þriðju
að byggt verði á núverandi kerfi,
en verslun með veiðiheimildir
settar skorður og minni bátar
lúti sóknartakmörkunum.
Bamabætur ekki
tekjutengdar
I drögum um skattamál er lagt til
að tekjutenging barnabóta verði
afnumin; tekinn verði upp fjöl-
þrepa tekjuskattur; þak verði sett
á jaðarskatta, persónuafsláttur
yngri en 20 ára verði millifæran-
legur og tekin verði upp um-
hverfisgjöld.
Varaformaður
kosinn í dag
Varaformaður
Alþýðubanda-
lagsins verður
kosinn á lands-
fundinum í
kvöld en ekki er
vitað til þess að
neinn hyggist
bjóða sig fram
gegn núverandi
varaformanni,
Jóhanni Geirdal.
Ný fram-
kvæmdastjórn flokksins verður
kjörin á laugardag og verði tillög-
ur að nýjum lögum flokksins
samþykktar, kýs hún ritara og
gjaldkera, en samkvæmt gildandi
lögum eru þeir kosnir af lands-
fundi.
Jóhann Geirdal
áfram varafor-
maður?