Dagur - 07.11.1997, Side 8
8- FÖSTUDAGUR 7. NÓVEMBER 1997
FRÉTTASKÝRING
Tfc^ui-
VaxtarverMr hjá B
Dalvíkingiiriim Krist-
jáu Þór jiílíussoii hef-
ur verið hæjarstjóri á
ísafirði frá árinu
1994. Dvöliua þar
segir haun hafa verið
góðau skóla og fjöl-
hreyttaii. Hörmung-
amar í kjölfar snjó-
fióðanna sem féHu á
Súðavík og Flateyri
spHa þar nokkuð stórt
hlutverk.
Þú varst bæjarstjóri á Dalvík í all-
mörg ár áður en þú tókst að þér
bæjarstjóraembættið á Isafirði.
Er það mikil breyting að fara úr
norðlenskum í vestfirskan bæjar-
stjórastól?
„Verkefnin eru í „prinsippinu“
þau sömu en auðvitað dregur það
svolítið dám af landsvæðinu í
hvaða verkum maður er hverju
sinni. Maður sér það ekkert í upp-
hafi starfs hvaða verkefni maður
er að glíma við hverju sinni en
þau hafa verið mjög íjölbreytt hér
á ísafirði. I þessu nýja sameinaða
sveitarfélagi, fsafjarðarbæ, hefur
verið lögð höfuðáhersla á að ná
tökum á sameiningu þessara sex
sveitarfélaga og það hefur gengið
alveg þokkalega vel. Þó hef ég
ekki lent í neinu sáttasemjara-
hlutverki, en maður finnur fyrir
því að íbúar hvers hinna gömlu
sveitarfélaga, jafnt hins smæsta
sveitarfélags sem og hins stærsta,
ísafjarðarkaupstaðar, hafi vissan
vara á sér, og það er eðlilegt," seg-
ir Kristján Þór Júlíusson.
- Hafa íbúarnir skipað sér í
íylkingar eftir því hvar þeir búa í
þessu víðfeðma sveitarfélagi?
„Það var stofnað hverfafélag á
Flateyri af áhugasömum íbúum
og það er gott mál ef íbúarnir
stofna hagsmunasamtök. Þessi
hagsmunasamtök verða ekki bara
þrýstihópur á yfirstjórn sveitarfé-
lagsins, þ.e. bæjarstjórn, bæjar-
stjóra og aðra starfsmenn. Með
stofnun þessa hverfafélags ætla
íbúar Onundarfjarðar að rækta
sína heimasveit og það er hið
besta mál, mjög ánægjulegt fram-
tak. Hér er líka annar félagsskap-
ur sem heitir Landeigendafélag
Sléttu- og Grunnahrepps, sem
einnig er hagsmunafélag. Fleiri
hagsmunafélög gætu einnig séð
dagsins ljós, eins og t.d. á Þing-
eyri, í Holtahverfi eða í Hnífsdal.
Svo má einnig minnast á mjög
starfsöm átthagafélög sem starfa í
Reykjavík.“
- Þessi fjögur ár sem þú hefur
verið bæjarstjóri á ísafirði hafa
verið miklar sviptingar í útgerð-
inni hér og þú fyrir hönd bæjarfé-
lagsins tekið þátt í því. Hafa þessi
mál þróast eins og gert var ráð
fyrir í upphafi?
„Bæjarfélagið kom inn í þetta
sameiningarferli kringum Bása-
fell með eignarhlut sínum í
Sléttanesi og Togaraútgerð Isa-
fjarðar. Það hafa verið vaxtarverk-
ir í Básafelli síðan og það eru
komnar upp vissar efasemdir nú
um það hvort þarna liafi verið
staðið rétt að málum. Eg hef ekki
heyrt nein rök frá þessum úrtölu-
mönnum, þetta eru fyrst og
fremst sleggjudómar þar sem við-
komandi hafa gefið sér að hlut-
irnir hefðu getað gengið öðru vísi.
En í mínum huga er enginn efi
um það að þarna var stigið rétt
spor, og það skref hefði raunar átt
að stíga löngu áður. Eg bið alla
góða menn að íhuga það hver
staðan í útgerð og fiskvinnslu
staðarins var áður en til þessarar
sameiningar kom. A þeim tíma
horfði mjög illa fyrir sumum lyr-
irtækjum hér á ísafirði, m.a. þeim
sem eru inni í sameinuðu Bása-
felli og það lá fyrir mikill áhugi í
nokkur þeirra víðs vegar að af
landinu, m.a. frá Utgerðarfélagi
Akureyringa í Norðurtangann og
kvótann þar sem var töluverður.
En það tókst að verja það fyrir-
tæki, góðu heilli.
Eg bíð því þá sem eru með efa-
semdir nú að hugleiða þá stöðu
sem var uppi áður en Básafell
varð til. Það er mjög rnikið og
erfitt verk framundan að „endur-
gera“ Básafell sem varð til út frá
mjög veikum grunni. Það er helst
Togaraútgerðin sem var sterk,
enda er hún burðarásinn í þessari
sameiningu. Hlutur bæjarsjóðs
ísafjarðar í Básafelli er að nafn-
virði um 70 milljónir króna sem
er um 10% af heildarhlutafénu.
Það hefur verið rætt innan bæjar-
stjórnar að bæjarfélagið yrði ekki
til langframa hluthafi í félaginu.
Þetta er í takt við tíðarandann."
- Það liggja hér við bryggju á
ísafirði mörg skip sem kvóti hefur
verið færður af og eru á söluskrá,
eins og t.d. Gyllir. Svíður fólki í
útgerðarbæ eins og ísfirði ekki að
sjá þessi skip bundin við bryggju?
„Auðvitað svíður mörgum að
sjá þessa fjárfestingu ónotaða,
það á ekki bara við um sjávarút-
veginn, heldur alla fjárfestingu í
atvinnurekstri. En því miður er
staðan þannig að fyrirtækin hafa
ekki næg verkefni fyrir þessi skip,
auðlindin er takmörkuð og að
sama skaði úttektin úr henni,
hún er bundin í kvótum. Afrakst-
ursgeta fiskistofna okkar, aðal-
lega botnfisks, er einfaldlega
minni en afrakstursgeta flotans,
það er hinn sári sannleikur.
Ég er ekki viss um að það hafi
verið rangt af Vestfirðingum að
taka ekki þátt í kapphlaupinu um
uppsjávarfiskakvóta, þ.e. síld og
loðnu, en ég bendi á í allri um-
ræðu um sjávarútvegsmál að Vest-
firðingar hafa verið að vinna í
sama umhverfi og aðrir lands-
menn, það eru allir jafnt settir.
Það er auk þess engin hefð fyrir
loðnuvinnslu á Vestfjörðum, Bol-
víkingar reka þó loðnubræðsluna
Gná. Vestfirðingar hafa ekki farið
ver út úr kvótakerfinu en aðrir
landsmenn en Norðurland hefur
grætt mest en Vestfirðingar hafa
aðeins tapað um 3% á síðasta ára-
tug eða svo. Umræðan hér er hins
vegar mjög viðkvæm vegna þess
hversu fámennt kjördæmið er og
byggir nær eingöngu á fiski.“
- Þú gerðist stjórnarformaður
Samherja hf. þegar fyrirtækið fór
út á hlutabréfamarkaðinn. Tölu-
verðar umræður urðu manna á
meðal á ísafirði um það. Var það
óheppileg ákvörðun fyrir þig sem
bæjarstjóra, sérstaldega eftir að
Samherji og Hrönn sameinuðust
og togarinn Guðbjörg varð ekki
lengur ísfirskur og þú jafnframt
stjórnarmaður í Básafelli?
„Ég hefði ekki tekið þetta að
mér ef svo hefði verið. A öllum
málum er fleiri en ein hlið, en ég
vil taka sérstaklega fram að
stjórnarstörfum í Samherja sinni
ég í mínum frítíma og ef þannig
ber undir, tek ég mína sumarleyf-
isdaga í það. Ég gekk einnig út úr
stjórn Básafells um leið og þessi
ákvörðun lá fyrir. Sumir hafa alls
konar áhugamál og sinna þeim,
t.d. í íþróttum, klúbbstarfi o.fl.
Það vilí svo til að mitt áhugamál
liggur m.a. á sjávarútvegssviði, og
ég er ekki í neinum klúbbi. Ég
hef þó t.d. gengið til rjúpna og
það amast vonandi enginn við
þ/ «
VI.
- Liggur vaxtarbroddur byggðar
á Vestfjörðum í einhverju öðru en
sjávarútvegi?
„Nei, hann verður að Iiggja í
sjávarútvegi en Vestfirðingar hafa
verið á eftir öðrum landshlutum í
sameiningu og hagræðingu sjáv-
arútvegsfyrirtækja, hvort sem
mönnum Iíkar betur eða verr. Því
öflugri sem sjávarútvegsfyrirtæk-
in eru, því betur hefur þeim
gengið að halda í við aðra í grein-
inni. En sjávarútvegur er og verð-
ur undirstaða atvinnulífs á Vest-
fjörðum. Það er þó óhjákvæmi-
legt að menn hafi eitthvað annað
við að vera og sem betur fer eru
hér fyrirtæki í öðrum greinum at-
vinnulífsins. Við höfum t.d.
skipasmíðastöð sem vissulega
byggir á sjávarútvegi, en stjórn-
endur hennar hafa sýnt visst
frumkvæði í nýsmíði. Einnig væri
hægt að nefna fyrirtæki eins og
3X-stál og Póls, og það er verið að
undirbúa stofnun svokallaðs Þró-
unarseturs sem ég bind miklar
vonir við.“
.ar
Kristján segir það sviða að sjá kvótalaus skip bundin við bryggju á ísafirði, rétt eins
og það svíður að sjá alla ónýtta fjárfestingu í atv/nnulífinu.