Dagur - 07.11.1997, Qupperneq 10
10 -FÖSTUDAGUR 7. NÚVEMBER 1997
A* .. róim>
- KJORIN - FRAMIWIN -
Dagskrá 13. Landsfundar Alþýðubandalagsins
Borgartúni 6 dagana 6. - 9. nóvember 1997
FÖSTUDAGUR 7. nóvember
09:00 Lagabreytingar, framsaga - fyrri umræða
10:00 Nefndanefnd skilar niðurstöðu um nefndir
10:15 Sveitarstjómir - kosningar og fleira
12:30 Matarhlé
13:30 Kynning á málefnavinnu - drög að ályktunum (7 mín. framsög-
ur) -kjaramál - skattamál - húsnæðismál - jafnréttismál -
samvinna við aðra flokka - utanríkismál - sjávarútvegsmál -
menntamál - umhverfismál - orkumál - reikningar
14:30 Kaffíhlé
15:00 Kjarabaráttan - stutt erindi forystumanna BHM, ASI
og BSRB - fyrirspurnir
16:00 Almennar umræður um kynningar á málefnavinnu (5 mín.)
18:00 Lagabreytingar, seinni untræða, afgreiðsla
18:30 Kosning varaformanns, ritara og gjaldkera
Tillögur að skipan í framkvæmdastjóm kynntar
19:30 Matarhlé
20:30 Hópar taka til starfa
23:30 Fundarhlé
LAUGARDAGUR 8. nóvember
09:30 Kosning framkvæmdastjómar
10:30 Hópar starfa
12:00 Matarhlé - SELLUFUNDUR
13:30 Hópar skila niðurstöðum - kjömefnd kynnir
uppstillingu í miðstjóm
16:00 Kaffthlé
16:30 Afgreiðsla ályktana Frestur til að bera fram tillögur
um menn í miðstjóm rennur út kl. 18:00
19:30 Matarhlé
20:30 Landsfundarfagnaður - Asbyrgi Hótel Islandi - miðaverð 2.500.-
SUNNUDAGUR 9. nóvember
09:30 Kosning í miðstjóm
11:00 Stjómmálaályktun - umræður - afgreiðsla
13:30 Ungt fólk - þeirra dagskrá
15:30 Landsfundi slitið
Matvæladagur Sjávarútvegsdeildar
Háskólans áAkureyri 8. nóvember 1997 í Oddfellowhúsi
Formáli
13:00. Þorsteinn Gunnarsson (Rektor HA)
Kynning á Sjávarútvegsdeild
13:10. Jón Þórðarson (Forstöðumaður Sjávarútvegs-
deildar HA)
13:15. Hjörleifur Einarsson (Prófessor við Sjávarútvegs-
deild HA)
Matvælarannsóknir á íslandi
13:25. Sigurjón Arason (Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins)
- Rannsóknir í fiskiðnaði.
13:40. Guðjón Þorkelsson (Rannsóknastofnun land-
búnaðarins) - Rannsóknir í kjötiðnaði
14:00 - 14:30. Kaffi
14:30. Einar Matthíasson (Mjólkursamsala Reykjavíkur)
- Rannsóknir í mjólkuriðnaði
14:45. Hannes Hafsteinsson (Iðntæknistofnun íslands)
- Kynning á verkefnum tengdum matvælarannsóknum
á Iðntæknistofnun íslands
Pallborðsumræður
Menntun og rannsóknir í matvælaiðnaði
15:30 -17:00 Stjórnandi: Sigurgeir Þorgeirsson,
framkvæmdastjóri bændasamtakanna.
Þátttakendur:
Bjarni Kristinsson (Iðnþróunarfélag Eyjafjarðar)
Helgi Jóhannesson (Kjötiðnaðarstöð KEA)
Elín Björk Jóhannesdóttir (Sól hf)
Sigurjón Arason (Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins)
Guðjón Þorkelsson (Rannsóknastofnun landbúnaðarins)
Einar Matthíasson (Mjólkursamlag Reykjavíkur)
Hannes Hafsteinsson (Iðntæknistofnun íslands)
17:00 - 18:30. Kynning matvælafyrirtækja á
Eyjafjarðarsvæðinu.
Allir velkomnir !!!
FRÉTTTR
rD^ir
Lííeyrissjóðir taM
við af rfldnu
Formadur Trygginga-
ráðs mælir með því að
lifeyrissjóðir landsins
taki að sár að greiða
ellilífeyrinn sem fólk
fær nn frá Trygginga-
stofnun og ríkið end-
urgreiði síðan sjóðun-
um.
Bolli Héðinsson, formaður
Tryggingaráðs, telur rétt að fela
lífeyrissjóðunum að reka opin-
berar lífeyrisstryggingar fyrir rík-
isvaldið. Tryggingastofnun ann-
ast sem kunnugt er greiðslur á
ellilífeyri almannatrygginga, en
Bolli telur affarasælast að lífeyr-
issjóðirnir greiði hann um leið og
Bolli Héðinsson, formaður Trygginga-
ráðs, mælti fyrir róttækum breytingum
á almannatryggingakerfinu á ársfundi
Tryggingastofnunar.
greiddur er áunninn lífeyrir í við-
komandi sjóði.
í ræðu sem Bolli flutti á árs-
fundi Tryggingastofnunar í gær
sagði hann m.a. að til skamms
tíma hefðu megintekjur stórs
hluta ellilífeyrisþega verið frá
Tryggingastofnun, en nú fengju
æ fleiri jafnframt einhverjar
greiðslur úr lífeyrissjóði. Spyrja
mætti „hvort hagsmunum þeirra
væri ekki betur borgið með þeim
hætti að lífeyrissjóðirnir, sem
þeir eiga hvort sem er aðild að,
greiddu þeim út allan þann elli-
lífeyri sem þeir eiga rétt á, en
ríkissjóður endurgreiddi sjóðun-
um lífeyrishluta ríkisins."
Bolli sagði að vel mætti hugsa
sér að sjóðirnir tækju einnig að
sér að sjá um greiðslur til þeirra,
sem ekki væru í neinum lífeyris-
sjóði „og væri þá öllum eiginleg-
um lífeyristryggingum hætt í
Tryggingastofnun og þær fluttar
alfarið til lífeyrissjóðanna."
Kvótakerfið aldrei
trygga ra í sessi
Umhverfismál,
menntim og vísindi á
oddinn. Dægurmálin
í skugga framtíðar.
„Ég held að það sé hægt að segja
það að kvótakerfið hafi ekki ver-
ið f annan tíma tryggara í sessi.
Bæði forsætisráðherra og utan-
ríkisráðherra og áður sjávarút-
vegsráðherra hafa lýst því skil-
merkilega yfir að þetta sé það
sem við ætlum að búa við og
verði ekki notað sem skatttekju-
stofn,“ segir Kristján Ragnars-
son, formaður LIU.
Þetta öryggi útvegsmanna með
kvótakerfið og samstaða þeirra
um fiskveiðistjórnunina hefur
gert það að verkum þeir ætla sér
meiri tíma til að horfa til fram-
tíðar í stað þess að þurfa að ein-
beita kröftum sínum alfarið til
dægurmála. I það minnsta ekki í
jafn ríkum mæli og verið hefur,
þótt þeir þurfi jafnan að vera
með á hraðbergi sjónarmið sín
til kvótans og veiðileyfagjalds
þegar á þarf að halda. Þeir ótt-
ast ekki heldur gagnrýni sumra
stjórnarandstæðinga á kvóta-
kerfið og telja að það tryggi kerf-
ið frekar í sessi en hitt.
Undantekning
Formaður LÍU segir að það hafi
því þótt við hæfi að undirstrika
þessa áherslubreytingu til fram-
tíðar með opnuauglýsingu í
Morgunblaðinu sl. þriðjudag.
Þarna hafi hinsvegar verið um
undantekningu að ræða fremur
en að það sé stefna LIÚ að koma
skilaboðum sínum á framfæri
með auglýsingum eins og t.d.
stjórnmálaflokkar. I þessari nýju
útvegsstefnu er m.a. lögð áhersla
á framfarir, þekkingu, arðsemi,
réttindi og skyldur, umhverfið,
jafnræði, umheiminn, fiskveiði-
stjórnun, hlutafjárvæðingu,
byggðaþróun, vísindi og kynn-
ingu. Til merkis um samstöðuna
innan útvegsmanna fylgdu með
auglýsingunni eiginhandarárit-
anir allra formanna aðildarfélaga
LIÚ. í framhaldinu er síðan ætl-
unin að setja á fót nefnd um um-
hverfismál og aðra um menntun,
vísindi og rannsóknir. Þeir sem
valdir verða í þessar nefndir fá
síðan 12 mánuði til að búa til
stefnu útvegsmanna í þessum
tveimur málaflokkum. — GRH
Sigríðiir
ekki Sigrún
I tónlistargagnrýni blaðsins á
miðvikudaginn var rangt farið
með nafn söngkonu. Hún heit-
ir Sigríður Gröndal og er beðist
velvirðingar á rangherminu.
R E S T AAU R A N T
STRANDGÖTU 49 - SÍMI 461 1617
‘fu ífá Ijf]
Framreiðslumaður óskast
Einnig starfsfólk í sal á Veitingahúsið Bing Dao,
Strandgötu 49, Akureyri.
Upplýsingar í síma 461 1617.
Flokksstjórnarfundur
Haldinn verður flokksstjórnarfundur
hjá Alþýðuflokknum
laugardaginn 8. nóv.
kl. 13 á Grand hótel
í Reykjavík.
Fundarefni
samstarf jafnaðarmanna.