Dagur - 08.11.1997, Blaðsíða 1

Dagur - 08.11.1997, Blaðsíða 1
Verð í lausasölu 200 kr. 80. og 81. árgangur - 212. tölublað Hundruð bíða meðferðar á Vogi Ekkert lát á straumi fólks í meðferð. Mörg- um vísað frá vegna plássleysis. Aukið álag á starfsfólk. Með- ferðartími styttur. Á fjórða hundrað manns eru á biðlistum hjá SÁA til að komast í meðferð vegna áfengis- og vímu- efnaneyslu. Þetta álag hefur ver- ið nær viðvarandi síðan sumarið 1995 þegar ungt fólk fór að hóp- ast inn á Vog eftir að stórfelld aukning varð í amfetamínneyslu fólks 25 ára og yngri. Þá bendir ekkert til þess að þessi mikla eft- irspurn eftir meðferðarúrræðum muni minnka á næstunni, nema síður sé. „Þetta þýðir í dagsins önn að við erum að neita fólki um þjón- ustu sem væri full þörf á að veita strax,“ segir Þórarinn Tyrfings- son, yfirlæknir á Vogi. Hann seg- ist ekki vilja neinum það hlut- skipti sem hann býr við að þurfa að velja 7-8 einstaldinga á degi hverjum af þessum fjölda sem bíður eftir plássi. Þórarinn segir að þeir hafi brugðist við þessu með því að stytta meðferðartímann inn á Vogi og auka aðstoð á göngu- deildum. Það hefur hins vegar ekki dugað til. Sem dæmi þá hef- ur meðaUegutími á Vogi styst úr því að vera frá 10,5-11,5 dagar niður í 9 daga. Legudagar á ári hafa verið um 24 þúsund en ár- legar innritanir hafa verið um 2 þúsund. Komið til að vera „Eg er mest hræddur um að þetta Á hverjum degi þarf að neita fólki um meðferð, segir Þórarinn Tyrfingsson yf- irlæknir. sé komið til að vera,“ segir Þórar- inn aðspurður um þróunina í þessum efnum. Hann bendir á að þegar ungt fólk kemur í með- ferð þurfi það lengri tíma enda þolinmóðara verk að fást við þá yngri en þá eldri. Sé miðað við þær árstíðabundnu sveiflur sem verða í fjölda þeirra sem biðja um aðstoð má ætla að fyrstu mánuð- irnir eftir áramót verði þyngri en aðrir. Þrátt fyrir þennan mikla fjölda sem bíður eftir plássi bendir fátt eitt til þess að stjórnvöld leggi fram meiri fjármuni til reksturs SÁA. I það minnsta hafa framlög stjórnvalda ekki aukist á Iiðnum árum nema síður sé. I það minnsta hefur SÁA ekki séð sér fært að fjölga starfsfólki þrátt fyr- ir aukið álag né heldur að bæta við sjúkrarými. -GRH Bana- slys við Eyrar- bakka Banaslys varð um áttaleytið í gærmorgun á þjóðveginum á móts við Eyrarbakka þegar veg- farandi varð fyrir bíl. Sá sem lést var að koma úr afplánun á Litla- Hrauni. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Selfossi virðist sem maðurinn hafi verið að ganga yfir veginn þegar hann varð fyrir bílnum og íést sam- stundis. Viðkomandi var dökkklæddur en myrkur og slydda var þegar slysið átti sér stað. Ekki er talið að ökumaður bílsins hafi ekið hratt eða ógæti- lega. Talið er að sá sem Iést hafi ætlað að húkka sér far í stað þess að bíða eftir áætlunarbif- reiðinni sem er þarna um níu- leytið á morgnana. -GRH Handboltameim í SMm '' f' í 1 A , T MMmm W 'mær h rW&kif \ f&i&Á— fef §4 if KA menn eiga strangan dag fyrir höndum er þeir mæta firnasterku liði Pivo Varna Lasko i riðlakeppni meistaradeildar Evrópu. I liði Lasko eru 16 landsliðsmenn, en auk leikmanna fylgir liðinu hópur stuðningsmanna og fréttamanna, vel á annað hundrað manns. Hópurinn kom til Akureyrar i gær með leiguvél beint frá Slóveníu og mun vélin staldra hér við þar til að leik loknum. Gríðarlegur áhugi er á handknattíeik i Sióveniu og velti Lasko 100 milljónum á siðasta ári. Nánar er fjallað um leikinn á síðu 12 í blaðinu. Skulda 50 niilljúnir Eiginfjárstaða Alþýðubandalags- ins er neikvæð um rúmar fimm- tíu milljónir króna. Þetta kom fram á landsfundi flokksins þeg- ar reikningar voru lagðir fram. Tæplega tuttugu milljóna tap var á rekstri Alþýðubandalagsins árið 1995 og eiga rekstur Viku- blaðsins, kosningar og for- mannsslagur drýgstan þátt í tap- inu. Rekstrartap ársins 1996 var tólf milljónir króna, en inn í þeirri tölu eru óreglulegir liðir og eitthvað af gjöldum fyrra árs. Tap af reglulegri starfsemi v'ar hins vegar ríflega sjö milljónir króna. Sjú einnig bls. 5 og Ritstjórnarspjall bls 7 Dagur stvrkir stoðuna Ný könnun Félagsvísindastofn- unar sýnir að daglegur lestur á Degi hefur aukist um 20% frá síðustu könnun sem gerð \'ar um mánaðamótin mars-febrúar. Aukningin er mest á höfuðborg- arsvæðinu, þar sem meðallestur hefur nánast tvöfaldast. Sjá bls. 5 Ný Hríseyjar- ferja smíouð Samönguráð- herra, Hall- dór Blöndal, hefur óskað eftir því við ríkisstjórnina að heimilað verði að hefja smíði nýrrar Hríseyjarferju. Samkvæmt út- tekt Sigurðar Ringsted, verk- fræðings hjá Utrás, mun nýja ferjan verða um 22,5 metrar að Iengd, 6 metrar á breidd og taka um 130 farþega. Kostnaður við smíðina er áætlaður 115 milljónir króna. GG 1 Rútubíl- M * : ■; :ís 4 i ! Glæpur og HBgk. - . stjóriun refsing i - - og Njála . ‘rJ, j Blað 2 Uy • 1 bls. 8 9 BIACK&DECKER Handverkf æri SINDRI -sterkur í verki BORGARTÚNI 31 • SÍMI 562 7222 • BRÉFASÍMI 562 1024

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.