Dagur - 08.11.1997, Blaðsíða 9

Dagur - 08.11.1997, Blaðsíða 9
LAVGARDAGUR 8. NÓVEMBER 1997 - 9 rD^tr. fsingar leysi ekki allan vanda. umfjöllun fjölmiðla um afbrot væri mun meiri og „hasarkenndari" á þessum áratug en áratugina á und- an - afbrot eru orðin að eftirsóknar- verðri söluvöru. Helgi greindi frá niðurstöðum rannsókna sem sýna að jafnvel stór- hertar refsingar hafi almennt ekki meira en tímabundin áhrif í mesta lagi á tíðni afbrota. Hafa verður í huga að mörg ofbeldisverk, eins og manndráp, eru framin í hita augna- bliksins án mikillar fyrirhyggju og því kemur kalt mat á refsingu ekki til álita, enda gjarnan um að ræða persónulega harmleiki. Einnig er fæling refsingar minni hjá þeim sem Iifa fyrir utan hið borgaralega mynstur og fyrir suma lítið áfall að sitja inni í eitt til tvö ár Iengur eða skemur við frítt fæði og húsnæði. „Við verðum að líta til fleiri þátta í glímunni við aíbrot en að einblína eingöngu á nauðvörn samfélagsins; þungar refsingar," sagði Helgi í lokaorðum sínum og nefndi að þeg- ar tengsl einstaklinga við hinar ýmsu stofnanir þjóðfélagsins - fjöl- skyldu, skóla, vinahópinn - eru já- kvæð og sterk dregur það jafnframt úr líkunum á afbrotum. FRÉTTIR Farsímamast- ur ekki leyft Ekki fæst leyfi á Sel- fossi fyrir 50 m háu mastri íslenska far- símafélagsins. Bæjarráð Selfoss hefur hafnað umsókn Islenska farsímafélags- ins um leyfi til uppsetningar á 50 m háu fjarskiptamastri í landi Haga á Selfossi, sem stendur skammt sunnan við kaupstað- inn. Þetta var samþykkt á fundi ráðsins á fimmtudag. í bókun ráðsins segir að leyfi fyrir mastri á þessum stað væri ekki í samræmi við aðalskipulag Selfoss, sem gildir fram til ársins 2015. Þá hafi og komið fram af hálfu Flugklúbbs Selfoss að ekki sé ráðlegt af öryggisástæðum að reisa 50 metra hátt mastur í ná- grenni flugvallarins. A grund- velli þessara röksemda hafni bæjarráð umsókninni. „Við fögn- um þessari niðurstöðu," sagði Sigurður Karlsson, formaður Flugklúbbs Selfoss, í samtali við Dag um þessa niðurstöðu máls- ins. „Líklega verður aðeins eitt mastur reist á þessum slóðum, það er við Jórvík í Sandvíkur- hreppi og við erum núna í samn- ingaviðræðum við hreppsnefnd- ina þar um þau mál,“ sagði Arn- þór Halldórsson, framkvæmda- stjóri Islenska farsímafélagsins, í samtali við Dag. Hann sagði varðandi mastrið við Haga sem áformað hefði verið að setja upp, að þá hefði verið leitað álits Flugmálastjórnar um staðsetn- ingu þess, þar sem Hagi er ekki nema í um 400 m ljarlægð frá Selfossflugvelli. Hefði flugmála- stjórn engar athugasemdir gert við mastrið í því sambandi. Seg- ir Arnþór að þessvegna hafi mót- mæli einkaflugmanna á Selfossi, komið sér á óvart. — SBS Sko ö anaköimun vekur undrun Laimanefnd sveitarfé- \~~7~ 'li'' ?/' - laga boðar til laima- málaráðstefnu í dag, þar sem m.a. verður gerð grein fyrir kjara- samningum við kenn- ara. í lok fundarins er samkvæmt fundarboði gert ráð fyrir skoð- anakönnun þar sem kannaður verður hugur þeirra sveitar- stjórnarmanna sem sækja fund- inn til kjarasamningsins sem gerður var nýlega við kennara. Sigríður Stefánsdóttir, bæjar- fulltrúi á Akureyri og stjórnar- maður í Sambandi íslenskra sveitarfélaga, segir það undar- legt að efna til þessarar skoðana- könnunar þar sem launanefndin hafi formlegt umboð til að ganga frá samningum og því geti þetta ekki verið nein atkvæðagreiðsla. Hún segist ætla að taka málið upp á stjórnarfundi sem er fyrir Sigríður Stefánsdóttir. ráðstefnu launanefndarinnar. „Hvað ætlar fólk að gera í framhaldinu ef meirihluti fund- armanna er opinberlega á móti nýgerðum kjarasamningi? At- kvæðagreiðslu kennara um samninginn er lokið svo niður- staða þessarar skoðanakönnunar hefur engin áhrif á niðurstöður hennar sem verður birt í næstu viku,“ sagði Sigríður Stefáns- dóttir. — GG Verðlækkun á raf- magni um áramót Verð á rafmagni frá Raf- mangsveitu Reykjavfkur, RR, lækkar á næsta ári um 2-3%. Hugsanlegt er að lækkun komi til framkvæmda strax í ársbyrj- un. Verðlækkunin mun ekki leiða til þess að arðgreiðslur RR til borgarsjóðs verði eitthvað minni. Talið er að umrædd lækkun hafi í för með sér um 120 milljóna króna heildarlækk- un á raforkukostnaði viðskipta- vina RR. Fyrir meðalnotenda í íbúðarhúsnæði mundi 3% verð- lækkun nema um 905 krónum á ári, eða 150 krónur fyrir hvern útsendan rafmagnsreikning. Raforkureikningur matvöru- verslunar mundi hinsvegar lækka um 45 þúsund krónur á ársgrundvelli og hjá iðnaðarfyr- irtækjum og bönkum um 187 þúsund krónur. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir. Þetta kom fram í svari borgar- stjóra við fyrirspurn sjálfstæðis- manna um lækkun raforkuverðs í borgarráði. — GRH | ^iilý jíiiij St. Georgsgildið á Akureyri stendur fyrir leiðalýsingu í kirkjugarðinum eins og undanfarin ár. Tekið á móti pöntunum í símum 462 2625 og 462 4225 til 20. nóvember. Verð á krossi er kr. 1.500,- Lýst verður frá 30. nóvember. Þeir sem vilja hætta tilkynni það í sömu símum. Þeir sem eiga ógreidda gíróseðla vinsamlegast greiðið þá sem allra fyrst. qpStelÐur í stjórnmálum U U Hvað vilja þær, hvernig vegnar þeim? Opinn fundur Kvenréttindafélags íslands á Kornhlöðuloftinu miðvikudaginn 12. nóv. kl. 20.30. Ávarp: Sigríður Lillý Baldursdóttir, formaður KRFÍ Framsögumenn: Helgi H. Jónsson, tréttastjóri Ásdís Halla Bragadóttir, formaður SUS Soffía Guðmundsdóttir, fv. bæjarfulltrúi á Akureyri Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, borgarstjóri Rýnar: Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir Arnþrúður Karlsdóttir Sólveig Pétursdóttir Margrét K. Sigurðardóttir Svala Jónsdóttir Össur Skarphéðinsson Aðalheiður Sigursveinsdóttir Hreinn Hreinsson Kristjana Bergsdóttir Árni Mathiesen Inga Jóna Þórðardóttir Sigurður Tómasson Laugardagsgetraun Getraunakerfið H-17808 Enska getraunakerfið H-17808 hefur gert margan Englendinginn ríkan að undanförnu. Nú hefur það einnig slegið í gegn í Svíþjóð og sem dæmi hafa hverjar 500 kr. sænskar meira en sexfaldast síðustu 5 leikvikur. 16x5000= u.þ.b. 300.000 ísh Munt þú verða ein/n hinna heppnu? Sendu þá nafn þitt og heimilisfang og fáðu fríar. upplýsingar um hvernig eigi að taka þátt. Upplýsingar sendist til: Redaktör Hans Nilsson, SVENSKA TIPSBOLAGET, Poppelgatan 28B, 213 62 Malmö, Sweden. ^ ° F N A Ð Verslunarrekstur veiðimannsins Hafnarstræti 5er til leigu Fágun byggð á íslenskri hefð Tilvalið tækifæri fyrir þá, sem hafa áhuga á að skapa sér sjálfstæðan atvinnurekstur. Nánari upplýsingar veita Lögmannsstofa Þorsteins Eggertssonar hdl., sími 581 4011, ogVitund efh., sími 562 0086

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.