Dagur - 08.11.1997, Page 2
Ða^ttir
LAUGARDAGUR 8 . NÓVF.MBER 19 9 7
FRÉTTIR
Áhorfendur fylgjast spentir með nokkrum kokkum í keppni á Ólympíuleikunum í St. Gallen í Sviss. mvnd: bfuánn júnsson.
Stefnaá ólympíuleika
ungra iðnaðarmauna
íslenskir iðnaðarmenn
hafa hug á að keppa á
næstu ólympíuleikum
ungra iðnaðarmanna í
Kanada næsta haust.
„Ég held að það sé engin spurning að
við eigum eftir að taka þátt í Olympfu-
leikum ungra iðnðarmanna, fremur
hversu marga keppendur við sendum
og hvenær. Já, við stefnum á Montr-
eal haustið 1999 - en tíminn er að vísu
ansi stuttur," sagði Bijánn Jónsson hjá
Iðnnemasambandinu, sem slóst í hóp-
inn með sendinefnd frá Danmörku,
sem einnig er að íhuga þátttöku, á
leikana sem haldnir voru í Sviss í júlí
í sumar. Þar kepptu um 540 manns,
frá 33 þjóðum, í 40 iðngreinum.
Ólympíuleikar ungra iðnaðarmanna
hafa verið haldnir annað hvert ár frá
1950.
Brjánn sagði undirbúning og þátt-
töku í leikunum kosta töluverða pen-
inga, svo finna þurfi styrktaraðila.
Skilyrði fyrir þátttöku er að land-
skeppni hafi farið fram heima og að
keppendur séu 22ja ára eða yngri. „Við
erum að vísu þegar með Iandskeppni í
einhverjum keppnisgreinum, eins og
hársnyrtingu, matreiðslu og fram-
reiðslu."
Og erkannski mögulegt að gera hár-
greiðslu jafn spennandi og handbolta?
Brjánn sagði 155.000 áhorfendur hafa
sótt leikana. Þar sem keppni í hverri
grein taki yfirleitt þrjá daga sé auðvitað
ekki mikið um að vera allan tímann.
„En það er samt gaman að fylgjast
með. Enda sýndi sjónvarpið í Sviss frá
leikunum og ég sá lið frá mörgum öðr-
um löndum við upptökur."
Ég held líka að það sé mikilvægt
fyrir okkur að komast inn á þennan al-
þjóðlega mælikvarða og bera okkur
saman við aðra. Það mundi leiða til
framfara og i án efa auka áhuga lands-
manna á iðnmenntun.“ Brjánn sagði
það samdóma álit fulltrúa atvinnulífs-
ins frá Svíþjóð, írlandi og Noregi, sem
hann hitti að máli, að Ieikarnir væru
lyftistöng fyrir almenna starfsmennt-
un. Og að öll umfjöllmi um þátttöku
Iands og iðngreinar í Ólympíuleikun-
um yki áhuga ungs fólks og aðsókn að
viðkomandi grein.
Vonandi lendum við þó ekki í nýju
„gleöibankadæmi" líkt og Norðmenn á
sínum fyrstu leikum. Þeir sendu 8
keppendur og reiknuðu jafnvel með
sigrum, en enduðu óvart í neðsta sæti
í öllum 8 riðlunum. A síðustu leikum
voru 3 Norðmenn í efstu sætum. - HEl
Jólabókaflóðið er tim það bil að skella á og
taugatitringur er farinn að gera vart við sig hjá
forsvarsmönnum forlaga. Þannig skrifaði Hild-
ur Hermóðsdóttir, ritstjóri bama- og unglinga-
efnis hjá Máli og menningu, grein í Morgunblað-
ið á dögunum þar sem hún kvartaði sáran undan
ritdómum Sigrúnar Klöru Hannesdóttur um
bamabækur og sagði þá einkennast af sleggju-
dómum. Bókaforlögin eiga mikið midir því að
bækur seljist og góð gagruýni hjálpar oft upp á
söluna á sama hátt og slæm gagmýni kann að
draga úr henni. í Heita pottinum fmnst'mönn-
um hins vegar að þeir sem starfi að útgáfumál-
um eigi að finna sér eitthvað þarfara að gera en
agnúast og skammast út í gagnrýnendur sem era
jú ráðnir til að lýsa skoðunum sínum, óháð því
hvort þær komi forlögunum vel eða ifla.
Akureyrarlistinn hefur vakið
mikla athygli pottverja, ekki
síst sú staðreynd að Sigríður
Stefánsdóttir, sem er að draga
sig út af framboðslista, virðist
binda miklar vonir við að list-
inn nái meirihluta. Nú segja
stjómmálaáhugamenn á Akureyri í fullri alvöra
að innan Akureyrarlistans séu margir sem gætu
hugsað sér Sigríði sem bæjarstjóra ef það gengi
eftir að listimi næði meirihluta...
Samsæriskenningamar eiga sitt
blómaskeið þessa dagana, enda
mikil átök milli sameiningar-
sinna og hinna í A-flokkunum.
T.d. velta menn því fyrir sér
hvcrs vegna Kristinn H. Gunn-
arsson sé orðinn svo ákafur sam-
einingarsinni. Ekki skortfr skýringar og ein sem
heyrðist í pottinum er svona: Sameiningarshm-
ar bentu Kristni á að Össur myndi draga sig í hlé
í huggulegan ritstjórastól. Þá gæti Sighvatur
flutt sig suður til Reykjavíkur og Kristinn verið
einn kóngur í jafnaðarmannaríki sínu fyrir vest-
an...
Línuritin sýna
fjögurra daga
veðurhorfur á
hverjum stað.
Línan sýnir
hitastig, súluritið
12 tfma úrkomu
en vindáttir og
vindstig eru
tilgreind fyrir
neðan.
Norðan- og
norðaustanátt,
víða allhvasst
eða hvasst um
norðvestanvert
landið, en
mun hægari í
öðrum lands-
hlutum. E1 og
vægt frost um
norðanvert
landið, en
úrkomulaust
og hiti 0-3 stig
vestra.
Færd á vegum
Hálka er í Þrengslum og flughált er á Hellisheiði. Einnig er hálka á
Fróðárheiði, Holtavörðuheiði og Öxnadalsheiði. Hálka og skafrenningur
er víða á Vestfjörðum og flughált á Steingrímsfjarðarheiði. Á
Norðausturlandi og Austurlandi er hálka og hálkublettir á heiðum.
Greiðfært er um aðra þjóðvegi landsins.