Dagur - 08.11.1997, Qupperneq 5
LAUGARDAGUR 8.NÓVEMBER 1997 -
Hér leyn-
ist fólk
FRÉTTIR '
Lesendiun Dags
Starfsmenn Dagsprents skoða Dag eftir breytingar sem á blaðinu voru gerðar á dögunum. F.v.
Marteinn Júnasson framkvæmdastjóri, Birgir Guðmundsson aðstoðarritstjóri og Stefán Jón Haf-
stein ritstjóri.
Dagur hefur styrkt
sig verulega í sessi að
undanfömu meðal
þjóðariunar ef litið er
á nýja fjölmiðlaköun-
un Félagsvísinda-
stofnunar.
20% fleiri lesa nú blaðið daglega
en í síðustu könnun. A landinu
öllu þýðir þetta 12% meðallest-
ur á tölublað.
Aukningin er mest á höfuð-
borgarsvæðinu, þar sem meðal-
lestur hefur því sem næst tvö-
faldast frá síðustu könnun.
Einnig hefur blaðið styrkt stöðu
sína á Iandsbyggðinni um eitt
prósentustig og lesa nú 22%
fólks utan höfuðborgarsvæðisins
blaðið daglega samanborið við
41% sem Iesa Morgunblaðið. Er
þessi aukning athyglisverð sér-
staklega í ljósi þess að lestur DV
og Morgunblaðsins stendur í
stað en Morgunblaðið hefur þó
tapað þremur prósentustigum á
höfuðborgarsvæðinu frá síðustu
könnun.
Ekki virðist munur á vikudög-
um þegar meðallestur Dags er
skoðaður. Þannig sjá 12-13%
þjóðarinnar blaðið, en bæði hjá
DV og Morgunblaðinu er um
nokkrar sveiflur að ræða. Dagur
hefur ennfremur styrkt stöðu
sína meðal ungs fólks á landinu.
Þannig tvöfaldast lesendahópur
20-24 ára og 50% aukning er hjá
25-34 ára.
Könnunin var gerð á tímabil-
inu 12.-18. október, eftir að nafn
Dags-Tímans var stytt í Dag.
Jafnframt voru gerðar veigamikl-
ar breytingar á blaðinu, það
stækkað og útliti þess breytt.
Auk þess var ritstjórn blaðsins
stórefld með nýjum starfskröft-
um, ásamt því að nýir efnisþætt-
ir voru teknir upp. Þessar breyt-
ingar virðast hafa fallið í góðan
jarðveg hjá lesendum ef marka
má könnun Félagsvísindastofn-
unar nú.
Umsjónarfé-
lag ein-
h v e r f r a
stendur fyrir
málþingi á
sunnudag í
R á ð h ú s i
Reykjavíkur
og fyrirlestri
í dag á Akur-
eyri um fötl-
un ein-
hverfra og
fjölskyldur
þeirra. Gestir málþingsins verða
Sean og Judy Barron. Sean sem
er einhverfur skrifaði bókina:
„Hér leynist drengur" ásamt
móður sinni. Bókin fjallar um
einkenni einhverfu og áralanga
baráttu þeirra við fötlunina og
stórkostlega sigra.
Erindi þeirra á Akureyri verð-
ur í Stássinu í dag ldukkan 14.00
, en málþingið hefst á morgun
klukkan 13.00. Forseti Islands
Olafur Ragnar Grímsson mun
ávarpa málþingið og auk
mæðginanna munu fleiri fyrir-
lesarar, bæði einhverfir og að-
standendur þeirra flytja erindi.
Málþingið er opið almenningi.
Úlafur Ragnar Grímsson
ávarpar þingið.
Enn einn samningafundurinn var boðaður í deilu hljóðfæraleikara i Sinfóníuhljómsveitinni með viðsemjendum þeirra í Karphúsinu í gær. Þórir
Einarsson sáttasemjari á því þó ekki að venjast að kröfugerðin sé sett fram með yndisfögrum fiðlutónum eins og tilfellið var í gær, enda
brosir sáttasemjari mynd: e.ól
Verkfall boðað
hjá Sinfóníimiii
Hjörleifur eiiui
Lágmarkslaiui hækki
miirnst í 100 þúsund
krónur. Mótmæli í
Háskólabíói. Tón-
leikagestum hrugðið.
Fastráðnir hljóðfæraleikarar hjá
Sinfóníuhljómsveit Islands hafa
samþykkt að boða til tímabund-
ins verkfalls í lok mánaðarins
hafi samningar ekki tekist fyrir
þann tíma. AIls greiddu 63 af 70
hljóðfæraleikurum atkvæði um
verkfall og samþykktu 60 verk-
fallsboðunina sem afhent var
samninganefnd ríkisins í Karp-
húsinu í gær.
Hlíf Sigurjónsdóttir, fiðluleik-
ari og talsmaður hljóðfæraleik-
ara í Sinfóníuhljómsveitinni,
segir að þeir vilji að lágmarks-
laun byrjenda hækki úr 80 þús-
und krónum á mánuði í minnst
100 þúsund krónur. Hún bendir
einnig á að flestir hljóðfæraleik-
arar eigi að baki langt nám auk
þess sem þeir leggja sjálfir til þau
hljóðfæri sem þeir leika á.
Tónleikagestiun brugðið
„Þetta var svo áhrifamikið að það
brá öllum. Eg sá fólk sem var að
ganga inn í salinn að það stopp-
aði í miðjum sporum,“ segir Hlíf
um viðbrögð tónleikagesta við
mótmælum hljóðfæraleikara um
seinaganginn í samningaviðræð-
um þeirra við ríkið. Þeir hafa
verið samningslausir það sem af
er þessu ári og varla fengið við-
ræður um Iaunakröfur sínar.
Mótmælin voru í því fólgin að
rétt áður en sveitin hóf að leika
9. sinfóníu Mahlers í Háskóla-
bíói í fyrrakvöld, afhentu hljóð-
færaleikarar tónleikagestum
dreifibréf með upplýsingum um
gang kjaraviðræðna og starfsað-
stöðu þeirra. Alíka uppákomur
eru afar sjaldséðar hjá starfs-
mönnum hljómsveitarinnar ef
ekki einsdæmi. Hlíf segir að
þetta endurspegli einungis þá
uppsöfnuðu óánægju sem ríkir
meðal hljóðfæraleikara. Hún
minnir á að á sama tíma og nán-
ast ekkert hefur verið að gerast í
launamálum þeirra hefur verk-
efnum sveitarinnar fjölgað með
tilheyrandi álagi á starfsmenn.
Hörður Sigurgestsson, stjórn-
arformaður Sinfóníunnar og for-
stjóri Eimskips, vildi ekki tjá sig
um málið í gær og vísaði á Run-
ólf B. Leifsson, framkvæmda-
stjóra Sinfóníunnar. Ekki náðist
í Runólf í gær sem svaraði ekki
skilaboðum. -GRH
Flest hendir til að
málamiðlimartiHaga
uin samfyUdngu
vinstri ílokkaima
verði samþykkt á
landsfundi Alþýðu-
handalagsins um helg-
ina.
Mikill meirihluti fulltrúa á
landsfundi Alþýðu-
bandalagsins virðist
fylgjandi því að látið
verði á það reyna hvort
A-flokkarnir geti náð
saman um málefni, en
skoðanir eru mun skipt-
ari um sameiginlegt
framboð.
Fyrir fundinum liggja
nokkrar tillögur um
samfylkingarmál, sem
ganga mislangt. Eins og
fram kom í Degi í gær hefur hóp-
ur verkalýðsforingja í flokknum
lagt fram tillögu um að fela for-
ystunni að Ijúka viðræðum um
sameiginlegt framboð í næstu
kosningum. Þessi tillaga gengur
skrefi lengra en tillaga fram-
kvæmdastjórnar flokksins, sem
kveður á að unnið verði að gerð
málefnasamnings og síðan verði
boðað til aukalandsfundar næsta
sumar sem taki afstöðu til hans
og formsins á samstarfi flokk-
anna. Þriðja tillagan sem liggur
fyrir á landsfundinum er um að
efla Alþýðubandalagið sem rót-
tækan vinstri flokk og um aukið
samstarf stjórnarandstöðuflokk-
Sjávarútvegsdeild Háskólans á
Akureyri verður með sérstakan
matvæladag í dag, þar sem mat-
vælaframleiðslubraut skólans
verður í sviðsljósinu. Matvæla-
dagurinn hefst með kynningu í
Oddfellowhúsinu klukkan
13.00, síðan taka \ið erindi um
matvælarannsóknir og síðan
pallborðsumræður um menntun
anna. Þar er talað um að vinna
málefna- og samstarfssamning
félagshyggjuflokkanna, sem
lagður yrði fram fyrir alþingis-
kosningar 1999, en ekki að
flokkarnir bjóði fram saman.
Ágreiningur um form
Eins og fram kom í Degi í gær
vill Hjörleifur Guttormsson, al-
þingismaður, slíta viðræðum A-
flokkanna, en hann virðist mjög
einangraður í afstöðu sinni á
Iandsfundinum. Ágreiningurinn
er ekki um það hvort halda eigi
viðræðum um samfylkingu á
vinstri væng áfram. Það vill mik-
il meirihluti landsfundarfulltrúa.
Margir vilja stefna á sameigin-
legt framboð, aðrir, þar á meðal
úr þingliðinu, að flokkarnir bjóði
fram í eigin nafni, en myndi
blokk gegn ríkisstjórninni með
samstarfsyfirlýsingu.
Nær fullvíst má telja að ekki
verði tekin afstaða til sameigin-
legs framboðs á landsfundinum
nú. Sá höfuðverkur verði látinn
bíða aukalandsfundar á næsta
ári. Líklegast þykir að málamiðl-
un í anda tillögu framkvæmda-
stjórnar verði samþykkt. -\'|
og rannsóknir £ matvælaiðnaði
sem Sigurgeir Þorgeirsson, fram-
kvæmdastjóri Bændasamtak-
anna, stjórnar. Að lokum verður
k\nning á matvælafyrirtækjum á
Eyjafjarðarsvæðinu og segist Jó-
hann Örlygsson lektor reikna
með að þar verði kynntar ýmsar
athyglisverðar nýjungar. — GG
Sameiningarsinnar virðast eiga mikinn hljómgrunn á lands-
fundi Alþýðubandalags.
Matvæladagur hjá H.A.