Dagur - 08.11.1997, Side 12

Dagur - 08.11.1997, Side 12
12 - LAUGARDAGUR 8. NÓVEMBER 1997 VERKMENNTASKÓLINN Á AKUREYRI Innritun Innritun til náms á vorönn 1998 lýkur föstudaginn 14. nóvember nk. Þeir sem saekja um síðar geta ekki vænst skólavistar. Skrifstofa skólans er opinn alla kennsludaga kl. 8.15. ffetum taka viðhorf Bandaríkjaforseta í hryðjuverkamálum óvænta stefnu H SÝNT ALLA HELGINA AIR FORCE ONE 3 CcrGArbic HTTP://WWW.NET. IS/BORGARBÍÓ „Út vil ek“ Sókn íslenskra fyrirtækja á erlenda markaði Framsögumenn: Baldur Hjaltason, framkvæmdastjóri Lýsis hf. Þorgeir Pálsson, forstöðumaður sjávarútvegssviðs Útflutningsráðs íslands. Hádegisverðarfundur á veitingastaðnum Fiðlaranum, Skipagötu 14, 4. hæð, mánudaginn 10. nóv. 1997, kl. 12.15-13.30. Fundurinn er öllum opinn og skráning fer fram á staðnum. Hádegisverð'ur og fundargjald kr. 1000,- Upplýsingar á Atvinnumálaskrifstofu í síma 462 1701. Atvinnumálanefnd Akureyrar, Iðnþróunarfélag Eyjafjarðar, Dagur, Útvarp Norðurlands, Rannsóknastofnun Háskólans á Akureyri, Skrifstofa Atvinnulífsins. SDggtr ÍÞRÓTTIR Fjórtán landsliðs- menn í liði Celje Islandsmeistarar KA mæta liinu geysi- sterka slóvenska liði, Celje Piovama Lasko, í KA-heimilinn í dag kl. 16:15. Fjórtán landsliðsmenn eru í liðinu sem liklega er eitt af alsterkustu fé- lagsliðum sem hingað til lands hafa komið. Lið Celje er efst í slóvensku deildinni eftir sex umferðir og liðið tók létta æfingu í síðasta deildarleik, á miðvikudaginn, þegar liðið vann nítján marka sigur á andstæðingum sínum. „Það er formsatriði fyrir þetta lið að klára deildarkeppnina heima- fyrir, en ég held að þetta lið leggi mestan metnað í að standa sig í Evrópukeppninni. Sænsku meistararnir Redbergslid, máttu játa sig sigraða gegn Celje í síð- ustu umferð, sænska liðið tapaði með fimm mörkum úti og náði aðeins jafntefli á heimavelli sín- um og það segir nokkra sögu um styrkleika Celje að f liðinu eru fjórtán landsliðsmenn, frá Sló- veníu, Júgóslavíu og Krótíu,“ sagði Atli Hilmarsson, þjálfari KA-manna. Slóvenska liðið er með sterka bakhjarla, stærsti stuðningsaðil- inn er Piovarna Lasko, 165 ára gömul ölgerð og félaginu hefur tekist að halda sterkum leik- mönnum heimafyrir, þrátt fyrir gylliboð annarra liða. Þekktasti leikmaður Celje er hægri handar skyttan Iztoc Puc, sem sæti hef- ur átt í heimsliðinu og var Ólympíumeistari með Króatíu í fyrra og þá Ieikur með liðinu landsliðsmarkvörður Júgóslava Dejan Peric. Valinn maður er í hverju rúmi, sem best sést á því að liðið getur stillt upp tveimur liðum sem eingöngu eru skipuð landsliðsmönnum! Ómetanleg reynsla - En getur þjálfari KA vonast eft- Atli Hilmarsson. ir sigri gegn þessum andstæðing- um, eða mun hann reyna að sleppa með sem minnst tap á bakinu'? „Við gerum okkur vonir á heimavelli og með góðum stuðn- ingi áhorfenda getum við strítt þeim aðeins. Ég hef ekki trú á því að slóvenska liðið líti á okkur sem stóra hindrun og kannski verður um vanmat að ræða af þeirra hálfu. Við ætlum hins veg- ar að hafa gaman af því að kljást við þessar stjörnur og ætlum að njóta þess að spila í Meistara- deildinni. Það er ómetanleg reynsla fyrir liðið, en margir strákanna eru að stíga sín fyrstu spor í meistaraflokki, að kljást við nokkra af bestu handknatt- leiksmönnum heims, ekki síst í útileikjunum, þar sem áhorfend- ur skipta þúsundum.“ KA-menn munu leika án Vlad- imir Goldin, sem ekki er löglegur á Evrópumótunum, þar sem hann lék Evrópuleik með fyrra liði sínu, SKA Minsk, í haust og þá verður Björgvin Björgvinsson, eini Iandsliðsmaður KA, fjarri góðu gamni í dag vegna meíðsla. Það má því búast við erfiðum róðri hjá KA-mönnum. Mikill áhugi hefur verið fyrir þessum leik sem verður fyrsti Ieikur ís- lensks liðs í Meistarakeppninni. Ahuginn er engu minni í Sló- veníu, en 130 Slóvenar komu til Akureyar í gær og leiknum í dag verður lýst á þremur útvarps- stöðvum ytra. — FE Hefad Holyfields Michael Moorer hefur legstum staðið í skugga Tysons, Holyfi- elds og Lennox Lewis þrátt fyr- ir að vera sá annar af tveimur henefaleikurum er unnið hefur Holyfield. Riddick Bow hefur tvisvar borið sigur af Holyfield. Eftir sigur Moorer, 22. apríl 1994 kavartaði Holyfield sáran undan því að hann hafi ekki ver- ið heill heilsu þegar þeir börð- ust. Hjartað plagaði hann sem og öxlin og því lítur Holyfield ekki á þá viðureign sem alvöru bardaga hjá sér. Moorer gerir lítið úr kvörtunum Guðsmanns- ins, enda hirti hann af honum bæði IBF og WBA heimsmeist- aratitlana og erfiðir tímar fóru í hönd hjá Evander Holyfield. Moorer hefur haft það gott síðan þrátt fyrir að hafa fallið fyrir Ge- orge Foreman stuttu síðar og tapað báðum titlunum. Það er reyndar eini bardaginn sem Moorer hefur tapað. Ferill hans er mjög góður, 39 bardagar, 38 sigrar og þar af 31 á rothöggi. Það er því alveg ljóst að baráttan verður hörð í hringnum í kvöld. Það er ekki aðeins tveir heims- meistaratitlar sem barist er um heldur er heiður þeirra beggja að veði. Holyfield vill örugglega ekki að Michael Moorer verði annar maðurinn til þess að rota hann tvisvar og hugsar sér að ná fram hefndum. Moorer vill líka afsanna þá kenningu andstæð- ingsins að hann hafi aðeins unn- ið vegna hjartveiki hans og axlar- meiðsla. Evander Flolyfield er óumdeildur kóngur i Ameríku eftir að hafa haft Mike Tyson að fífli í tvígang og tekið af honum WBA meistaratitilinn. Nú hefur hann tækifæri til að sameina titlana tvo, WBA og IBF aftur og það er nær öruggt að það og ekkert annað er ætlun hans í nótt. A SKJANUM UM HELGINA Laugaidagur RÍKISSJONVARPIÐ Þýska knattspyrnan kl. 14.20 Gladbach - Dortmund Handbolti - 1. deild kvenna kl. 16.20 Grótta/KR-FH STÖÐ 2 Enska knattspyman kl. 14.50 Liverpool - Tottenham SÝN Box kl. 02:00 Evander Holyfield - Michael Moorer Suunudagur STÖÐ 2 ítalska knattspyrnan kl. 14.00 Lazio - Sampdoria SÝN Enska knattspyrnan kl. 15:50 Arsenal - Manchester United Italska knattspyrnan Itl. 19.25 Napoli - Juventus Mánudagur SÝN Enska knattspyrnan kl. 19.50 Leicester - Wimbledon Þriðjudagur SÝN Enski knattspyman kl. 22:30 Sýndur verður heimildar- þáttur um liðin við Stanley Park, Everton og Liverpool.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.