Dagur - 15.11.1997, Qupperneq 10
10- LAUGARDAGUR 1 S.NÓVEMBER 1997
FRÉTTIR
Oxgur
Breyting vatnsvega áhálendinu
HALLDÓR
EYJOÖ’SSON
Áhugamadur um
umhverfís- og
samgöngumál
skrifar
Tillaga er fram komin um Iínu-
stæði milli væntanlegrar Fljóts-
dalsvirkjunar og Akureyrar, um
Möðrudal vestur í Suðurárbotna
með tengistöð við Sprengisands-
línu sunnan Svartárkots, þá þvert
yfir Bárðardal, upp Litluvallafjall
og úteftir því. Þetta línustæði er í
andstöðu flestra Bárðdælinga og
fleiri, einnig telst það erfitt og
umhverfisspillandi, vegagerð
mjög dýr og óhagkvæmt vegstæði
með tilliti til samgöngubóta, sem
ættu þó að falla að línuvegagerð,
sérstaklega í óbyggðum.
Hagkvæmt línu- og vcgstæði
Framtíðarstaðsetning háspennu-
línu ásamt tilheyrandi vegagerð
(síðar þjóðvegur):
Norður um Sprengisand vest-
an Fjórðungsöldu, austur yfir
Skjálfandafljót um hitalaugar-
drag (forn biskupavegur) að
Sandmúladalsárdrögum, nv af
Þríhyrningi. Þar myndi 3ja línu
.tengistöð verða staðsett, þaðan
til Fljótsdals um Ódáðahraun
sunnan Dyngjuljalla að brú á
Jökulsá á Fjöllum, síðan norðan
Fögruljalla að væntanlegri stíflu
sunnan Kárahnjúka, þá austur á
Fljótsdalsheiði að Laugarfelli og
þaðan á virkjunarstað í Fljóts-
dal.Eyjafjarðarlína frá áður-
nefndri línusamtengingarstöð
lægi nv yfir Skjálfandafljót að
Ytrimosum í Mjóadal, norður eft-
ir honum að Klukkufjalli, þar
upp á Litluvallafjall, út eftir því
og síðar eftir Vallarfjalli að
Hellugnúpsskarði en þar er kom-
ið að byggðalínu sem liggur
greiðustu leið til Akureyrar. Með
slfkri samtengingu rafaflsins er
sama hvort verksmiðjur rísa aust-
an, sunnan eða norðanlands. Sjá
meðfylgjandi teikningu.
Hálendisvegux, suðux úr Mý-
vatnssveit
Slóð frá Mývatni suður á
Sprengisand vestan eða austan
Sellandaljalls um Suðurárbotna
eftir vönduðum biskupavegi yfir
Suðurárhraun í Breiðadal síðan
að Sandmúladalsárupptökum
norðvestan Þríhyrnings með
tengingu þar við Öskjuslóð F910.
Þessi slóð kæmi ferðamönnum
verulega til bóta, sérstaklega ef
núverandi brú á Skjálfandafljóti
yrði flutt á betra brúarstæði, sem
er norður við Hraunkvíslar
(Stóraflæða). Þá myndi þessi
braut auðvelda bændum og
Landgræðslunni aðkomu að upp-
blásturssvæðum á þessum slóð-
um, en þarna er verið að hefta
sandfok, sem veldur eyðingu
Kráká í vélar Laxárvirkjunar og
veldur óeðlilegu sliti á vélbúnaði
stöðvanna, einnig spillir um-
ræddur foksandur fiskigengd ár-
innar, en Þingeyingar hafa lengi
barist við sandstorma og land-
eyðingu af þeirra völdum.
Þórisvatnsmiðlun styrkist
verulega
I haust lýkur stíflugerð í Þjórsá
austan Hofsjökuls og renna þá
upptakskvíslar hennar suður
Holtamannaafrétt um Kvísla-
veituskurði til Þórisvatns, sem er
aðal vatnsforðabúr núverandi
orkuvera og til framtíðar, einnig
stýringu vetrarrennslis til orku-
veranna 1999. Vegna breyttra
vatnsvega hafa eftirtaldar brýr
verið reistar og uppbyggður vegur
úr byggð norður að Háumýrum.
1. Yfir Þjórsárskurð við Háu
mýrar.
2. Yfir Eyvindarkvíslarskurð.
3. Yfir Stóraversskurð.
4 .Yfir Þórisósskurð (úr Sauða-
fellslóni í Þórisvatn).
5. Yfir Vatnsfellsskurði ofan
Sigöldulóns.
Þörf er á brú yfir Köldukvísl
milli Búðarháls og Þóristungna,
væri þá vel séð fyrir umferðarþörf
afréttarnotenda (Ása og Djúp-
hreppinga), og einnig þeirra er
hyggja á mannvirkjagerð við
Þjórsá norðan Búðarháis, svo og
almennum Sprengisandsferðum.
Fom biskupavegur aftur í
nofkun
Slóð var rudd f sumar frá Þjórs-
árstíflu við Háumýrar norður eft-
ir forna biskupaveginum að vaði
á Fjórðungakvísl, þaðan er ágæt
slóð að Nýjadal ca. 10 km 1 km
vestan vaðsins er Sprengisands-
línustæði ásamt kjörnu brúar-
stæði. Ætla má að rudd slóð frá
Fjórðungakvísl að Fjórðungs-
vatni (nálægt línustæðinu) komi
næsta sumar og þá fljótlega brú á
kvíslina sem yrði framtíðar sam-
göngubót á miðhálendinu, svo
nefnd Nýjadalsleið (eða ölduleið)
og Sprengisandsvegur koma sam-
an við Fjórðungsvatn að norðan
en að sunnan við Stóraver. Teng-
islóðir eru frá Eyvindarkofaveri
austur að Kistuöldu og áfram að
stíflugerð við Syðri Hágöngu,
einnig upp með Fjórðungakvísl
að sunnan, að skála F.I. við Nýja-
dal.
Fyrsta ferð á bH yflr
Sprengisand
Mjög sterkar líkur eru á því að
fyrsta ferð á bíl norður
Sprengisand hafi verið farin eftir
þessum forna þjóðvegi. Ferðin
var farin 14. ágúst 1933.
UtreUaiingur á tekjutryggingu lifeyrisþega
BRAGI ^
HALLDÓRS-
SON
Sjálfsbnnjörg Akureyri
skrifar
Vegna umræðu „Um lífskjör ör-
yrkja“ sem fram fór á ráðstefnu
Öryrkjabandalags Islands 17.
október sl., sem og til upplýsing-
ar og eftirfylgni, óskar undirrit-
aður að koma á framfæri eftirfar-
andi:
Með bréfi sínu til Umboðs-
manns Alþingis (UA) dags. 31.
maí 1996 bar stjórn Sjálfsbjargar,
félags fatlaðra á Akureyri og ná-
grenni, fram formlega kvörtun
vegna ákvæða í reglugerð heil-
brigðis- og tryggingamálaráð-
herra nr. 485 frá 5. sept. 1995
um útreikning tekjutryggingar
hjóna.
í bréfinu segir svo m.a.:
I 1. og 2. mgr. 17. gr. laga nr.
117/19932, sem fjallar um tekju-
tryggingu, segir svo: „Ef aðrar
tekjur elli- og örorkulífeyrisþega
VÉLBOÐA
w iCi Li D W Irn
Stærðir: 4 -12 þús. lítra
Flotdekk, hæöamælir, vökvadrifið iok á lúgu,
Ijósabúnaöur.
VÉLBOÐI HF.
Sími 565 1800 Hafnarfiröi.
Mjöggott verð og
greiðslukjör við aiira hæfi.
en bætur almannatrygginga, bæt-
ur samkvæmt lögum um félags-
lega aðstoð og húsaleigubætur
samkvæmt lögum nr. 100/1994
fara ekki fram úr 217.319 kr. á
ári skal greiða uppbót á lífeyri
hans að upphæð 295.260 kr. á
ári, o.s.frv.“
I 18. gr. sömu laga er síðan
kveðið á um frekari skilyrði fyrir
hækkun bóta samkvæmt 17. gr.
og m.a. kveðið á um að frekari
skilyrði fyrir hækkun bóta sam-
kvæmt 17. gr. skuli breytt með
reglugerð 1. sept. árlega, og að
ráðherra sé heimilt að ákvarða
með reglugerð að aðrar tekjufjár-
hæðir skv. 17. gr. gildi um lífeyri
úr lífeyrissjóðum og tekjur skv. 3.
tölul. C-liðar 7. gr. laga nr.
75/1981.
18. greinin segir því mjög skil-
merkilega til um hveiju ráðherra
skuli breyta árlega, og einnig
hvaða heimildir hann hefur til
annarra frávika frá skilyrtum
ákvæðum 17. greinarinnar með
reglugerðarútgáfu.
Með reglugerð nr 485 frá 5.
sept. 1995 hafa hins vegar verið
sett inn ákvæði sem hvergi eiga
sér lagastoð, þar sem í 4. gr. 1.
mgr. reglugerðarinnar hefur ver-
ið sett inn svohljóðandi ákvæði:
„Hjónum sem bæði njóta elli-
eða örorkulífeyris, en hafa sam-
eiginlega aðrar tekjur en bætur
almannatrygginga sem fara ekki
fram úr 304.246 kr. á ári, skal
greiða uppbót sem nemur tvö-
faldri tekjutryggingu einstaklings
eftir því sem við á,“ og síðan í 2.
mgr. reglugerðarinnar: „Nú nýtur
aðeins annað hjóna elli- eða ör-
orkulífeyris, en hitt ekki, og skal
þá helmingur samanlagðra tekna
þeirra teljast tekjur lífeyrisþegans
og að öðru leyti farið með uppbót
hans sem tekjutryggingu einstak-
linga.“
Samkvæmt 17. gr. laga nr.
117/1993 kemur það skilyrt fram
að bætur þessar eru einstaklings-
bætur og skal grunn-frítekjumark
hvers einstaklings vera 217.319
kr. og hjóna því 434.638 kr. á ári.
Einnig kemur þar skýrt fram að
frítekjumarkið skal miða við aðr-
ar tekjur Iífeyrisþegans sjálfs og
því óheimilt að deila tekjum
milli hjóna sem bæði njóta lífeyr-
islauna.
Þá kemur það einnig skýrt
Þaö er nú von Sjálfs-
bjargar, aðumboðs-
maður Alþingis sjái
sér fært að ljúka
álitsgerð sinni í mál-
inu sem allra fyrst
eftir lokafrestinn,
þannig að botn fáist í
þessa deilu.
fram að hvergi í þessari lagagrein
er heimild til að gera aðila, sem
nýtur Iífeyrislauna vegna elli eða
örorku, upp tekjur, með því að
flytja helming tekna maka hans
eða sambúa yfir á hann.
Tilvitnaðar greinar reglugerð-
arinnar eiga sér ekki lagastoð,
þær brjóta skilyrt ákvæði Iag-
anna, breyta ákvæðum þeirra og
taka til baka, og eða, rýra skilyrt
ákvæði löggjafans um rétt lífeyr-
isþegans.
Reglugerð á ekki að breyta
lagaákvæðum. (Ath. innskot:
fjárhæðir eru ekki færðar til
dagsins í dag, október 1997).
Undirritaður gerði kvörtun til
yðar vegna sama máls með bréfi
8. ágúst 1988 og vísast hér með
til þess, mál 26/1988, en málið
grundvallaðist á eldri lögum og
reglugerðum.
Við vísum til niðurlags yðar í
því máli og þess að nú hafa verið
samþþykkt ný lög, þar sem, eins
og að framan greinir, er skýrt af-
markað hveiju skuli árlega breyta
með reglugerð og hvaða heimild-
ir ráðherra að öðru leyti hefur til
takmörkunar á framkvæmd varð-
andi tekjutryggingu.
Bréf okkar framsendi umboðs-
maður Alþingis (U.A.) 12. júní til
ráðherra með óskum um andsvör
sem loksins bárust 2. desember
eftir margar ítrekanir. Við gerð-
um athugasemdir, sem U.A.
sendi ráðherra með bréfi 6. maí
1997, ásamt frekari óskum sín-
um um upplýsingar eða skýringa.
Hófst nú sama biðin, og þrátt
fyrir margar ítrekaðar óskir okkar
og síðan U.A. um svör, þá höfðu
engin svör borist um miðjan
september, en þann 16. kom bréf
til andsvara, með þeirri takmörk-
un, að verið gæti að Iögfræðideild
ráðuneytisins óskaði annarrar
framsetningar síðar.
Málin standa nú þannig að
U.A. hafnaði því með bréfi 15.
október sl. að hægt væri að svara
erindum hans með fyrrgreindum
takmörkunum um síðari tíma
svör og gaf heilbrigðis- og trygg-
ingaráðuneytinu lokafrest til
andsvara í máli þessu til 15. nóv-
ember nk.
Það er nú von Sjálfsbjargar, þar
sem þetta mál hefur verið allt of
lengi í farvatninu vegna tregðu
stjórnsýslunnar til andsvara, að
umboðsmaður Alþingis sjái sér
fært að ljúka álitsgerð sinni í
málinu sem allra fyrst eftir loka-
frestinn, þannig að botn fáist í
þessa deilu.