Dagur - 20.11.1997, Blaðsíða 6

Dagur - 20.11.1997, Blaðsíða 6
6- FIMMTUDAGUR 20.NÓVEMBER 1997 ÞJÓÐMÁL wmmmmmmmimmmm Útgáfufélag: dagsprent Útgáfustjóri: eyjólfur sveinsson Ritstjórar: stefán jón hafstein ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON Aðstoðarritstjóri: birgir guðmundsson Framkvæmdastjóri: marteinn jónasson Skrifstofur: strandgötu 31, akureyri, GARÐARSBRAUT 7, HÚSAVÍK OG ÞVERHOLTI 14, REYKJAVÍK Símar: 460 6ioo og soo 7080 Netfang ritstjórnar: ritstj0ri@da9ur.is Áskriftargjaid m. vsk.: 1.680 KR. Á mánuði Lausasöluverð: 150 kr. og 200 kr. helgarblað Grænt númer: soo 7080 Simbréf auglýsingadeildar: 460 6161 Símbréf ritstjórnar: 460 617KAKUREYRI) 551 6270 (REYKJAVÍK) Opið bréf til forsætisráðherra (2. prentun að ítrekuðu tilefni.) í fyrsta lagi Hr. forsætisráðherra. Eg leyfi ég mér að víkja að Iitlu erindi sem skiptir ekki miklu fjárhagslegu máli. Þetta er mál sem varla er ríkisstjórnarmál, og ætti að vera búið að hreinsa út fyr- ir löngu. I hlutfalli við stjarnfræði ríkisútgjaldanna er þetta eldspýtustokksmál. En það fer ósegjanlega í taugarnar á þjóð- inni. Eg er að tala um hlunnindagreiðslur ráðherra og æðstu embættismanna fyrir að fara til útlanda. í daglegu tali nefnd- ar ferðadagpeningar. í öðru lagi Ráðherrar, bankastjórar og mjög háttsettir embættismenn njóta þessara hlunninda með mismunandi blæbrigðum. Ferðadagpeningar eru, samkvæmt skilgreiningu fyrír alla aðra landsmenn, til að mæta útlögðum kostnaði á ferðalögum. Þeir sem hér um ræðir bera hins vegar almennt engan kostnað af ferðalögum sínum. En fá mismunandi marga tugi og hundruð þúsunda fyrir ferðalög í útlöndum, eftir atvikum. Ég hef tekið eftir því að fólki finnst þetta siðlaust. Þú hefur eflaust heyrt það Iíka. Það gerir bara enginn neitt í því. Þess vegna er hér beðið um forystu þína. í þriðja lagi Siðferðisleg forysta forsætisráðherra gæti falist í að láta hringja saman nokkra bankaráðsformenn, mann úr fjármála- ráðuneytinu og kannski einn eða tvo sem vel er treystandi. Forsætisráðherra yrði auðvitað að leggja sitt siðræna Ióð á vog- arskál þessara manna; þú ert talinn fylginn þér þegar þú vilt við hafa. Af því að menn eru almennt yfirhlaðnir störfum er ekki hægt að reikna með að þessu verði lokið fyrir hádegi á morgun, en þá bara um miðja næstu viku. Þá gætum við ein- faldlega gleymt þessu sorglega dægurmáli og snúið okkur að öðru. Virðing myndi vaxa fyrir valdastofnunum og þeim mönn- um sem þar vinna. Þá hefðir þú unnið þarfaverk og þjóðin verða þér þakklát. Ef þér finnst þetta ekki athugavert, viltu þá vinsamlega segja okkur hvers vegna? Okkur finnst þetta nefni- lega siðlaust, en kannski erum við siðvillt? Stefán Jón Hafstein. Skoðum og skjótum Garri fylgdist með umræðum um hvalveiðar í sjónvarpinu í íýrrakvöld í þætti sem var einhvers konar smækkuð endurholdgun á þættinum Almannarómur sem var á Stöð 2 í umsjón hæstvirts rit- stjóra Garra - Stefáns Jóns Hafstein. Nema hvað Húsa- víkur-Páll og hvalaskoöunar- útgerðarmaður var í þessum þætti við sérstakt háborð ásamt Kristínu Halldórsdótt- ur þingkonu að tala gegn því að hvalur yrði veiddur þar sem slíkt gæti skaðað hvala- skoðunariðnaðinn. Til hliðar sátu uppi á hanabjálkum stórsveit blóðþyrstra hvalfang- ara og snerist sjón- varpsþátturinn semsé um hvort hafði betur, hanabjálkahersveitin eða háborðstvennan. Áhorfendur gátu síðan tekið þátt í þessari orrustu með því að hringja í sjónvarp- ið gegn gjaldi og lýsa stuðn- ingi við aðra hvora sveitina. Óiafn leikur Ekki hafði Garri sig nú í að hringja, enda sveiflaðist hann á milli, nánast alltaf sammála síðasta ræðumanni, nema þegar Kristín Halldórs talaði, því hún virtist líka alltaf vera sammála síðasta ræðumanni, eða því sem næst. Leikurinn var því vissulega ójafn því Húsavíkur-Páll mátti standa meira og minna einn í stapp- inu, en það var lán í óláni hve hógvær en sannfærandi hann var varðandi eigið ágæti sem markaðsmanns - t.d. þegar hann talaði um hvernig hann „tæki menn markaðslega í nefið“. Garra þótti það líka afrek hjá hanabjálkasveitinni að geta í heilan þátt talað um hvalveiðar án þess að segja eitt einasta orð sem þeir voru ekki búnir að marg, marg, marg tyggja áður og tönglast á frá því hvalveiðibannið tók gildi. Slíkt jaðrar við að geta kallast staðfesta! Fj ölskyldufer ðir I öllu falli gekk Garra illa að gera upp hug sinn og hringja. Svarið lá í spurningunni sjál- fri sem var eitthvað á þá leið hvort það væri samrýmanlegt að skjóta og veiða hvali? Báð- ir deiluaðiiar höfðu því rétt fyrir sér - lausnin felst í því að £'■ skoða hvalina fýrst og skjóta þá svo. Það er varla mildll vandi að wg bjóða upp á hvala- «g skoðunarferðir sem § enda í því að skjóta á hvalinn. Milljóna- mæringar um allan heim væru eflaust tilbúnir að borga morðfjár fyrir slíkan veiðitúr ekki síður en að fara á ljóna- eða villisvínaveiðar. Þetta gætu líka sem best orðið fjöl- skylduferðir og yrði þá skoð- unarhlutinn fyrir konur og börn en seinnihlutinn fyrir pabbana. Síðan gæti fjöl- skyldan í sameiningu skorið sér kötbita úr volgri bráðinni og grillað á ströndinni um kvöldið! Þegar Garri hafði séð fyrir sér þessa bráðsnjöllu Iausn málsins og ætlaði að hringja og segja já, já, já, hvalveiðar og hvalaskoðun fara svo sannarlega saman, þá var búið að loka fyrir símann í sjónvarpinu. En hvað um það - Garri var ekki einn - þjóðin hafði líka séð þennan mögu- leika og 80% höfðu hringt inn sittjá. GARRI JÓHANNES SIGURJÓNS SON skrifar Maður áttar sig ekki alveg á þessu moldviðri sem Jóhanna Sigurðardóttir er að þyrla upp út af farareyri bankastjóra og þeim úlfaþyt sem moldviðrið hefur valdið í samfélaginu. Verður er verkamaður launa sinna, segir í hínni góðu bók og farandverka- menn á akri fjármagnsins á borð við bankastjóra eru verðir síns farareyris og yrðu enda ugglaust strandaglópar í útlöndum og kæmust ekki heim fyrr en eftir dúk og disk, ef farareyrir væri skorinn við nögl. Og þá náttúr- lega rykju dagpeningagreiðslur upp úr öllu valdi. Reyndar má deila um það hvort þess sæist stað í þverrandi þjóðarhag þó tímabundinn bankastjóraskortur áherjaði, enda er slíkur skortur víst þegar tíl staðar. Flandur á fyrsta farrými Málið er að menn misskilja störf bankastjóra. Almenningur stend- Farandverkamenn í skftverkum ur í þeirri trú að þetta sé voðalega næs djobb, laxveiði- túrar, mál- verkakaup, veisluhöld, og flandur um veröld á fyrsta farrými. Auð- vitað þurfa bankastjórar að dunda við þetta allt og er auð- vitað gaman. En allajafnan eru þeir í slut- verkunum. Bankastjóra- störf eru sem sé mestu skítadjobbin í samfélag- inu. Almenningur jarmar sífellt yfir því hvað það sé ógurlega þreytandi og slítandi og leiðin- Iegt að sýsla með peninga. Það sé jafnvel fyrir neðan mannlega virðingu að snudda með debit og kredit, skuldir, vexti og vaxtaverki. En þetta þurfum við múgamenn ekki að gera nema í frístundum. Bankastjórar afturámóti eru neyddir til að velta sér upp úr þessum mann- skemmandi ófögnuði á degi hverjum. Og er þá nokkur furða þó þeir þurfi smávegis upplyft- ingu annað veifið og umbun? Því verður er skítverkamaður launa sinna. Satans þjónar? Og annað verra og bankastjórar eru þess væntanlega fullkomlega meðvitaðir, að þeir eru að vinna störf sem eru í eðli sín andkristi- leg og þeir eru því eiginlega Satans þjónar. Þannig bannaði kirkjan í árhundruð alla lána- starfsemi og aðeins undirmáls- lýður á borð við Shylock og aðra gyðinga mátti stunda þessa iðju sem stríddi gegn guðs og manna lögum. Og hvað segir ekki í Lúkasar- guðspjalli, sjötta kapítula um bankastjóra?: „Gjörið gott og lánið, án þess að vænta nokkurs í staðinn." Þetta er auðvitað það sem okkar ágætu bankastjórar eru alltaf að gera án þess að fá nokkuð í staðinn, nema þá helst skít og skömm í hattinn. Og svo náttúrlega dulítið af dagpening- um og verði þeim að góðu. SDm&i svar'aö Kemur til greina að deila hluta afhlutabréf- um í Pósti og síma hf. til álmennings? Benedikt Jóhannesson fraiiikvæindastjóri Tálnákönminar hf. Mér finnst það vera góð h u g m y n d . Ég tel að með því yrði skapaður mjög góður markaður fyrir þessi hlutabréf sem aftur leiddi til þess að ríkið gæti fengið meira síðar út úr einkavæðingu ríkisins, það er þegar afgangurinn af hlutabréf- um ríkisins í fyrirtækinu verður seldur. Pétur Blöndal alþiitgisniaður. Já, mér finnst það koma til greina. Ég hef sjálfur lagt til aðra útfærslu, til dæmis að al- m e n n i n gi yrði gefinn kostur á að kaupa bréfin á hálfvirði í áskrift, fyrir til dæmis 5.000 kr. á mán- uði. Póstur og sími hf. er fyrir- tæki af Sovét-gerð og þá finnst mér líka eðlilegt að beita sovét- lausnum við að leysa það upp. Ögmundur Jónasson alþingisniaður ogfortn. BSRB. Almenning- ur á Póst og síma. hf. Það sem fyrir sam- gönguráðh- erra vakir er að taka Póst og síma úr eigu al- mennings og fá öðrum fyrirtækið í hendur. Síðan á að deila út einhverjum molum til að reyna að hafa menn góða. Magnús Stefánsson alþingismaður og stjómamiaður í Pðsti og sínia. Þetta er al- veg ný leið ef menn ákveða að fara hana. Þetta hefur ekkert verið rætt, en ég er tilhúinn að ræða hana einsog allt annað í þessu sambandi. Nei, þetta hefur ekk- ert verið rætt innan stjórnar fyr- irtæksins, enda væru ákvarðanir í þessum efnum alfarið eigand- ans, það er ríksins - og með það eignarhald fer samgönguráð- herra.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.