Dagur - 21.11.1997, Blaðsíða 3
FÖSTUDAGUR 21.NÓVEMBER 1997 - 3
X^MT'.
FRÉTTIR
Þorsteinn segir Kyoto-
mörktn vera okkur erfld
Þorsteinn Pálsson,
sj ávanít vegsráöherra,
sagði á Fiskiþingi í
gær að hann vonaðist
til að samningur næð-
ist á ráðstefnu SÞ í
Kyoto um töluleg
mörk í losun gróður-
húsalofttegunda.
Sjávarútvegsráðherra sagði að
það skipti sjávarútveginn miklu
þar sem þriðjungur þess útblást-
urs sem takmarka á hér við land
kæmi frá fiskiskipum en losun
gróðurhúsalofttegunda frá fiski-
skipum hefði aukist um 18% frá
árinu 1990, eða um sama hlut-
fall og verðmæti sjávarafla. Ráð-
herra sagði það afar erfitt að
samþykkja í Kyoto losunarmörk
til ársins 2010 óháð fiskafla og
varpaði fram þeirri spurningu
hvort Islendingar gætu afsalað
sér rétti til að fullnýta auðlind-
irnar kringum landið.
Sjávarútvegsráðherra hefur
látið kanna með hvaða hætti
megi koma á stofn upplýsinga-
banka um íslenskan sjávarútveg.
Hópurinn verður skipaður full-
trúum útflytjenda, veiða og
vinnslu ásamt fulltrúa ráðuneyt-
isins og er ætlað að leggja á ráð-
in um hvernig tengja megi sam-
an upplýsingar sem nú liggja
víða.
Ráðherra segir mikilvægt að
byggja á nákvæmum leiðbeining-
um Fiskistol’u þannig að skoðun-
armenn noti sömu forsendur
þegar mat á ástandi hjá framleið-
endum fer fram. Reglugerð um
faggiltar skoðunarstofur í sjávar-
útvegi kemur til framkvæmda
um næstu áramót. Faggilding
verður framkvæmd af Faggild-
ingardeild Löggildingarstofu og
um þessar mundir er Rann-
sóknastofnun fiskiðnaðarins að
öðlast faggildingu, fyrst íslenskra
prófunarstofa.
Ráðherra skýrði einnig frá því
að Verkmenntaskólinn hefði
ákveðið að hefja á nýju ári til-
raun með starfsnám í fiskvinnslu
strax eftir grunnskóla og skiptist
námið í bóklegan hluta sem
kenndur verður innan skólans og
verklegan hluta sen kenndur
verður í fiskvinnslufyrirtækjum
nyrðra. Þorsteinn Pálsson sagði
brýna þörf á markvissri umræðu
og stefnumótun varðandi
fræðslu og menntun greinarinn-
ar, og Fiskifélagið væri um margt
ágætur vettvangur slíkrar um-
fjiillunar. - GG
REYKJAVIK
Reykskýli lokað
Heilbrigðisnefnd Reykjavíkur
hefur staðfest bann heilbrigðis-
eftirlits við reykingum nemenda
í reykskýli á lóð Fjölbrautaskól-
ans í Breiðholti sem er úr gleri.
Sýn í Bláfjölluiti
Svo kann að fara að sjónvarps-
stöðin Sýn verði með beinar út-
sendingar frá skíðasvæði borgar-
innar í Bláfjöllum í vetur. Frani-
kvæmdastjóri Bláfjallanefndar
hefur að undanförnu átt í við-
ræðum við sjónvarpsstöðina um
málið.
SVR kaupir
mengunarmæla
Stjóm SVR hefur samþykkt ein-
róma að fela forstjóra fyrirtækis-
ins að kaupa mælitæki sem
mælir útblástur og mengandi
áhrif hans vegna aksturs vagn-
anna. Þetta er jafnframt liður í
undirbúingi að því að kanna
kosti þess að leiða útblástur upp
fyrir þak vagnanna til að draga
úr mengun.
Atvinnuleysi
mest hjá konum
I lok sl. mánaðar voru á atvinnu-
leysiskrá í borginni samtals um
2.490 manns, 1.006 karlar og
1.484 konur. Þar af voru 59 ör-
yrkjar, 21 kona og 38 karlar. A
sama tíma í fyrra voru á skrá
2.865 manns, 1.226 karlar og
1.639 konur. Þar af voru 73 ör-
yrkjar, 31 kona og 42 karlar.-GRH
Karlremba á kúafundi
Konur í siumlenskri
bændastétt saka fram-
kvæmdstjóra Lands-
sambands kúabænda
uiii karlrembu. Ýmsir
vilja hann leystan frá
störfum.
Olga er meðal kúabænda á Suð-
urlandi vegna framgöngu Guð-
björns Árnasonar, framkvæmda-
stjóra Landssambands kúa-
bænda, á bændafundi í Þingborg
í Flóa á miðvikudag í sl. viku.
Þeir sem á fundinum voru telja
að orðbragð hans hafi ekki verið
sem vera skyldi og konur sem á
fundinum voru telja að sér vegið
og segja framkvæmdastjórann
haldinn karlrembu.
Katrín Andrésdóttir, dýralækn-
ir í Reykjahlíð á Skeiðum, og
tvær aðrar konur, fluttu tölu á
fundinum þar sem þær töluðu
gegn innflutningi fósturvísa. Á
eftir þeim fór Guðbjörn í pontu
Guðbjörn Árnason, framkvæmdastjóri
Landssambands kúabænda, var sieginn
með tösku eftir að hafa haldið fram
málstað norskra. Þykir hafa farið yfir
strikið á sunnlenskum bændafundi og
er sakaður um karlrembu.
„... og missti stjórn á sér, kallaði
okkur sem mótmæltum innflutn-
ingi fósturvísa úr norskum kúm
saumaklúbbskerlingar með kyn-
þáttafordóma. Þeim orðum að
smithætta fylgi innflutningi
norska kúa hingað til lands svar-
aði Guðbjörn að smithættan gæti
eins komið með bændum sem
væru í bændaferðum erlendis að
skoða fjós og gætu verið sam-
dægurs komnir heim í fjós í
mjaltirnar,“ segir Katrín. - Fleiri
ummæli framkv'æmdastjórans
voru í þessum dúr.
„Síðan fór Guðbjörn úr
pontu,“ segir Katrín Andrésdótt-
ir, „gekk að mér og strauk mér
snarplega um vangann og spurði
hvort ég væri reið. Síðan gekk
hann að annarri konu, Sigríði
Jónsdóttur í Gýjarhólskoti í Bisk-
upstungum, sem sat skammt frá
og hafði talað fyrr á fundinum
gegn innflutningi, og sagði að við
skyldum sjá hver grenjaði fyrr.“
Það var Sigríður sem veittist að
Guðbirni með handtösku í kaffi-
hléi eftir snörp orðaskipti þeirra
á milli, einsog fram kom í Degi í
gær. I kaffihléinu sagði Guðbjörn
að konur væru best geymdar
heima í eldhúsi. „Eg taldi það
rétt minn að svara fyrir þetta
orðaskak hans ineð þessum
hætti,“ segir Sigríður.
Katrín Andrésdóttir tekur fram
að Guðbjörn hafi flutt „afsökun-
arnefnu“ í fundarlok, en það
breyti því ekki að veruleg ólga sé
meðal bænda vegna framkomu
hans á fundinum. - „Hann fór
yfir strikið," segir Egill Sigurðs-
son, formaður Félags kúabænda
á Suðurlandi, sem staðfesti að
hópur manna hefði óskað eftir
því að félagið hlutaðist til um að
Landssamband kúabænda leysti
framkvæmdastjórann frá störf-
um. - SBS.
íslenskar kýr eða norskir fósturvísar í hagann? Deiiur valda tilfinningaólgu á fundi
eins og Dagur sagði frá í gær.
Var ekki aö veiða
í soðið
Hæstiréttur hefur staðfest sekt-
ardóm undirréttar, þar sem Jó-
hannes Sigurður Olafsson var
sakfelldur fyrir að hafa skotið
170 kg af ýsu undan vigt. I læsti-
réttur hafnaði þar með þeim
skýringum Jóhannesar að ýsan
hefði verið soðning fyrir sig og
fjölskyldu sína.
Jóhannes hélt því fram að um
undirmálsfisk hafi verið að ræða
og að hann hafi aðeins ætlað sér
og sinni fjölskyldu ýsuna til mat-
ar. Hæstiréttur bendir á að lög
standi ekki til þess að undan-
þiggja undirmálsfisk fyrirmæl-
um um vigtun sjávarafla. Þá seg-
ir Hæstiréttur að undanskotið
upp á 170 kg af ýsu hafi verið
þriðjungur af afla v'iðkomandi
veiðiferðar, sem sé langt um-
fram það magn, sem hægt er að
fella undir skilgreiningu urn
soðningu fyrir eina fjölskyldu.
Refsingu fyrir
skotvopnabrot
frestað
Refsingu yfir Friðberti Páli
Njálssyni hefur verið lrestað
með Hæstaréttardómi, en Frið-
bert var ákærður fyrir brot á
skotvopnalögum. Málið upp-
hófst eftir innbrot hjá Friðberti,
en við rannsókn á innbrotinu
uppgötvaðist að hann var með
talsvert af leyfislausum skot-
vopnum í sínum fórum.
I undirrétti var Friðbert sak-
felldur og dæmt að skotvopnin
skyldu gerð upptæk. Hann fær
nú mildari meðferð, meðal ann-
ars er ekki lengur gerð krafa um
upptöku skotvopnanna og hafa
þau verið afhent honum. Meðal
annars er þar byggt á bréfum
Böðvars Bragasonar lögreglu-
stjóra og Skarphéðins Njálsson-
ar lögregluvarðstjóra um að
skoða megi skotvopnaeign Frið-
berts sem „safn gripa" og að
embættið leggist ekki gegn leyfi
fyrir skotvopnunum. I framhaldi
af því frestaði Hæstiréttur refs-
ingu yfir Friðberti í tvö ár og
fellur hún niður haldi hann skil-
orð hegningarlaga.
Fantar á
Alþingi
Véiskótanemar færðu þingmönnum
forláta kaffifanta að gjöf i gær. Til-
gangurinn var að fá þá til að beita sér
gegn hugmyndum um að fiytja Sjó-
mannaskólann úr núverandi húsnæði
að Höfðabakka. Á fantana er prentuð
tilvitnun í ræðu Sveins Björnssonar, rík-
isstjóra íslands, sem sagði árið 1944
að það væru íslenskir sjómenn sem
öðrum fremur hefðu aflað þess fjár
„sem gerir ríkinu kleift að reisa þessa
myndarlegu byggingu." Ólafur G. Ein-
arsson, forseti Alþingis, tók við gjöfum
véiskóianemanna.