Dagur - 21.11.1997, Page 13
FÖSTUDAGUR 21.NÓVEMBER 1997 - 13
ÍÞRÓTTIR
L j
Karlakór Akureyrar-Geysir
heldur bingó í Lóni sunnudaginn 23. nóv. kl. 15.
Abalvinningar:
Vöruúttekt hjá Jókó fyrir
allt ab 25.000 kr.
Flugfar Ak-Rvk-Ak
ásamt fjölda annarra
góbra vinninga.
Spjaldib abeins kr. 300,-
Karlakór Akureyrar-Geysir
Leðuriðjan Atson Laugavegi 15 Rvík.
Veidimaburinn Hafnarstræti 5 Rvík.
Sunneva Design Hvannavöllum 1H Ak.
KarUieinz Riedle í strögli
Uiiin 17 ára Midiael
Owen minnir reglu-
lega á sig þegar hann
fær tækifæri til. Hann
hefur haldið Evrópu-
meistaranum frá Dort-
iiiund og landsliðs-
manninum Fowler á
tánum í haust.
Karlheinz Ridle, framherjinn
sterki sem Liverpool keypti frá
Evrópumeisturum Dortmund í
haust, hefur ekki átt fast sæti í lið-
inu. Michael Owen hel’ur séð til
þess. Owen, sem á betri feril með
vara- og unglingaliði Liverpool en
Robbie Fowler, hefur leikið ein-
staklega vel í vetur og skorað í
flestum leikjum. Hann kórónaði
frábæra frammistöðu sína í vik-
unni þegar hann skoraði þrjú
mörk á móti Grimsby í bikar-
keppninni. Nú er svo komið að
erfitt er fyrir Roy Evans,
framkvæmdastjóra liðs-
ins, að ganga fram hjá
honum. Owen er ein-
faldlega að leika best af
öllum framherjum
liðsins, þótt yngstur sé.
Hann hefur haldið
Evrópumeistaranum
frá Dortmund utan
liðsins og Robbie
Fowler má hafa
sig allan við til
að halda stöðu
sinni. Þá hefur
Patrick Berg-
er átt í vand-
ræðum að
halda sér í
liðinu.
Hann
er nú
jafnvel á
förum í
Michael Owen minnir
reglulega á sig.
botnbaráttuna til Barnsley, en
Liverpool er tilbúið að leigja hann
þangað eitthvað fram á veturinn.
Roy Evans segist ekki áður hafa
kynnst þeirri stöðu að vera með
þrjá jafn góða framherja og
hann hefur nú. Hann segist
ekki geta gert upp á milli
þeirra, þeir séu allir á
heimsmælikvarða. Evans
segir um Karlheinz að
hann sé besti atvinnumáð-
ur sem hann hafi unnið með
og hann skilji vel þá stöðu sem
hann er í. Riedle segir sjálfur að
hann sé ekkert óánægður með
stöðuna og að sér líði mjög vel hjá
Liverpool.
Kunnugir segja að Michael
Owen sé farinn að vekja athygli
Glenn Hoddle, enska landsliðs-
þjálfarans. Fari svo að Owen verði
valinn í enska landsliðið fyrir 14.
júní á næsta ári yrði hann yngsti
leikmaður Englands til þessa.
Ekki er talið ólíklegt að svo fari
haldi kappinn áfram á sömu
braut. — GÞÖ
3 leikir fóru fram i Úrvalsdeildinni i körfuknattleik í gærkvöld. Keflvíkingar voru
fyrstir til að vinna Grindavík, 85:80. Valsmenn burstuðu KR á Seltjarnarnesinu með
60 stigum gegn 76 og Þórsarar unnu sinn annan leik í vetur þegar þeir unnu ÍR í
Seljaskólanum, 91:94. ÍR-ingarnir tóku þá ákvörðun eftir leikinn að reka bandaríska
leikmanninn, Lawrence Culver.
Orlando Magic leggur allt í
sölurnar nú til þess að standa sig
betur á nýbyrjuðu keppnistíma-
bili en því síðasta. Það hefur
gengið sæmilega en fátt benti þó
til þess að Iiðið næði að leggja
Cleveland í fyrradag. Þegar átta
og hálf mínúta voru til leiksloka
hafði Cleveland tuttugu stiga for-
ystu, 81-61, en Orlando náði á
ótrúlegan hátt að jafna og ná
framlengingu þar sem þeir höfðu
sigur. Þetta var fjórði sigur
Orlando í röð án aðalleikstjórn-
anda síns og besta manns, Penny
Hardaway. Það vakti athygli hve
varamenn Orlando komu sterkir
inn í leikinn. Þeir skoruðu öll stig
liðsins í ljórða leikhluta og lögðu
raunar grunninn að þessum góða
sigri liðsins.
Penny Hardaway er meiddur. Samt
hefur Orlando unnið 4 sigra i röð.
jMa Skyggnilýsingarfundur
Miðlarnir Sigurður Geir Ólafsson og Skúli Lórenzson
verða með skyggnilýsingarfund að Hamri föstudags-
kvöldið 21. nóv. kl. 20.30.
Allir hjartanlega velkomnir.
Munið heilunina á laugardögum frá kl. 13-16. Án gjalds.
Fyrirliði Stj örnunnar til KR
Birgir Sigfússon, fyrirliði Stjörn-
unnar, hefur yfirgefið Garðabæ-
inn og gengið til liðs við KR.
Hann gerði tveggja ára samning
við KR-inga sem vænta mikils af
honum við uppbyggingu á hinu
unga liði sínu á næstu árum. Birg-
ir er 29 ára gamall og mjög reynd-
ur varnarmaður. Hann hefur leik-
ið 200 leiki með meistaraflokki
Stjörnunnar á síðustu 13 árum.
Þess má geta að helmingurinn af
þeim leikmönnum sem farið hafa
í atvinnumennsku frá KR í haust
eru varnarmenn sem allir hafa
leikið með íslenska landsliðinu.
Birgir Sigfússon.
Orlandomenn heppnir
Birgir er fjórði leikmaðurinn
sem gerir samning við KR í vik-
unni. Hinir eru Einar Þór Daní-
elsson, Þorsteinn Jónsson og
Guðmundur Benediktsson. Að
sögn forráðamanna KR eru þeir
mjög ánægðir með hvernig til hef-
ur tekist í leikmannamálunum og
þrátt fyrir brösótt gengi á árinu er
syartsýni ekki að finna í orðabók
KR-inga þessa dagana. — CÞÖ
GLÆSILEG
horbjeh
lönnvn
íslandsmótið
í handknattleik 2.
Þór - Fjölnir
í íþróttahöllinni í kvöld kl. 20.30
Mætum og hvetjum okkar menn!