Dagur - 29.11.1997, Side 2
18-LAUGARDAGVR 29.NÓVEMBER 1997
D^ir
LÍFIÐ í LANDINV
L.
Örn Árnason.
Helgarpottur-
inn hefur kraumað alla vikuna yfir
„pressuballinu" á laugardag þar sem mik-
ill glaumur ríkti meðal gesta en skemmti-
atriði Spaugstofunnar verið gagnrýnd.
Jafnvel hinir „gangrýnislausu" íslensku
blaðamenn eru óhressir með þá Karl
Agúst og Orn Ama sem hingað til hafa
verið eins og óskabörn pressunnar.
„Prump og fret,“ segir ijórða valdið um
spaugvaldið og fitjar upp á nefið. Það er
ekki hægt að gera þessu liði til geðs, það
vita stjómmálamennirnir best!
Fréttamaðurinn góðkunni Helgi Már
Arthúrsson var á pressuballinu og sér-
lega hlýlega fagnað af starfsfélögum,
enda kominn úr endurhæfingu í kjölfar
hjartaáfalls sem hann fékk í efnisöflun-
arferð til Finnlands. Helga er von á
skjánum í næstu viku. Með hjartað á
réttum stað og finu formi.
Sjónvarpið fagn- Helgi Már Arthúrsson.
ar fullveldisdeg-
inum með nýju
„setti". Þar er átt við leikmyndina sem
þulir setjast í þegar klukkan slær átta og
þjóðin horfir á fréttir. Síðan Helgi H.
varð fréttastjóri hefur hann lítið sem ekk-
ert lesið kynningar að fréttum, en hver
veit nema nýja sviðið breyti þvír Kemur í
ljós á mánudag, þá verður frumsýning.
Helgi H. Jónsson.
Stöð 2 hafði auðvitað veður af nýja
„settinu" hjá Rúv, en lét sér nægja að
breyta bakgrunnsmyndinni fyrir aftan
Pál og Eddu. Enda tæpast búið að af-
skrifa tugmilljónasettið sem Ingvi
Hrafn fékk á staðinn. Neyðin kennir
naktri konu að spinna: nýja mynd fyrir
aftan og ný jakkaföt á Pál!
Enginn má fara í jólaköttinn um þessi
jól og auðvitað gera verslunareigendur
sitt til þess að svo fari ekki. Margir eru
famir að kaupa jólafötin enda ber úrvalið greinileg merki þess
að kjarasamningar hafi verið gerðir á árinu og efnahagslífið á
uppleið - í bili að minnsta kosti. Þegar gengið er búð úr búð
hanga stuttkjólarnir í röðum og úrvalið af síðkjólum hefur aldrei
verið meira enda missti ein verslunarkonan út úr sér um dag-
inn: „Þetta verða kjólajól í ár!“ Sorrí strákar. Þessir síðu eru í
tísku.
Og af því að Haraldur Böðvarsson, sonur
Böðvars Bragasonar ríkislögreglustjóra,
er svo mikið í sviðsljósinu þessa dagana
vegna ákæru nektardansmærinnar á
Vegar, er rétt að rifja upp að hann var lög-
reglumaður á höfuðborgarsvæðinu um
nokkurt skeið, bæði í Kópavogi, Hafnar-
firði og Seltjamarnesi, og virtist hafa
gaman af því starfi. Sagan segir að Har-
aldur hafi fílað starf lögreglumanns með
þvílíkum krafti að jafnvel Sæma rokk hafi
þótt nóg um hvað ljósin blikkuðu mikið á
Nesinu.
Menn velta íýrir sér hvaða skákir verði
næst leiknar í prestamálum í Reykjavík.
Staða prests í Hallgrímskirkju er nú
laus, enda er sr. Karl Sigurbjörnsson
orðinn biskup. Séra Jón Dalbú Hró-
bjartsson hefur gert heyrinkunnugt að
hann sækist eftir embættinu, en fleiri
munu einnig lítu hýru auga þessa á
Skólavörðuholt. Hinsvegar segja menn
er gerst þekkja til í kirkjupólítík að
erfitt kunni að ganga frá hjá Jóni Dalbú, _____________
prófasti í Reykjavíkurprófastdæmi vestra.
En þá myndi embætti sóknarprest í Laugarneskirkju í framhald-
inu losna. Þá velta menn fyrir sér hvar menn einsog sr. Baldur
Kristjánsson, fráfarandi biskupsritari, muni bera niður, en sem
kunnugt er tapaði Baldur á dögunum þegar kosið var um emb-
ætti sóknarprests í Skálholti.
Haraldur Böövarsson.
Spádómskertið
logar
Á morgun kveikja
margirá spádóms-
kerti, endafyrsti í
aðventu og þar með
hefst undirbúningur
fyrirjólin. Undirbún-
ingursem í kaþólskum
sið þýddi föstu og
bann við
kjötáti.
Desemberfastan er í kristnum
sið hugsuð sem undirbúnings-
tími fyrir fæðingarhátíð frelsar-
ans. „Hún heitir á latínu advent-
us sem merkir „tilkoma", eins og
sagt er í Sögu dagana eftir Arna
Björnsson.
„Jólaföstu verður fyrst vart um
miðja 5. öld í Antíokkíu á Sýr-
Iandi og á Norður-Ítalíu en öld
seinna í Rómaborg," segir Arni
og tiltekur einnig að þótt ekki
liggi í augum uppi að draga við
sig kjötmeti á föstunni megi
benda á að haustslátrun var víð-
ast lokið fyrir nokkru. „Þá höfðu
menn belgt sig upp af alls kyns
nýjum sláturmat, svo að tíma-
bært var að hvíla meltingarfærin
og spara kjötbyrgðir áður en
vetrarveislur hófust. Um þetta
leyti stóð fengitími sauðfjár
einnig mjög víða yfir, en skiljan-
lega vildu hjarðþjóðir ekki slátra
úr bústofninum frá sláturtíð
fram að sauðburði nema brýna
nauðsyn bæri til.“
Hvað heita kertin fjögur?
I dag þýðir aðventan eitthvað
allt annað en aðhald í mat eða
öðru. Kertin fjögur sem prýða
aðventukransa heimilanna
minna menn heldur á að nú fari
tími til gjafakaupa að styttast.
„Aðventukransar þeir sem marg-
ir útbúa til heimilisskrauts á
jólaföstu eru tiltölulega ungt fyr-
irbæri." Arni bendir á að al-
mennt hafi þessir kransar ekki
farið að sjálst á Islandi fyrr en
eftir seinni heimsstyijöld og þá
fýrst sem skraut í einstaka búð-
argluggum eða veitingahúsum.
„Þeir breiddust mjög hægt út og
urðu ekki umtalsverð söluvara
fyrr en milli 1960-70. Samtímis
því færðist í vöxt að fólk byggi til
sína eigin aðventukransa."
Litur kirkjunnar á aðventunni
er fjólu- eða lillablár og stendur
fyrir iðrun og undirbúning.
Þessi sami litur er notaður á
löngu föstu, fyrir páskana. Kert-
in á kransinum eiga því að vera
lillablá en sumir kransar hafa
fimm kerti, þá er eitt hvítt kerti,
svokallað Kristskerti, í miðjunni.
Kertin fjögur eiga sér öll nöfn.
Þann fyrsta í aðventu á spádóms-
kertið að loga en þann dag eru
lesnir upp spádómar úr Gamla
testamentinu um frelsarann.
Síðan kemur Betlehemskertið,
þá hirðakertið og loks englakert-
ið. „Kransinn byggir á gamalli
norður-evrópskri hefð,“ segir
Orn Bárður Jónsson, fræðslu-
stjóri kirkjunnar. „Grenið er
tákn um hið eilífa líf enda sí-
grænt og hringurinn er tákn um
eiljfðina, án upphafs og endis."
Om Bárður segir hefðina fýrir
rauða Iitnum þó ríka á jólunum
eins og við þekkjum. „Rauði litur-
inn er í sjálfu sér hátíðarlitur en í
kirkjunni er hann notaður á ann-
an í jólun þegar píslarvotta er
minnst og síðan er hann notaður
á hvítasunnu sem tákn um eldinn
eða heilagan anda sem settist á
hvem og einn eins og tungur af
eldi væm. -En ef fólk vill halda
kirkjulegu hefðina þá eiga kertin
að vera lillablá eða fjólublá."
Aðvenfuálag
Samkvæmt Sögu daganna hefur
eitt einkenni aðventu haldið sér.
„Það sem Islendingum virtist
löngum minnisstæðast við jóla-
föstuna var hið mikla vinnuálag
sem fólk mátti þola, einkum við
tóskapinn. Af kappsemi og Iang-
vökum við smáband og aðra tó-
vinnu fékk síðasta vika jólaföstu
nöfn eins og augnvika, staurvika
og vitlausa vika. Þaðan er einnig
runnin hin lifsseiga sögn um
augnteprur eða vökustaura sem
spennt væru á augu fólks til að
halda því vakandi við tóvinnu."
-MAR
Maður vUoumar rcmiur
Kiddi Bubba er maður vikunnar. Eitthvað kom yfir hann og hann
rann. Hraðar enflestir heimsklassamenn meðfinustu auglýsinga-
samninga heimsins hangandi utan á sér. Undur Ólafsfjarðar var
orðinn „islenski draumurinn"; eftir að hafa runnið árum saman
afturábak, runnið úr braut, runnið ekki neitt — voru íslenskir
skiðamenn allt i einu menn á meðal skíðamanna en ekki iflokki
með flugfreyjum frá Mexíkó og barþjónum frá Jamaika. Ólafs-
fjörður fór á hvolf. ísland hafði eignast skiðamann! Hógværan,
litillátan sírennslismann sem náði réttum hraða á réttri stund.
Kristinn Björnsson er maður vikunnar. Mamma grét.