Dagur - 29.11.1997, Blaðsíða 17

Dagur - 29.11.1997, Blaðsíða 17
 LÍFIÐ í LANDINU LAUGARDAGUR 29. NÓVEMBER 1997 - 33 Islenskirkarlareru lok- aðir, sjálfstæðir og ,fín- irstrákar“, miklirfjöl- skyldumenn sem láta konumar sínar mikið um ákvarðanatöku. Harry, Peter og Davíð segja frá því hvemig ís- lenskirkarlmenn koma þeim fyrirsjónir. finnst íslenskir karlmenn mun sjálfstæðari en ungverskir en það fari þó svolítið eftir aldri. Hann segir að ungir strákar séu talsvert fyrir átök og reiðubúnir að beijast fyrir einhveijum málstað eða gegn honum ef sannfæring þeirra og skoðanir bjóða svo. „Unglingarnir, ungir strákar og menn gleyma sér oft og eru til- búnir til að gera hluti sem fyrir- fram er vitað að ganga ekki upp. Harry Buchisa Mashinkila, 33ja ára Zambíumaður, hefur búið á Islandi í rúmt ár, er kvæntur og á þriggja vikna dóttur. Hann telur að íslenskir karlmenn séu mjög lokaðir og kunni ekki „small talk“, að spjalla létt við ókunnugt fólk, heldur sýni bara á sér þurra og kalda forhlið. Eftir að hafa umgengist útlendinga í nokkurn tíma opni þeir sig allt í einu og þá komi í Ijós að þetta séu fi'nir strákar, traustir og góðir vinir og kunningjar. Þeir séu gríðarlegir fjölskyldumenn og vinni mikið, hvort sem það sé eðli þeirra eða eitthvað annað. „Líf þeirra snýst í kringum fjöl- skylduna og börnin,“ segir Harry og þegar hann er spurður hvort íslenskir karlar séu sjálfstæðir segir hann „nei, ég myndi ekki halda það. Þeir gera ekkert nema að ráðgast fyrst við konuna sína. Þeir eru ekki mjög háðir konun- um sínum en þeir taka ákvörðun í samráði og konan stendur mikið á bak við daglega ákvarðana- töku,“ útskýrir hann. í Afríku er karlmaðurinn höfuð Qölskyldunnar og það er hann sem tekur ákvarðanirnar á heim- ilinu. I flestum tilfellum vinnur hann fyrir fjölskyldunni og konan Harry, frá Zambíu, segir að það sé erfitt að kynnast íslenskum karlmönnum. Þeir séu mjög lokaðir og kunni ekkiþá list að spjalla létt og skemmtilega við ókunnugt fólk. Þeir sýni á sér þurra og kalda forhlið en þegar komið sé inn fyrir skelina þá komi í Ijós að þetta séu „fínir strákar". - mynd: eól er heima að sinna börnunum, að sögn Harrys, þó að þetta sé auð- vitað að breytast í Afríku eins og f Evrópu og Bandaríkjunum. Synda gegn straumniun Peter Máté, 35 ára, hefur verið búsettur hér á landi í tæp átta ár. Hann er ungverskur að uppruna en alinn upp í þáverandi Júgóslavíu. Hann er kvæntur, á tvo stráka, og kennir í tónlistar- skólanum á Alftanesi. Peter Mér finnst þeir stundum synda gegn straumnum og Ienda beint á vegg. Þetta er kannski sjálfstæð ákvarðanataka en það getur haft neikvæð áhrif fyrir framtíðina og þunglyndi getur fljótt komið upp þegar hlutirnir ganga ekki eftir eins og vonast var til,“ segir hann. - Þrjóskir kannski? „Getur verið.“ Peter segir að ungverskir karl- menn hafi ekki tileinkað sér jafn- Davíð Janis frá Indónesíu segir að I gamla daga hafi íslenskir karlar haldið fast í karlmennskuímyndina, „ég er karlmaður, ég ræð öllu", en virðing þeirra fyrir konum hafi aukistsíðan og kurteisin sömuleiðis. - mynd: eól mikið sjálfstæði og þeir íslensku. Þeir hafi verið bældir niður í sós- íalísku þjóðfélagi og því feimnir við að sýna sjálfstæði. Þetta hafi reyndar breyst fyrir sex til sjö árum og batnað til muna síðan. Peter kynntist miðaldra ís- lenskum karlmönnum úti á landi þegar hann bjó þar í nokkur ár og segir að ölÍ samskipti við þá hafi verið mjög jákvæð. Menn á aldr- inum 50-60 ára séu skapmiklir og hafi gaman af Iífinu, fari á tónleika og syngi í kórum, ferðist mikið og skemmti sér við bridds, íþróttir og böll. Honum finnst áhugi á listum mun almennari meðal fslenskra karla en ung- verskra. „Almennt eru íslenskir karlar mjög góðhjartaðir og miklir fjöl- skyldumenn. Góðsemi og hjálp- semi er ekki jafn augljós hjá okk- ur eins og íslenskum körlum,“ segir Peter. Hann telur að skilnaðartíðni sé há á Islandi og það virðist koma honum á óvart að eftir tiltölulega stuttan tíma telji Islendingar sig hafa reynt til þrautar að láta hjónaband ganga. Það er á hon- um að heyra að Ungverjar taki slíkum hlutum mun alvarlegar enda bendir hann á að þeir séu vanir því að taka ákvarðanir til lengri tíma litið. Sjálfur kveðst hann vera óvanur því að taka skyndiákvörðun. „Eg er lítið fyrir reynsluakstur." Virðingm hefur auldst Davíð Janis er að uppruna frá Indónesíu en hefur búið á Islandi í 27 ár, er hér kvæntur, á fjögur börn og löngu orðinn íslenskur ríkisborgari. Davíð segir að við- horf og framkoma íslenskra karla til kvenna hafi breyst gríðarlega á þessum 27 árum frá því hann kom hingað fyrst. I gamla daga hafi íslenskir karlar haldið fast í karlmennskuímyndina, „ég er karlmaður, ég ræð öllu“, en virð- ing þeirra fyrir konum hafi aukist og kurteisin sömuleiðis. I gamla daga hafi til dæmis karlmenn aldrei opnað dyr fyrir konum og tekið óstinnt upp að erlendir menn gerðu það. En þetta hafi breyst. „Þetta er kynslóðin sem hefði bara drepist úr hungri fyrir fram- an ísskápinn, gat ekki einu sinni „Almennt eru íslenskir karlar mjög góðhjartaðir og miklir fjölskyldumenn. Góðsemi og hjálpsemi er ekki jafn augljós hjá okkur eins og Islenskum körlum, “ segir Peter Máté, frá Ungverjalandi. opnað ísskápinn og fengið sér mat en það er nú bara grín,“ segir hann og fer að tala um hvað ís- lenskir karlar séu vinnusamir, duglegir að axla ábyrgð á fjöl- skyldu sinni og sinna börnunum. Þeir séu að vísu lokaðir gagnvart útlendingum í fyrstu og fylgist með þeim úr fjarlægð í nokkurn tíma. Taki þeim svo opnum örm- um. — GHS

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.