Dagur - 29.11.1997, Blaðsíða 9

Dagur - 29.11.1997, Blaðsíða 9
LAUGARDAGUR 29.NÓVEMBER 19 9 7 - 25 LÍFIÐ í LANDINU „Þrotlaus vinna held ég að sé grundvöllur þess að geta ort góða vísu,“ segir Pétur. „Margir halda að það eitt að alast upp í kring- um þá sem kunna vísur sé nóg til að geta ort þær. En menn þurfa að kunna skil á bragfræði og leggja vinnu í að yrkja. Yfir- leitt hnoða menn saman miklu af leir- burði áður en þeir skapa einhver verk af viti. Eftir því sem menn yrkja meira ná þeir meira valdi á list- inni og þá verður skáldskapur- inn áreynslulausari. Þá seytlar vísan áffam, rétt eins og bæjar- Iækurinn. Sjálfum þykja mér það bestu vísurnar. Þegar maður heyrir þær fínnur maður að þær gætu ekki verið öðruvísi." Eftirlætis hagyrðingar Og eftir þessar upplýsingur ligg- ur beinast við að spyija þá feðga um eftirlætishagyrðinga þeirra. „Af núlifandi mönnum sem fást við kveðskap hef ég einna mest gaman af Friðriki Stein- grímssyni úr Mývatnssveit, Jóni Eiríkssyni Drangeyjarjarli og Hjálmari Jónssyni þingmanni," segir Pétur. „En flestar vísur kann ég sennilega eftir Bjarna frá Gröf eins og þessa: Hér er bölvuð ótíð oft og aldrei friður; það ætti að rigna upp í loft en ekki niður. „Skemmtilegasti og besti hag- yrðingur sem ég hef kynnst á lífsleiðinni var Heiðrekur Guð- mundsson skáld,“ segir Halldór með þungri áherslu á orðinu skáld. Hann bætir við: „Það er Ijóst að ef hagyrðingar eru á annað borð skáld þá standa þeir öðrum framar. Heiðrekur var mjög fljótur að yrkja og vísur hans eru snjallar og efnismiklar. Þessi er dæmi um það: Þegar vindur þyrlar snjá þagna og blindast álar. Það er -yndi að eiga þá auðarlindir sálar. Það er til marks um leikni hans að þegar hann var sextugur komu allir bestu hagyrðingar Akureyrar heim til hans til að samfagna honum. Allir ortu þeir til hans vísu og hann svaraði að bragði með betri vísu. Þetta kvöld verður mér ógleymanlegt. Faðir hans, Guðmundur Frið- jónsson á Sandi, var líka skemmtilegur hagyrðingur. Faðir minn kenndi mér þessa vísu eft- ir hann: Þegar lymsku og bygaglaum leggur um byggðir dala, sá sem dregur Tímans taum tekur i nöðruhala. Eldri manna sainkomiir Margir tengja vísnagerð einung- is við eldri kynslóð Islendinga. Er hún kannski deyjandi íþrótt? „Eg held ekki,“ segir Pétur og snýr sér að föður sínum. „Hvernig var þetta þegar þú varst ungur pabbi, voru allir yrkjandi?" „Við ortum mikið í Mennta- skólanum á Akureyri en ég held að það sé ekki eins mikið .ort núna og í þá tíð en ferskeytlan lifír góðu lífi og ungu skáldin eru farin að Ieggja meira upp úr því en áður að yrkja undir göml- um bragar- háttum," segir Hall- dór. Hann stendur skyndilega UPP. gengur að skrifborði sínu og tekur upp orðabók. „Ef einhvern langar til að æfa sig f vísnagerð er tilvalið að taka orða- bókina, finna orð með mörgum merkingum og yrkja gátu þannig að hver merking sé ein ljóðlína," segir hann. „Eg hef ort mikið af þannig vísum.“ Þegar hann er spurður hvort hann geti ekki sett saman eina slíka fær hann „Margirhalda að það eittað alastuppí kringum þá sem kunna vísursé nóg til aðgetaortþær.En menn þurfa að kunna skil á bragfræði og leggja vinnu í aðyrkja. Yfirleitt hnoða menn saman miklu af leirburði áðuren þeir skapa einhververk afviti. “ sér sæti við skrifborðið og tekur að fletta orðabókinni. A meðan fer sonur hans með vísu sem hann orti fyrir tveimur árum þegar verkföll lömuðu þjóðlíf- ið og hann hafði sem ábyrgur þjóðfé- lagsþegn og stuðningsmað- ur rfkisstjórnar- innar áhyggjur af því að verð- bólgan myndi þjóta upp úr öllu valdi yrði gengið að kröf- unum: Á launastríð í landi hér líst mér engan veginn þvt grasið dvallt grænna er í garðinum hinum megin. Eftir þessa snyrtilegu pólitísku vísu er talinu vikið að vísnagerð jafnaldra Péturs sem samkvæmt frásögn hans virðist vera í Iág- marki. „Eg hef þörf fyrir að tala um vísnagerð, bera mig saman við aðra en ég hef átt í erfiðleikum með að hafa uppi á jafnöldrum mínum sem áhuga hafa á vísna- gerð,“ segir Pétur. „Eg gekk í Kvæðamannafélagið Iðunni eftir að hafa hitt Steindór Andersen sem taldi sig vera einn af „ungl- ingunum" í félaginu. Hann var þá um fimmtugt. Eg hef mætt á hagyrðingamót úti á landi. Þar er mestmegnis eldra fólk og samkomurnar bera þess merki; dansgólfíð tæmist Idukkan ell- efu.“ Og Pétur segist vilja aug- lýsa eftir ungu fólki sem vilji halda sér félagsskap í Kvæða- mannafélaginu. Hann nefnir Steinar Þór Sveinsson sem helsta vísnafélaga sinn og fer með vísu sem þeir ortu í sam- einingu. Tilefnið voru orð Geirs Haarde á fundi þar sem hann sagði að fóstrur gætu hækkað laun sín með því að fjölga börn- um. Þessi fleygu orð sköpuðu þennan fyrri part hjá Pétri: Geir og fóstrur fagna saman fleygja öllum vörnum Og Steinar botnaði: fullnægja ogfjörlegt gaman fjölga litlum börnum. Feðgar kveðast á Nú er komið að því að spyrja feðgana hvort þeir kveðist á. Pétur jánkar því: „Eg man eina vísu sérlega vel. Eg var á leið heim úr gleðskap klukkan íjögur um nótt. Það var kalt þessa nótt og ég var tilbúinn með fyrri part úr vísu sem ég gat ómögulega botnað: Norðanvindur napur hvín nístir inn að beini Þegar ég hringdi bjöllunni heima tók faðir minn á móti mér og ég fór með fyrri partinn. Hann svaraði umsvifalaust með þremur botnum. Eg man bara þennan: Ekkert get ég elskan mín aftur þó ég reyni. Þegar hér er komið sögu Iítur Halldór upp úr orðabókinni og segir með þungri áherslu: „Nei, þessi botn er ekki góður. Mér fínnst ekki mikið varið í þennan botn.“ Hann hristir síðan höfuð- ið nokkrum sinnum orðum sfn- um til frekari áherslu. Hann virðist þó fljótur að gleyma gömlum syndum og segir: „Mér þykir vænt um vísnaáhuga Pét- urs og reyni að efla hann eftir megni. Ég tek eftir því að ég held að honum sömu bókum og faðir minn gerði þegar hann vildi efla vísnaáhuga minn. Þannig gengur arfur- inn frá kynslóð til kynslóðar. Það væri gam- an ef framhald yrði á því.“ Það er kom- ið að því að kveðja feðgana og blaðamaður rukkar þá um vísnagátur. Þeir leysa verkefnið bæði fljótt og vel af hendi og svo er að vita hvort lesendur eru jafnfljótir að ráða gáturnar og þeir voru að koma þeim saman. Vísnagáta Péturs er svona: Staðarheiti i Kinn og Kjós. í koti bömin geymir. Þar hanga menin dýr á drós. Drykkur um hann streymir. Og Halldór orti á þessa leið: Prýði þykir engin að. Oft sér niður stingur. Þjóðskáld bjó á þessum stað. Þenst hún út og springur. Lausn á gátu Péturs: Háls. Lausn á gátu Halldórs: Bóla. Tollkvótar vegna innflutnings á unnum kjötvörum Með vísan til 53. gr. laga nr. 99/1993 um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum, sbr. breytingu með lögum nr. 87/1995 og með vísan til rg. útgeflnni 26. nóvember 1997, er hér með auglýst eftir umsóknum um tollkvóta vegna innflutnings á unnum kjötvörum. Nánari upplýsingar liggja frammi í ráðuneytinu á skrifstofutíma frá kl. 9.00-16.00. Skriflegar umsóknir skulu sendar með bréfi eða með símbréfi til landbúnaðarráðuneytisins, Sölvhólsgötu 7, 150 Reykjavík og skulu hafa borist fyrir kl. 15.00 mánudaginn 8. desember 1997. Landbúnaðarráðuneytinu, 26. nóvember 1997. Tollkvótar vegna innflutnings á nautgripa-, svína-, alifugla- og hreindýrakjöti. Með vísan til 53. gr. laga nr. 99/1993 um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum, sbr. breytingu með lögum nr. 87/1995 og með vísan til rg. útgefinni 26. nóvember 1997, er hér með auglýst eftir umsóknum um tollkvóta vegna innflutnings á nautgripa-, svína-, alifugla- og hreindýrakjöti. Nánari upplýsingar liggja frammi í ráðuneytinu á skrifstofutíma frá kl. 9.00-16.00. Skriflegar umsóknir skulu sendar með bréfi eða með símbréfi til landbúnaðarráðuneytisins, Sölvhóls- götu 7, 150 Reykjavík og skulu hafa borist fyrir kl. 15.00 mánudaginn 8. desember 1997. Landbúnaðarráðuneytinu, 26. nóvember 1997. Hluthafafundur Stjórn íslenskra sjávarafurða hf. boðar til hluthafafundar mánudaginn I. desember nk. kl. 14 í fundarsal fyrirtækisins að Sigtúni 42 í Reykjavík. Dagskrá: Tillaga um breytingu á 3.grein samþykkta félagsins þess efnis, að stjórn félagsins verði heimilt að auka hlutafé þess um allt að 200 milljónir króna að nafnverði með áskrift nýrra hluta. Heimild þessi gildi til 30. nóv. 2002 en falli þá niður að því marki sem hún kann þá að vera ónotuð. Stjórn Islenskra sjávarafurða hf.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.