Dagur - 29.11.1997, Blaðsíða 18
34 - LAUGARDAGUR 29. NÓVEMBER 1997
POPPLÍFIÐ t LANDINU
......Jl með meiru
■ Sem kunnugt er gekk leikverkið Veðmálið eftir Mark Medoff
glimrandi vel hjá Leikfélagi Islands í sumar. Tónlist af ýmsu
tagi tengist verkinu og nú nýlega
kom út geislaplata með henni auk
ríkulegrar „rúsínu í pylsuenda"
Lögin á plötunni eru flest erlend,
en umsjón með tónlistinni í leikrit-
inu hafði Emilíana Tbrríní. Syngur
hún í þremur lögum, í tveimur
ásamt Birni Jörundi Friðbjörnssyni,
en í hinum þremur Iögunum seml
tekin voru sérstaklega upp fyrir plötuna er Guðmundur Pét-
ursson gítarleikarinn góðkunni að mestu í aðalhlutverki. Að-
urnefnd rúsina er svo hið bráðskemmtilega titillag kvik-
myndar Oskars Jónassonar, Perlur og svín, sem ungfrú Em-
ilíana syngur með „stæl“. Lagið samdi Ólafur Gaukur og er
það eitt út af fyrir sig þess virði að gefa þessari plötu gaum.
tónlistarfyrirbæri og menning-
una þar í kring, t.d. pönkið og
diskóið, varð hippatónlistin nokkuð
á eftir hérlendis. Spilverk þjóðanna,
sem eftir nokkra mótun spratt frarn
árið 1973-74, verður að teljast visst
dæmi um „síð-hippasveit“, en hún
fór ekki að láta að sér kveða í útgáfu
fyrr en 1975, en þá voru liðin heil
sjö ár frá upphafi þessa hippafyrir-
bæris. En Spilverkið var mun meira
en bara hippafyrirbæri, Sveitin varð á sínu útgáfuskeiði ein
vinsælasta poppsveit Iandsins og verður eldd hvað síst
minnst fyrir það. En ekki er ástæða til að rekja söguna frek-
ar hér, því út er komið vandað 20 laga safn, sem segir sög-
una í hnotskurn og ekki bara í tónum, heldur textum líka
auk þess sem góð úttekt á ferlinum fylgir í rituðu máli. Nú
hafa reyndar a.m.k. þrjár plötur Spilverksins verið endurút-
gefnar á geislaformi, en safnútgáfan nú er engu að síður
góð. Svo mun ekki loku fyrir það skotið, að Egill, Valgeir,
Bjólan, Diddú og o.fl. komi fram í tilefni af útgáfunni, en
það hefur ekki verið ákveðið svo vitað sé.
/ .gjMjMllÉlllíÍÉÍÍtP1*1^
'v \Merks
Merk saga Spilverksins
Eins og má segja með fleiri
Það verður ekki annað sagt en þetta árið sé við-
burðarríkt hvað varðar tón- og ljóðskáldið
mikla, Megas. Eigi færri en þrjár plötur honum
tengdar eru að koma út á þessum síðustu vikum
ársins og hver með sínu sniði. Þar ber fyrst að telja
endurútgáfuna á tónleikaplötunni margfrægu, Drög
að sjálfsmorði, Megasarlög er það svo í öðru lagi,
túlkunarplatan bráðskemmtilega þar sem margir af
helstu ungtónlistarmönnum landsins fara mikinn í
að glæða lög og texta hans nýju lífi. Síðast en ekki
síst er það svo ný plata að hans eigin hálfu, Fláa
veröld, sem kom út fyrir stuttu. Má segja um hana,
að hún sé beint framhald af Til hamingju með fall-
ið frá því í fyrra. Fláa veröld er líkt og sú mikil að
vöxtum með ýmsum tónlistarlegum blæbrigðum, en
er e.t.v. ekki eins hrá, blúsuð, í rótunum. Fyrir
hendi eru svo sem alltaf íyrr, innihaldsríkar og
krefjandi textasmíðar, sem stinga á ýmsum kýlum
og senda tóninn til þeirra sem eiga, með þeim
hætti sem meistaranum er einum lagið. Leikur að
orðum og skírskotanir „með háðsglotti á vör“ eru
áberandi eins og svo oft áður og hitta örugglega í
mark ef að líkum lætur. Dæmi um orðaleiki er t.d.
nafn plötunnar sjálfrar, sem óneitanlega fær mann
til að hugsa um verk annars borgarskálds, Tómasar
Guðmundssonar, Fagra veröld (sem Megas hefur
auðvitað
lesið og
orðið hrif-
inn af). Og
annað
slíkt dæmi
er eitt af
skemmti-
legri lög-
um plöt-
unnar,
Tíu fötin
keisar-
ans, sem snýr út úr
heitinu á hinu fræga ævintýri H.C. Ander-
sens, Nýju fötin keisarans. Annars fer almennt best
á því að hver dæmi fyrir sig og túlki það sem fyrir
augu og eyru ber þegar Megas er annars vegar. Það
er orðin fræg saga, gömul og ný, að menn finni
ótrúlegustu merkingar út úr textum kappans og
verði uppnumdir af tónsköpun hans, bæði í já-
kvæðri og neikvæðri merkingu. Þannig á það líka
að vera og víst er að Fláa veröld gefur tilefni til
slíks um leið og hún sýnir að Megas er sannarlega
ekki dauður úr öllum æðum.
Adams slæst í hópinn
Kanadíski gallabuxn-
arokkarinn, Bryan
Adams, er án efa /f||
einn af vinsælustu tónlist-
armönnum samtímans. FwgÉMEÆ
Nægir bara að nefna það ^ '
eitt, að lagið hans, Every- .
thing I do I do it for you,
er eitt það langsettnasta á
toppi breska vinsældalist-
ans frá upphafi, en lagið * íA
var sem kunnugt er í
myndinni um Hróa hött.
Kappinn á svo fjölmörg
önnur lög sem orðið hafa Bryan Adams <
vinsæl, t.d. Summer of spennandi „L
69, Run to you og mörg
fleiri. Það verða því eflaust margir ánægðir nú i
byrjun næsta mánaðar þegar nýjasta afurð
kappans kemur út. Nánar tiltekið verður það á
mánudaginn og slæst Adams þar í hóp fjöl-
Pit
Bryan Adams er að senda frá sér
spennandi „Unplugged" plötu.
greinilega í gangi
reyndar oft áður).
annars nær nýjar,
York.
margra annara tónlistar-
manna við gerð hennar.
Um er að ræða „Unplug-
ged“ plötu, sem einfald-
lega mun heita, Bryan
Adams MTV Unplugged.
Á gripnum verða í það
minnsta 13 lög, þar af 3
glæný, sem gerir plötuna
athyglisverðari en ella.
Eitt nýju laganna nefnist
Back to you og verður
það gefið út á smáskífu
eftir rúma viku. Hin nýju
lögin tvö heita, A little
love og when you love
someone. (Mikil ást
hjá rokkaranum, eins og
Upptökurnar á plötunni eru
fóru fram í október í New
Bergmál bjartra radda
Engum blöðum er um að fletta, að systkinin Ellý og Vil-
hjálmur Vilhjálmsbörn eru í hópi bestu söngvara íslandssög-
unnar. Þá er sérstaða þeirra beggja
ótvíræð og það hlýtur að teljast
einstakt að tvö systkini hafi náð að
marka sér slíka sérstöðu og þau
tvö. Sitt í hvoru lagi gerðu þau
ógleymanlega hluti, en saman
sungu þau einnig lög sem greipst
hafa í þjóðarsálina. Bergmál hins
Iiðna er plata þar sem er að finna
öll þau lög sem Ellý og Vilhjálmur sungu saman, samtals 18.
Upptökur þessar eru reyndar misjafnar, börn síns tíma, en
þetta safn hlýtur að teljast fagnaðarefni fyrir marga og er
merk heimild um þessar mildu og fögru systkinaraddir. Þessa
plötu geta landsmenn eignast á sérkjörum með því að ganga í
tónlistarklúbbinn sem stendur að útgáfunni.
fíJJ&ml afturáferð
N. Bretinn JJ Soul hefur verið búsettur hérlendis í nokkur á og
troðið upp með hljómsveit vopnaður sinni djúpu og hljóm-
miklu rödd. Fyrir tveimur árum sendi hann ásamt valin-
kunnum íslenskum tónlistarmönnum frá sér plötuna,
Hungry for news og nú er JJ Soul band aftur á ferðinni með
plötu, sem kallast City life. Stílhreinn og nokkuð góður
djass með blúskeim í bland er á ferðinni nú eins og á fyrri
plötunni og eru Iögin 13 sem hana prýða öll eftir JJ og Ingva
Þór Kormáksson utan eins, Fully Valentine, eftir þá Rodgers
Regers og Hammerstein. Platan má teljast nokkuð aðgengi-
Ieg og rödd JJ gerir hana býsna sérstaka. Annars vita gestir
staða á borð við Blúsbarinn og Kringlukrána hvað er á ferð-
inni þar sem JJ Soul band er.