Dagur - 29.11.1997, Blaðsíða 10
■c p ° *
1 \r T
f> r n ,'x r. «
— LAUGARDAGUR 29.NÓVEMBER 1997
tölvur
DIGITAL A ISLANDI
Vatnagörðum 14, sími 533 5050, fax 533 5060, http://www.digital.is
LÍFIÐ 1 LANDINU
Reykingafólk
er með útblástur
Útblástur mælist hjá
reykingafólki og því er
það að menga um-
hverfið meðan það
reykirogjyrstáeftir.
Það merkilega erað út-
blásturmælist líka hjá
þeim sem reykja ekki
nema óbeint.
,Jú, kolsýrlingur (kolmónoxíð)
er eitt af brunaefnunum sem
hafa skaðleg áhrif á umhverfið
lfkt og koltvísýringur í útblæstri
bíla. Kolmónoxíð verður til við
bruna á sígarettum, og fólk
dregur það að sér í miklum mæli
þegar það reykir,“ svaraði Krist-
björg Marteinsdóttir, sem und-
anfarna daga hefur boðið við-
skiptavinum Ingólfsapóteks að
mæla þéttni kolmónoxíðs í út-
blæstri þeirra. Mælingin sýnir
jafnframt það hlutfall blóðkorna
sem er án súrefnis vegna þessa
eiturefnis. I stórreykingamanni
geta jafnvel 10% blóðkornanna
verið án súrefnis.
Ems og sjóræningjar
í æöuniun
„Eg nota oft þá líkingu, að þegar
þú dregur að þér kolmónoxíð
vinnur það eins og litlir sjóræn-
ingar sem ræna blóðkornum
sem eiga að flytja súrefni en
flytja eiturefni í staðinn - þannig
að hjartað þarf að vinna hraðar
og erfiða meira til að viðhalda
eðlilegum súrefnisflutningi um
líkamann," sagði Kristbjörg.
Raunar myndast kolmónoxíð í
örlitlum mæli við bruna í líkam-
anum sjálfum. Fólk sem er alveg
laust við reyk mælist með gildi
2. Hjá reykingafólki segir Krist-
björg gildið ráðast af því hvað
mikinn reyk það dregur ofan í
Iungu og hvenær dagsins mælt
er. Það gæti verið frá 10 og hæst
hafði Kristbjörg séð 77. Koldí-
oxíð getur líka mælst í útblæstri
hjá börnum reykingafólks vegna
óbeinna reykinga þeirra meðal
foreldranna. „Hjá krökkum hef
ég séð upp í gildi 12, sem er þá
eins og vægar reykingar."
Mest þegar fólk fer í háttiun
Þéttni efnisins segir Kristbjörg
að mælist mest rétt eftir að fólk
hefur reykt, en síðan byrji lík-
aminn að losa sig við það. Það
taki hins vegar 12 tíma, svo
venjulegur nætursvefn nægi
ekki. Hjá þeim sem reykir reglu-
lega hækkar gildið eftir þ\a' sem
Iíður á daginn. „Alagið á hjarta,
æðar og lungu er því mest þegar
fólk fer að sofa,“ sagði Krist-
björg. Þéttni í lungum mælist
t.d. á bilinu 20-25 hjá þeim sem
reykir pakka á dag og 40-50 hjá
tveggjapakka-manni - sem þýðir
þá að 7-8% blóðkorna hans eru
súrefnislaus. — HEI
/
m
j ÓIASTJA RNA N ER KOMIN
í BfÓMAVERSlANIR UM EANDAflT
Jólastjarnan er viðkvæm fyrir kulda
og dragsúg. Því er sérstök ástæða
til að benda söluaðilum á að pakka
henni vel inn fyrir viðskiptavini sína.
íslensk jólastjarna er ræktuð í
mörgum stærðum og
verðflokkum.
Berið saman verð og gæði!
BÆTUM IÍFIÐ MEÐ BIÓMUM!
BLOMAMHHSTÖÐIN
s
Islenskir garöyrkjubœndur