Dagur - 29.11.1997, Side 6

Dagur - 29.11.1997, Side 6
22- LAUGARDAGUR 29 .NÓVEMBER 1997 LÍFID í LANDINU Boris BjamiAkbachev þekkir ekki aðra vinnu en handbolta og hermennsku. Hann er Rússinn í íslenska landslið- inu, maðurinn á bekknum meðÞorbimi Jenssyni og sumirsegja „heilinn“ á bak við framtíð íslenska hand- boltans. Á morgun verður hann á sínum stað á bekkn- umgegn Júgóslavíu - en hver erþessi dulaifulli maður? Hver er hann þessi Boris Bjami Akbachev? Dagur lagði þessa spurnigu fyrir fólk á fömum vegi á dögunum og svörin vom margvísleg. Dæmi: „Hann hlýtur að vera Rússi.“ „Hann er eitthvað í íþrótt- um.“ „Hann er þjálfari „Hann er handboltagúrú frá Sovétríkjunum og heilinn á bak við vel- gengni Vals og landsliðsins að und- anfömu eins og allir vita sem fylgst hafa með handboltan- um,“ sagði spakur maður. Borinn og bamfæddur Moskvubúi Boris Akbachev er fæddur og uppaiinn í Moskvu. Hann lifði þá tíð er sultur svarf að fólki og lífsbaráttan var hörð. Baráttan um brauðið var mikil og menn stálu sér til matar. „Eg ólst upp í Moskvu. Það voru ekki alltaf jólin á mínum unglingsárum. Ég var átta ára þegar stríðið við Þjóðverja byrjaði. Styrjaldarárin fimm voru erfið og næstu ár þar á eftir. En ég komst ágæt- lega af. Ég gekk í skóla þar til ég var kallaður í herinn en þar hófst handboItaferillinn.“ Að eigin sögn náði hann aldrei að verða snillingur á vellinum og því snéri hann sér að þjálfun ári eftir að hann varð Sovétmeistari. „Ég lauk kennara- og íþróttakennaraprófi eftir að hermennsk- unni lauk og hef ekki komið nálægt neinu nema hand- boltaþjálfun síðan. Ég þjálfaði eitt af toppliðum Sovétríkjanna, Kunzevo Moskva, í 25 ár. A þeim tíma urðum við nokkrum sinnum meistarar og bikar- meistarar og alltaf í toppbaráttunni. Ég þjálfaði líka sovéska landsliðið, fyrst árin 1967-1969 og aftur 1970-1974. Það var ansi erfiður tími og mikil barátta. Sam- komulagið við aðra þjálfara þess var ekki alltaf sem best og þá hafði ég ekki áhuga fyrir starfinu Iengur og hætti.“ Til íslands - Hvað var það sem fyrst dró Boris til ís- lands? „Ég kom fyrst til Islands til þess að þjálfa meistaraflokk Vals árið 1980. Þá höðu Víkingar hrifsað af þeim Is- landsmeistaratit- ilinn sem þeir höfðu unnið þrjú ár í röð þar á undan. Það var erfitt að taka við Valsmönnum þá. Þeir vildu auðvitað vera topp lið en þeir æfðu eins og kerlingar, þrisvar í viku. Ég ríldi láta þá æfa 6-7 sinnum í viku og gera þá að sterkum handknattleiksmönnum. Þeir voru alltof linir því þeir lyftu aldrei. Ég kom með miklu meiri líkamsþjálfun inn í liðið en þeir höfðu þekkt. Þeir voru ekki tilbúnir í Jj svona mikla vinnu. Það var ekki fyrr en þeir skildu að ég var atvinnu- þjálfari og að mig langaði ekkert til að vinna bara nokkra klukkutíma á viku. Það er útilokað að ná ár- angri í handbolta án þess að vera sterkur og í góðu líkamlegu ástandi." En eftir tveggja ára starf hjá Val hélt Boris á heimaslóðir á ný. í höfuðið áBjama FeL? Boris kom svo aftur til Islands árið 1987, þá til Breiðabliks í Kópavogi þar sem hann þjálfaði í tvö ár áður en hann snéri aftur að Hlíðarenda og tók við þjálfun yngri flokka Vals. Síðan hefur Boris Bjarni búið á Islandi og er nú orðinn íslenskur ríkisborgari eins og millinafn- ið bendir til. Eftir því sem blaðið hefur fregnað leist Boris ágætlega á Bjarna- nafnið eftir kynni sín af Bjarna Fel. og Boris Bjarni á landsleik íslendinga og Júgósiava á fimmtudagskvöidið var. mynd: bg. ákvað að taka sér það að millinafni. Þetta er þó óstaðfest. - A/ hverju skildi Riíssinn hafa sest að á Islandi en ekki í einhverjuöðru landi þar sem meira er um að vera í handholtanum? „Hér hef ég ágæta vinnu. Launin eru að vísu ekki stórkostleg en ég hef vinnu og það eitt skiptir máli. Hér er ágætt að vera en hvorki betra eða verra en annars- staðar. Mér er alveg sama hvar ég bý ef ég hef vinnu sem mér líkar. Hér hef ég fjölskylduna hjá mér og hún hefur það gott.“ — En hvers vegna íslenskur ríkisborgari? „Þegar ég fór að vinna með Þorbirni við þjálfun Iandsliðsins þurfti ég náttúrulega að ferðast meira en áður. Þá dugar ís- Ienskt vegabréf betur en rússneskt." Handboltmn er betri nú - Hefur Boris Bjarni séð einhverja hreyt- ingu á handholtanum hér á landi st'ðan hann komfyrst árið 1980? „Já, hér hefur orðið mikil breyting. Is- lenskir handboltamenn æfa mun betur nú en áður og lögð er mun meiri áhersla á þjálfun yngri flokkanna." Það hefur vakið athygli hve margir efnilegir handknattleiksmann hafa komið úr röðum Vals eftir að Boris hóf þar þjálf- un. Hann hefur nú alið upp tvær kyn- slóðir handknattleiksmanna hjá Val og sú þriðja er á leiðinni. Það er fróðlegt að líta á þær stjörnur sem skærast hafa skinið eftir uppeldið hjá Rússanum. Þar má nefna Valdimar Grímsson, Geir Sveins- son og Júlíus Jónasson sem allir eru landsliðsmenn. Ur annarri kynslóðinni eru landsliðsmennirnir Dagur Sigurðsson og Olafur Stefánsson, sem er einn dýrasti handboltamaður heimsins í dag. I þriðju kynslóðinni eru leikmenn að koma upp eins og Snorri Steinn Guðjónsson (Gaupasonur Guðmundssonar á Stöð 2), Markús Máni Mikaelsson, Bjarki Sig- urðsson, bróðir Dags, og Isleifur Sigurðs- son, sonur Sigurðar Gunnarssonar Haukaþjálfara. Þessir eru sagðir með þeim efnilegri hér á Iandi í dag. - En af hverju vill Boris frekar þjálfa yngri flokka en meistaraflokka? „Mér finnst gaman að horfa til framtíð- arinnar. Maður hefur lftil áhrif á þróun- ina ef maður er alltaf að meðhöndla full- orðna menn. Ég er ákveðinn við þá. Ef þeir hafa ekki tíma fyrir handboltann rek ég þá. Ef þeir vilja frekar eyða tíma sín- um á Hallærisplaninu eða slíkum stöðum hafa þeir ekkert að gera í handbolta. Þeir sem velja handboltann og halda sig við hann eiga framtíðina fyrir sér.“ Tobbi iim Boris Að lokum er fróðlegt að sjá hvað lands- liðsþjálfarinn, Þorbjörn Jensson, hefur um Boris Bjarna Akbachev að segja. „Það sem hann hefur komið með inn í handboltann eru aðallega tækniatriði. Hann er mjög mikill tækniþjálfari og fer mikið í smáatriðin sem, þegar upp er staðið, skipta svo ótrúlega mildu máli og geta skipt öllu máli í jöfnum leikjum. Þessir strákar sem hann hefur þjálfað kunna mjög vel að spila handbolta og lesa leikinn." Á morgun verða þeir saman á bekknum og freista þess að koma „strák- unum okkar“ áfram í Evrópukeppninni. Þá reynir á „Borisinn“ í íslenska liðinu! -GÞÖ.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.