Dagur - 29.11.1997, Síða 7

Dagur - 29.11.1997, Síða 7
LAUGARDAGUR 29. NÓVEMBER 1997 - 23 LÍFIÐ í LANDINU Það eru ekki allir tilbúnirað seljafallega húsið sitt,pakka heimilinu sínu í kassa, lokafyrirtæk- inu sínu,fylla bílinn afbarbídóti og halda til Frakklands án þess að hafa þarfast húsaskjól. Margrét Jónsdóttir, leirlistakona, á Akureyri, og eiginmaður henn- ar, Guðmundur Arnason hótel- stjóri, voru þó tilbúin í það og ætla ásamt fjögurra ára gamalli dóttur sinni, Móheiði, að fara til Frakklands í janúar og vera þar í hálft ár. En það er ekki nóg með það því næsta haust ætla þau sér til Suður-Ameríku og vera þar í hálft ár. Ákváðiun að láta verða af þessu „Það hefur verið gamall draumur hjá mér og manninum mínum að fara í Iangt ferðalag og fyrir ári síðan fórum við að ræða hvort þetta ætti áfram að vera draumur eða verða að veruleika. Við ákváðum nánast á einu kvöldi að láta verða af þessu. Þetta var fjar- Iægt í fyrstu og fáir sem trúðu að yrði af þessu því þetta er stór ákvörðun. Við erum búin að gera húsið okkar algerlega upp (gamla Þinghúsið á Svalbarðsströnd) en þegar maður fer að hugsa um hvað eigi að vera ráðandi afl í lífi manns þá finn ég það að húsið er ekki það sem ég er að lifa fyrir. Ef þetta var spurning um að hús- ið myndi stoppa okkur í að fara þá hefði maður verið að byggja sér fangelsi." Eruð þið búin að selja húsið? „Já og það er svo skrítið að ég hef ekki fundið neinn söknuð ennþá þó öll þessi vinna liggi að baki. Þetta hús var ónýtt þegar ég keypti það en núna stendur það fallegt á sínum stað og mér finnst það frábært. Það fer líka í aðra mjög góða notkun því að fólkið sem keypti það ætlar að búa þar og vera með safn fyrir alþýðulist. Það er ég ánægð með og finnst það lyftistöng fyrir Eyjafjörð að fá þetta safn, mér hefði liðið öðruvísi ef þarna hefði átt að vera pylsusjoppa." Upplifi algert frjálsræði Hvað gerið þið þá núna? „Pökkum öllu okkar saman og förum með það til Frakklands sem kemst i bílinn. Eg ætla ekki með neitt, Guðmundur með að- eins meira en ég og Móheiður með fullt af barbídóti. Stefnan er að keyra til Montpellier og vera þar fyrstu mánuðina og dvelja svo tvo mánuði í París þar sem ég hef fengið listamanna- íbúð, Kjarvalsstofu. Stundum finnst mér ég vera að upplifa al- gert frjálsræði því ég er ekki að fara að gera neitt nema það sem mig Iangar til þann daginn. Maður er alltaf svo bundinn því að þurfa að skilja eitthvað eftir sig. Eg hef ekki einu sinni áform um að læra frönsku." Voruð þið orðin þreytt á Akur- eyri? „AIIs ekki. Mér þykir rosalega vænt um Akureyri, Eyjafjörð og fólkið mitt. Málið er að ég hef verið með leirinn milli hand- anna í bráðum tuttugu ár og þar af með verkstæðið í 12 ár. Það er alltaf hætta á stöðnun eftir þetta langan tíma. Líka þegar maður er að vinna svona eins og ég, eftir pöntunum, og fólk að panta það sem ég var að gera í gær. Það vill kaupa eins stell og það sá hjá Fíu frænku sinni í fyrra. Það getur orðið þreytandi fyrir skapandi manneskju eins og mig að vinna þannig. Þarna er svo mikil hætta á því að ég fari að endurtaka mig aftur og aftur. Það er þess vegna sem ég finn að það er kominn tími til að ég fari aðeins frá þessu. Eg hef verið mjög heppin með viðtökur og er þakklát fyrir það. Hef haft nóg að gera en það eru fáir sem koma og vilja fá eitthvað sem mér dettur í hug að gera á morg- un.“ Hvað með verkstæðið? „Það mun bara standa hér eitt og hvíla sig. Við ætlum að koma heim næsta sumar og vinna að- eins fyrir Suður-Ameríkuferð- inni en ég ætla ekki að lofa neinu með leirinn því að éjg finn að ég þarf langa hvíld. Eg get komið á verkstæðið ef ég kæri mig um en það er ekkert víst að ég geri neitt. Kannski kem ég bara, spila James Taylor og glápi út um gluggann. Nei, ég lofa engu næsta sumar. Eg ætla að hafa auðan sjó, bara lifa og vera til.“ Vil hafa allt losaralegt Hvers vegna Frakkland og Suður -Ameríka? „Það er fyrst og fremst draum- ur Guðmundar að fara til Frakk- Iands og læra frönskuna en minn draumur að fara til Suður- Ameríku því þar er náttúrulega margt fallegt að sjá í leir og menningu yfirleitt. Þar ætlum við okkur að ferðast. Fara til nokkurra landa og hreyfa okkur. Við búumst ekki við þvf að verða á einum stað en það getur alveg freistað síðar. Það eina sem við vitum er að við förum til Chile þar sem systir m(n býr og heim- sækjum hana. Þetta er allt mjög losaralegt og þannig viljum við hafa það. Mér finnst það æðis- legt. Þannig brýtur maður upp þetta skipulagða munstur sem maður kemur sér í með hinum ýmsu skyldum. Eg geri mér hins vegar fyllilega grein fyrir því að þetta getur orðið erfitt með stelpuna og þess vegna finnst mér gott að við séum ekki búin að skipuleggja neitt og spilum þetta eftir hendinni. Henni á samt eftir að líða vel ef okkur líður vel.“ Þarf að banka í hausiun á sér Er ekki mikill undirbúningur sem jylgir breytingum eins og þessum? „Jú, það er það. Við höfum verið að skipuleggja þetta í eitt ár. Allavega í andanum. Núna er hins vegar eitthvað farið að ger- ast. Þessu fylgir ennþá engin eftirsjá því mér finnst þetta bara skemmtilegt og hressandi. Það þarf stundum að banka í haus- inn á sér og spyrja sig hvað mað- ur ætli með Iíf sitt. Eg sem lista- maður þarf að skapa mér svig- rúm til að hugsa hvað ég er að gera. Við stefnum heils hugar að því að koma aftur til jAkureyrar haustið 1999 þegar Móheiður byrjar í skóla en svo getur mað- ur aldrei sagt til hvað verður.“ HBG

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.