Dagur - 04.12.1997, Blaðsíða 4
4 -FIMMTUDAGUR 4. DESEMBER 1997
FRÉTTIR
drykkju og agamál, og sátu einnig fundinn bæjarstjóri, sýslumaður,
sóknarprestur, hjúkrunarforstjóri heilsugæslu, kennarar og fulltrúi
framhaldsskólanema. Sýslumaður lét þess getið að stofnað hefði ver-
ið embætti fíkniefnalögreglu fyrir Austurland sem aðsetur hefði á
Eskifirði. Tveir nemendur Verkmenntaskóla Austurlands hafa nýv'er-
ið sótt námskeið sem gefur þeim réttindi til að halda fyrirlestra um
fíkniefnavandann. Námskeið verður haldið fyrir foreldra barna í 8. til
10. bekk um fíkniefna- og áfengismál.
Flugvölliir aöeius opinu af brýuui
nauðsyn
Bæjarstjórn Neskaupstaðar hefur samþykkt að fela bæjarstjóra, Guð-
mundi Bjarnasyni, að óska eftir fundi með flugmálayfirvöldum vegna
flugvallar í Neskaupstað. Fram hefur komið að honum verður ekki
haldið opnum nema brýna nauðsyn beri til. Jafnframt samþykkti bæj-
arstjórn Neskaupstaðar að boða forstöðumenn Fjórðungssjúkrahúss
Austurlands í Neskaupstað og flugumferðarstjóra flugvallar í Nes-
kaupstað á sinn fund til að ræða stöðu þessara mála. — GG
Fjarkönnunarstofa hjá
Veöurstofu
Nefnd um stefnumótun í fjarkönnun á Islandi
hefur skilað Guðmundi Bjarnasyni umhverfis-
ráðherra tillögum og greinargerð, en hann
skipaði nefndina í desember í fyrra. Nefndin
leggur til að sérstök lög verði sett um Ijarkönn-
un og hún verði skilgreind sem sérstakur mála-
flokkur innan stjórnsýslunnar á ábyrgð um-
hverfisráðuneytis. Með Ijarkönnun er átt við
mælingu á geislun frá yfirborði og lofthjúp
jarðar með flugvél eða gervitungli, úrvinnslu
mæligagna og myndræna framsetningu þeirra.
Nefndin Ieggur til að Fjarkönnunarstofa
Guðmundur Bjarnason, um- verði vistuð hjá Veðurstofunni og hlutverk
hverfísráðherra. hennar verði m.a. að taka á móti gögnum frá
gervitunglum og miðla þeim og að tryggja reglu-
lega loftmyndatöku af landinu.
Vel sótt verðhréfanámstefna
Ahugi landsmanna á
hlutabréfum virðist
mikill. A fimmta
hundrað manns sóttu
námsstefnu Verð-
bréfamarkaðar Is-
landsbanka á dögun-
um og komust færri
að en vildu. Því hefur
verið ákveðið að halda
aðra í dag og er yfir-
skrift hennar: Það eru
alltaf tækifæri fyrir
einstaklinga á verð-
bréfamarkaði. A hundrað manns sóttu námsstefnu Verdbréfamarkaðar
Fjallað verður um Islandsbanka á dögunum ogkomust færriað en vildu.
bæði innlendan og er-
lenda verðbréfamarkaði, um hvernig best sé að ávaxta peningana sína
og hvort hagkvæmt sé að kaupa erlend verðbréf í ljósi mikils óróa á
alþjóðlegum hlutabréfamörkuðum.
Flogið í sátt við umhverfið
Flugþing ‘97 hefst á morgun en yfirskrift þess
er: Flugið í sátt við umhverfið. Magnús Jó-
hannesson, ráðuneytisstjóri umhverfisráðu-
neytis, fjallar þar um stefnu ríkisstjórnarinnar
í umhverfismálum og framtíðarsýn fyrir ís-
lenskt flug. Þorgeir Pálsson flugmálastjóri gef-
ur yfirlit um alþjóðlega stefnu í Ilugumhverfis-
málum og sjónarmið flugmálastjórnar og Jan
Villiam Weck, flugmálastjóri Hollands, greinir
frá því hvernig skattlagning og opinberar regl-
ur eru notaðar erlendis í þágu umhverfissjón-
armiða, svo nokkrir fyrirlesarar séu nefndir.
Halldór Blöndal, samgöngu- Flugþing er opið öllum sem áhuga hafa á
ráðherra. flug-, samgöngu- og umhverfismálum.
Jólaaiuiir þings
með minna móti
Tæpar 3 vikur eru eft-
ir af þinghaldinu,
sem á samkvæmt
starfsáætlun að ljáka
20. desember.
„Eg held að þessi desembermán-
uður verði rólegri en áður hefur
tíðkast. Það stefnir allt í það,“
segir Valgerður Sverrisdóttir,
þingflokksformaður Framsókn-
ar. Fádæma rólegu haustþingi
fer að ljúka. Tæpar 3 vikur eru
eftir af þinghaldinu, sem á sam-
kvæmt starfsáætlun að ljúka 20.
desember. Valgerður segir málin
sem afgreiða þurfi fyrir jólahlé
færri en oftast áður og átakamál-
in einnig færri. Meðal þeirra
mála sem væntanlega verður
lögð áhersla á að afgreiða fyrir
jól eru skaðabótalög, frumvarp
um Háskólann, um bann við því
að afskrifa kvóta, skipulags- og
byggingarlög, vegaáætlun og svo
að sjálfsögðu fjárlög og fjárauka-
lög.
Onnur umræða um fjárlögin
átti samkvæmt starfsáætlun að
heíjast í dag, en var frestað þar
til í næstu viku, þar sem Ijárlaga-
nefnd hefur ekki lokið vinnu
sinni við frumvarpið. „Það hafa
aldrei staðist þessar áætlanir og
standast ekki núna heldur," seg-
ir Ólafur G. Einarsson, forseti
þingsins.
Hann segir þinghaldið hafa
verið mjög rólegt það sem af er,
en vill engu spá um hvort takist
að ljúka störfum á tilsettum
tíma, því væntanleg sé „gusa“ af
stjórnarfrumvörpum sem ráð-
herrar reyni að Fá afgreidd fyrir
jól-
Svavar Gestsson, formaður
þingflokks Alþýðubandalagsins,
segist eiga von á að stjórnar-
meirihlutanum takist að búa til
„lotu nú í Iokin eins og áður,“
enda mörg stjórnarfrumvörp
lögð alltof seint fram. Hann tek-
ur undir með Valgerði að stórá-
greiningsmál séu fá, en á þó von
á að tekist verði mjög á um
frumvarpið um Háskólann enda
sé þar vegið að sjálfstæði skól-
ans. — vj
FISK fjölskylduvænt
um jólahátíðina
£nginn togara Fisk-
iðjiumar-Skagfirðmgs
verður á sjó um ára-
mót og er það í fyrsta
skipti til fjölda ára.
Togarinn Skagfirðingur var einn
togara FISK á sjó um jól og ára-
mót í fýrra en áður voru þeir
fleiri sem voru á sjó. Astæðan er
sú að mjög gott verð fékkst fyrir
þann fisk, aðallega karfa, sem
seldur var á fiskmörkuðum í
Bremerhaven í Þýskalandi í byrj-
un árs en að undanförnu hefur
fiskverð erlendis verið að jafnast
og hefur verið tilltölulega gott
undanfarið miðað við sama tíma
undanfarin ár, þ.e. mun minni
sveiflur hafa verið í verðlaginu.
Forsendur fyrir því að vera að
halda togurunum á veiðum um
jól og áramót eru þvf að mestu
brostnar. Segja má því að FISK
sé orðið fjölskylduvænna fyrir-
tæki en áður þegar sjómenn geta
verið í faðmi fjölskyldunnar á
jólahátíðinni.
Jón Friðriksson, framkvæmda-
stjóri FISK, segir allmikið hafa
dregið úr siglingum togara út-
gerðarinnar og meira verið land-
að í gáma. Enginn togaranna er
að fiska í siglingu nú en Skag-
firðingur landar karfa í gáma í
dag til Þýskalands sem fengist
hefur fyrir sunnan land. Togar-
inn Hegranes hefur verið að
veiða þorsk fyrir landvinnsluna á
Sauðárkróld, um 50 til 70 tonn á
viku, og hefur aflinn nægt fyrir
vinnsluna en aflinn er bæði
frystur og saltaður. Meira hefur
farið í frystingu, bæði hefur verð
verið hagstæðara og eins hefur
stærð fisksins passað betur fyrir
þá vinnslu, er heldur smár, svo-
kallaður millifiskur, en þyrfti að
vera stærri fyrir saltfiskvinnsl-
una. Frystihús félagsins á Sauð-
árkróki og Grundarfirði hafa
haft nægjanlegt hráefni til
vinnslu í allt haust, eða frá byij-
un nýs kvótaárs.
Togarinn Skafti er á rækju fyr-
ir norðan og landar á Sauðár-
króki en aflanum er síðan ekið
til vinnslu í rækjuverksmiðju fyr-
irtækisins í Grundarfirði. Þar
hefur að undanförnu verið unn-
inn hörpudiskur og dregið úr
rækjuvinnslunni á meðan en
henni lýkur í þessari viku og þá
verður aukinn kraftur settur að
nýju í rækjuvinnsluna. Frystitog-
arinn Málmey er út af Vestfjörð-
um í þorski og ýsu en Klakkur er
í vélarskiptum í Reykjavík en
hann hefur verið frá veiðum sfð-
an í júlímánuði. Jón Friðriksson
segir það ekkert vandamál, hinir
togarar útgerðarinnar veiði kvóta
Klakks á meðan. — GG