Dagur - 04.12.1997, Síða 4
20 - FIMMTUDAGUR 4.DESEMBER 1997
JÓLALÍFIÐ í LANDINU
Bráðum koma blessuð jólin, böminfara að hlakka
til, segirígömlum texta. Vísteraðflestböm hlakka
tiljólanna og sum meira en önnur. Þetta ertími
Ijósanna, mamma ogpabbi alltafað bauka eitthvað
og dularfullirpakkarbirtasthérog þar. En sumjól
em eftirminnilegri en önnurog þá helstvegnagjaf-
anna semfólk man eftir, annað hvort vegna þess að
þærhafa vakið óvenju mikla gleði eða þá vonbrigði.
Dagurspurði nokkra valinkunna menn og konurum
eftirminnilegustujólagjöfina ogviðþá spumingu
komuýmsarminningarupp hjá viðmælendum
eins og sjá má.
Bara
kubbar!
„Já, þetta kemur nú svolítð flatt
upp á mig, ég man nú ekki einu
sinni hvað ég var gamall, ég hef
sennilega verið svona 4-5 ára,
þegar ég fékk alveg sérstakan
pakka á jólunum. Það var nú
ekki mikið um það á þessum
tíma og þess vegna hefur það
kannski verið einnþá meira
taugatrekkjandi heldur en ann-
ars,“ segir Vilberg Alexanders-
son, skólastjóri Glerárskóla.
„En einmitt um þessi jól, þá
vissi ég af þessum pakka og það
lét svo skrítilega í honum, það
hringlaði í honum og þetta var
alveg hreint rosalega spennandi.
Eg man að ég svaf illa næt-
umar fyrir jól og ég hlýt að hafa
verið með afbrigðum leiðinlegt
bam þessa daga, ég var svo
spenntur. Það hlaut að vera eitt-
hvað svo spennandi í þessum
Vilberg fékk kubba.
pakka að annað eins hefði bara
ekki gerst.
A aðfangadag var svo ekki
hægt að halda þetta út lengur og
ég fékk að opna pakkann ein-
hvern tíma síðdegis, á milli há-
degis og hátíðar og þá komu
innan úr þessu kubbar, alla vega
litaðir kubbar. Eg get sagt það
nú, að ég hef aldrei nokkurn
tíma orðið fyrir öðrum eins von-
brigðum, ég gleymi því aldrei,"
segir Vilberg að lokum. Svona
geta sumar minningar verið
þaulsætnar.
Flosi Ólafsson minnist margs.
Flosi Ólafsson á margs að minn-
ast og hefur löngum sagt góðar
sögur. Þegar hann er spurður
um eftirminnilegustu jólagjöf-
ina, þá verður hann hljóður sem
snöggvast. „Jáhá,“ segir hann.
„Eg veit ekki hvort ég man nokk-
uð núna og þó...“ Og Flosi segir
frá því að einn vetur hafi svo
háttað til, af sérstökum ástæð-
um, að hann var í sveit, á Odd-
stöðum í Lundareykjadal.
Koffort
af
gjöftun
„Hann afi minn, Flosi, tók sig
þá til og sendi mér heilt koffort
af gjöfum. Þetta var allt mögu-
legt, pennar og pennastangir og
ég veit ekki hvað. Hugsa sér,
heilt koffort,“ og Flosi slær sér á
lær í huganum. „Þetta var 1939,
rétt fyrir stríð og ekki mikið að
hafa svo þetta vakti nú aldeilis
athygli," segir hann. „Það voru
jól hjá öllum, þetta var svo mik-
ið og merkilegt, allskonar djásn
og dýrsemdir og þessu gleymi ég
aldrei,“ bætir hann við.
Kort frá „ummstanum“
„Eftirminnileg jólagjöf' sagði
Lilja Ólafsdóttir, forstjóri SVR,
hugsandi. „Eg man eftir mörg-
um góðum gjöfum þegar ég var
krakki, pabbi gaf mér t.d. skrif-
blokk og teikniblokk, það fannst
mér merkilegt. En veistu, það er
dálítið skemmtileg jólagjöf sem
maðurinn minn, sá sem ég hef
verið gift í nær 37 ár núna, gaf
mér þegar ég var 16 ára gömul,
þá ung og mjög ástfangin af
honum.
Eg var í heimavistarskóla og
var í jólafríi heima og hann
sendi mér bók í jólagjöf,
rómantíska ástarsögu, „A vængj-
um morgunroðans" hét hún. Ög
með bókinni fylgdi alveg yndis-
legt og rómantískt kort, sem var
þannig að þegar það opnaðist,
þá opnuðust rauðar rósir og ljúf
ilmvatnslykt fannst. Þetta var
árið 1959, þá fékkst ekki allt
eins og nú svo þetta var dálítið
sérstakt. En ég er enn að velta
því fyrir mér hvernig honum
datt í hug að gefa mér svona
rómantíska gjöf og hann fer
alltaf dálítið hjá sér þegar
minnst er á þetta,“ sagði Lilja
kímin.
Búðar
buxur
bestar
„Ég man alveg eftir einni jólagjöf, það
var í fyrsta sinn sem ég fékk búðarbuxur í
jólagjöf, maður gekk alltaf í prjónabuxum
á Eskifirði," segir Ásdís Skúladóttir, leik-
stjóri hjá Leikfélagi Akureyrar.
„Ætli ég hafi ekki verið svona 5-6 ára,
þá fékk ég búðarbuxur, svona hvítar bux-
ur með teygju í mittið og að neðan. Þetta
þótti alveg meiriháttar, þó buxurnar
þættu sjálfsagt hálfhallærislegar nú.
Þær voru úr svona efni sem kemur ló
úr að innanverðu og þetta er held ég gjöf-
in sem ég hef glaðst mest yfir um ævina,
þetta var gífurleg gleði, að þurfa ekki
lengur að vera í prjónabuxum, heldur
geta spókað sig í búðarbuxum eins og fín
kona,“ segir hún og bætir við: „Þarna
sérðu líka hvað ég er orðin gömul," og
skellihlær.
Fötin skipta máli, líka þegar maður er fimm ára.
% 11
* «• Ft'
i
'V* *