Dagur - 04.12.1997, Page 10
Útgáfa á hljóm-
plötum og diskum
tekurkipp erlíða
tekur að jólum.
Allskonar tónlist er
gefin út,þará með-
al auðvitaðjólalög.
Sumarjólaplötur
lifa vel og lengi á
meðan aðrar
gleymasthæði
hrattogvel.En
skyldi einhverein
jólaplata lifa í
minningu landans
sem hin eina
sannajólaplata?
Til að komastað
því,fórDagurá
stúfana og ræddi
við nokkra aðila í
tónlistargeiranum.
Svörin urðu
skemmtilega marg-
vísleg og helsta
niðurstaðan ersú
aðgamlaplatan
meðÞremur ápalli
sé eftirminnilegust
og súplata sem
flestir spila.
NatKing
Cole er
alltafbestur
„í efsta sæti hjá okkur er Nat King Cole, með Christmas," segir
Björgvin Halldórsson tónlistarmaður. „Hún er sú plata sem við höf-
um alltaf sett á fyrir og um jólin. Svo er það Mahalia Jackson, Silent
night, hún er frábær líka,“ bætir hann við.
Næst þessum koma svo Bing Crosby „alltaf látinn fljóta með“ og
fjölskyldan heldur mikið upp á kvartett sem heitir Manhattan Trans-
fer, jólaplötu þeirra, Björgvin segir hana fína og æðislega. „Og EIvis,
jólaplatan hans, hún má ekki gleymast,“ segir hann.
„Þær fá svo að fljóta með þessar þrjár jólaplötur sem ég hef gert,
þær hafa svona ákveðið „sentimental value“, eru með ítölsku ívafi.
Maður heldur svolítið upp á þær, en spilar kannski ekki mjög mikið.“
Einsem
stendur
uppúr
„Ég vil nú nefna eina erlenda og eina íslenska jólaplötu," segir Rún-
ar Júlíusson tónlistarmaður. „Sú íslenska heitir GLEÐILEG JOL og
var fyrst gefin út í kringum 1970 en endurútgefin fyrir nokkru og
bætt á hana lögum, sem nú eru 24. Þetta er ein albesta jólaplata
sem ég veit um.
Sú erlenda er Nat King Cole platan THE CHRISTMAS SONG,
raunar öll jólalög með honum, hann hefur svo silkimjúka rödd, sem
hentar vel í þesskonar lög,“ bætir hann við.
Við nánari umhugsun kemur svo ein plata í viðbót. „Mahalia
Jackson, það eru engin jól án hennar.“
Lang-
holtskóriim
og^úá
í Langholtskirkju starfar Jón Stefánsson sem organisti og hann er
fljótur til svara þegar spurt er um bestu jólaplötuna að hans áliti.
„Þær eru tvær, BARN ER OSS FÆTT með Langholtskirkjukórnum
ogÁJÓLUM ER GLEÐI OG GAMAN með Graduelekór Langholts-
kirkju. Ég get nú varla sagt annað, er það?“ segir hann glettinn.
Jón átti þátt í upptöku á þeirri plötu sem oftast hefur verið nefnd
sem jólaplatan, en það er Gleðileg jól, með Þremur á palli. „Sú plata
er líka alltaf í uppáhaldi hjá mér,“ segir hann. „Hún stendur alltaf
fyrir sínu og þó hún sé orðin frekar gömul, þá er hún mjög hefð-
bundin og gaman að vera með þessi íslensku jólalög.“
Hándel
og
Bach
Michael J on Glark tonlistarmaður hefur huið a íslandi 1 rum 20 ar
og starfar sem bæjarlistamaður á Akureyri.
„Besta jólaplatan, það eru tvö verk sem ég met öðrum fremur, það
er Messías eftir Handel og Jólaóratoría Bachs, en þetta er nú sjálf-
sagt voðalega þungt,“ segir Michael Jón. Bætir svo við: „Svo er það
líka plata með íslenskum jólalögum, Þrjú á palli. Þetta er svo mjög
sérstök og góð plata, það eru nefnilega eingöngu íslensk jólalög á
þessari plötu. Það er stundum dálítið erfitt að fá fólk til að syngja ís-
lensk jólalög, en þessi plata, sem ég heyrði fyrst rétt eftir að ég kom
til landsins, hún er dálítið gömul en hún er að mínu áliti alveg frá-
bær og mér finnst hún tilheyra jólunum."
Udiikur
Mortens og
Bing Crosby
„Þetta eru aldeilis erfiðar spurningar sem þið látið dynja á manni,"
segir Svanhildur Jakobsdóttir og hlær. „Þegar maður vinnur við
þetta, þá er svo erfitt að dæma,“ bætir hún við.
„Hún kemur mér nú alltaf í jólaskap, platan sem Haukur
Morthens söng inn á 1964 og heitir Hátíð í bæ,“ segir hún svo.
„Þetta var lengi vel eina jólaplatan minnir mig, svona áður en lætin
byrjuðu. Svo er það náttúrulega Bing Crosby með jólalag allra tfma,
White Christmas, sem var mest selda lag í heimi þar til nú í haust er
Candle in the wind sló það út. White Christmas er hið eina sanna.
En þar fyrir utan fínnst mér alltaf gaman að hlusta á Ellý og Vil-
hjálm, þau eru góð,“ segir Svanhildur að lokum.
Engin
jóla-
tónllst
Þó svo fólk vinni við tónlist alla daga, þá er ekki endilega víst að það
spili jólatónlist. Gunnar Hjálmarsson, sem er í hljómsveitinni
UNUN, hann er í þeim hópi. „Nei, veistu að ég held að það sé bara
engin jólatónlist hjá mér, ég bara man ekki eftir því að ég spili neitt
sérstakt í desember, bara þessa tónlist sem ég spila að öllu jöfnu.
Það er líka heilmikil tónlist í útvarpinu, jólalög, og það nægir mér al-
veg,“ segir Gunnar.