Dagur - 04.12.1997, Blaðsíða 14
30 — FIMMTUDAGUR 4.DESEMBF.R 1997
LÍFIÐ í LANDINU
L
---- BÍLAR ----
Formúla 1 á
Islandi
Formúla 1 kappakstursbíllinn sem Bifreiðar og landbúnaðarvélar höfðu til sýnis á dögunum vakti mikla
athygli eins og sjá má, enda ekki á hverjum degi sem slíkur gripur er hérlendis. - MYND.OHR
Fjöldi gesta var við opnun Bíiasöiunnar Torg í Borgarnesi. Þar voru m.a. Gísli Halldórsson þjónustuaðili
Hekiu hf. i Borgarnesi, Finnbogi Eyjólfsson fjölmiðlafulltrúi Heklu og Björn Jóhannesson sem á og rekur
bítasöiuna. - MYND.OHR
Það er ekki á hverjum degi sem
menn geta barið augum „alvöru“
kappakstursbíl hérlendis, en Bifreiðar
og landbúnaðarvélar gáfu mönnum færi
á því á dögunum að
skoða keppnisbíl Willi-
ams Renault frá í fyrra.
Þar var á ferðinni einn
af þeim bílum sem
Jacques Villeneuve
keppti á er hann varð
heimsmeistari á síðasta
ári.
Bíllinn vakti líka
mikla athygli og fjöldi
fólks lagði leið sína í
Armúlann í Reykjavík til að beija grip-
inn augum.
Vélin í bílnum er V-10 Renault S9
þriggja lítra. Hún skilar yfir 700 hest-
öflum en stór hluti hennar er úr áli og
títaníum. Vélinni er aldrei ekið meira
en um 500 kílómetra og það tekur um
200 vinnustundir að endurbyggja hana.
Hver vél kostar á þriðja tug milljóna ís-
lenskra króna.
Gírkassinn er sjö gíra með skiptibún-
aði í stýrinu. Okumannssætið er sér-
smfðað og sniðið að líkamsvexti öku-
mannsins. Slökkvikerfi er í vélarsal og
ökumannsrými. Bíllinn vegur um 600
kíló með ökumanni.
Það tekur þennan bíl tvær sekúndur
að fara í hundrað kílómetra hraða úr
kyrrstöðu og hámarkshraðinn er í kring
um 350 kílómetrar á klukkustund.
Eyðslan er töluverð, Formula 1 bíll
kemst um tvo kílómetra á hvern lítra
eldsneytis sem þýðir að hann eyðir um
fimmtíu lítrum á hundraðið.
Ragnarsson
skrifar
Ný Masala og
Heklmmiboð í
Borgamesi
Bílasalan Torg opnaði í „Leifsstöð"
við Brúartorg í Borgarnesi um síðustu
helgi. Eigandi hennar er Björn Jóhann-
esson frá Hóli í Lundarreykjadal, áður
starfsmaður Bifreiðskoðunar og verk-
stæðiformaður hjá Stillingu í Reykjavík.
Hann hefur einnig unnið ýmis störf hjá
Vegagerðinni.
Björn verður með söluumboð fyrir
nýja og notaða bíla frá Heklu hf. auk
hefðbundinnar sölu notaðra bíla.
* Frakkar bursta skóna sína vel og vand-
lega á aðfangadag og fara í miðnætur-
messu. Síðan er gengið til borðs, um
kl. 1.30 eftir miðnætti. Taka svo upp
gjafirnar, sem ekki eru pakkaðar í dýr-
indis jólapappír, snemma ájóladag.
* Snemma á jóladag fara Grikkir í sín
fínustu föt og halda til messu. Taka
svo upp gjafir og börnin syngja jólalög
fyrir ættingja og vini og fá í staðinn
peninga og sætindi.
* Englendingar fara oft á krána á að-
fangadag og síðan í miðnæturmessu.
Fara snemma á fætur á jóladag og
opna gjafirnar sem jólasveinninn setti
undir tréð. Um kl. 15 safnast fjöl-
skyldan saman og hlustar á drotting-
una flytja jólaávarp í sjónvarpinu.
* í Þýskalandi hefjast jólin 6. desember
þegar fjölskyldan setur skó fyrir fram-
an dyrnar. Hann fyllist af sælgæti og
út mánuðinn er verið að baka kökur af
öllum stærðum og gerðum. A aðfanga-
dag eru gjafír gefnar og pylsur og kart-
öflusalat í matinn. A jóladag er hins
vegar oft boðið upp á gæs eða
vatnakarfa.
* A Spáni er ungur geldhani borðaður á
aðfangadagskvöld. Fólk fer gjarnan í
miðnæturmessu en Spánveijar gefa
ekki gjafír fyrr en á Þrettándandum,
sem þeir kalla Vitringadag.
HVAÐ Á É G A Ð GERA
Jólagjafir
Sæl Vigdís. Spurningin sem mig langar
til að spyrja er hvorki sérlega frumleg né
tilfinningaþrungin. Mig vantar bara eitt
ráð: Hvað á ég að gefa tengdamömmu í
jólagjöf? Hún á bókstaflega allt, er orð-
in 68 ára og vel hress. Við hjónin höfum
velt þessu fyrir okkur fram og til baka og
komumst ekki að neinni niðurstöðu.
Velkomin í klúbbinn! Það að finna
jólagjöf handa þeim sem á allt er
meira en lítið erfitt. Þið gætuð gefíð
henni ársáskrift af einhverju tímariti
sem hún myndi hafa ánægju af, en er
ekki tibúin að eyða í sjálf. Eða flug-
miða til einhvers staðar úti á landi
þar sem hún á ættingja eða vini. Eða
ánafnað henni tíma til að fara með
henni eitthvað sem hana langar til.
Eða sólbaðstíma, nuddtíma, leikfími-
tíma, eitthvað sem hún vill ekki eyða
peningum í sjálf (margt fullorðið fólk
telur allt eftir sjálfu sér en er alltaf
tilbúið til að eyða í aðra). Vonandi
koma einhverjar af þessum tillögum
þér til hjálpar, eða geta að minnsta
kosti vakið upp aðrar hugmyndir.
Vigdís svarar í símanu!
Ertu með ráð, þarítu að spyrja,
viltu gefa eða skipta?
Vigdis svarar í simaun kl. 9-12.
Siminn er 563 1626 (beint)
eða 800 7080
Pðstfang: Þverholt 14 Rvk.
eða Strandgata 31 Ak.
Netfang: ritstjori@dagur.is
ILOAMARKAÐUR
'Sv'.líifZi'*ra -i.- V ;"'
Gamlir bollar óskast
Hún Erla er að safna notuðum bollum, úr
gömlum stellum og hana langar til að vita
hvort einhverjir lesendur eiga í fórum sín-
um bollapör sem þeir vilja láta henni í té.
Hún segist bara þurfa eitt af hverri gerð
og það skipti engu máli hvernig mynstrið
lítur út. Erla er í sfma 462 3046 á kvöldin
og nú er bara að taka til í eldhússkápun-
um og losa sig við gömlu stöku bollana
sem eru búnir að þvælast þar lengi.
Notið aðventuna til að hengja upp jólaskraut smám saman, sérstak-
lega ef það eru börn á heimilinu. Þau hafa gaman af því og það léttir
líka á manni á Þorláksmessu.
Skoðið jólaseríurnar í tíma til að athuga hvort allar perur eru heilar.
Gott er að eiga nokkrar perur til vara.
Setjið jóladúkana og gardínur í hreinsun núna strax. Eftir því sem
líður á mánuðinn verður erfiðara að fá hluti hreinsaða fyrir jól.
Bakið og borðið jólasmákökurnar á aðventunni. Það er ekkert vit í
því að geyma þær allar til jóla og sitja svo uppi með þær til páska. Gest-
ir og gangandi kunna vel að meta jólakökur í kaffinu.