Dagur - 06.12.1997, Blaðsíða 1

Dagur - 06.12.1997, Blaðsíða 1
Maður lést og tveir voru hætt konuiir Vinnuslysid vard um borð í togaranum Gullveri frá Seyðisfirði, sem liggur við hafnarbakkann á Akureyri. Einn maður lést og tve/r aðrir lentu í bráðri lífshættu. Innfellda myndin er tekin í átt að hvatbaknum þar sem eiturgufur í keðjukassa urðu eftirlitsmanni tryggingafélags að aldurtila. - myndir: brink Rmnlega fertugur fjölskyldumaður lést í viimuslysi um borð í Gullveri MS 12 í gær- morgim þar sem skip- ið var í slipp á Akur- eyri. Tveir aðrir voru hætt komnir og flutt- ir á slysadeild. Eftirlitsmaður frá tryggingafélagi lést um borð í skipinu Gullveri MS í Slippnum á Akureyri laust eftir kl 10:00 í gærmorgun. Maðurinn var að taka út viðgerð- ir á skipinu og fór ofan í svokall- aðan keðjukassa þar sem akker- iskeðjurnar eru. Keðjukassinn hafði ekki verið opnaður Iengi en á honum er svokallað mannop uppi á hvalbak skipsins og er það boltað aftur. Eftirlitsmaðurinn ásamt út- gerðarmanni, vélstjóra og fleir- um höfðu Iosað um lokið og þeg- ar hann fór niður, hné hann fljótt niður. Þá fór annar maður á eftir honum og reyndi að taka hann upp, en missti einnig með- vitund. Þriðji maðurinn fór þá niður og munaði litlu að eins færi fyrir honum nema hvað hann náði að koma sér að mann- opinu svo hægt var að toga hann upp. Þessi maður hafði þá náð taki á hönd félaga síns þannig að þeir sem stóðu uppi á hvalbakn- um gátu komið báðum upp. Sá var fluttur á slysadeild FSA en var útskrifaður síðdegis. Þriðja manninn sakaði ekki en reykköf- unarbúnað slökkviliðsins þurfti til að koma manninum sem lést upp úr keðjukassanum. Að sögn Daníels Snorrasonar hjá Rann- sóknardeild lögreglunnar á Akur- eyri er talið að súrefnisskortur niðri í keðjukassanum hafi verið orsök harmleiksins. „Algjörlega lyktarlaust“ Mennirnir sem fóru niður á eftir eftirlitsmanninum voru útgerð- armaður skipsins og vélstjóri, en þeir sem náðu að hífa þá upp voru skipverjar og starfsmenn Slippsins. Gunnlaugur Haf- steinsson vélstjóri segir ör- skamma stund hafa Iiðið frá því að maðurinn sem Iést fór niður í tankinn þangað til kallað var til hans, en hlutirnir hafi gerst hratt. Aðstæður til björgunar hafi verið mjög erfiðar, mikil þrengsli og Ioftið baneitrað. verði í ár en fyrra. Þórhalla Þórhallsdóttir, versl- unarstjóri í Hagkaupi, tekur undir þetta. Komið er tilboð á flestallar bækur hjá Hagkaupi og býður verslunin 30% afslátt á svokölluðu pallatilboði. „Það hefur þegar orðið mikil sala og „Þetta gerðist á ótrúlega skömm- um tíma og munaði bara hárs- breidd að enn verr færi. Þetta var algjörlega lyktarlaust og engan gat órað fyrir því að þetta gæti gerst," segir Gunnlaugur. Eftirlitsmaðurinn var búsettur í Reykjavík og var fjölskyldumað- ur. Ekki er hægt að birta nafn hans að svo stöddu. — Bt>/BG fólk spáir auðsjáanlega mikið í verðið. Það er fyrr á ferðinni en vanalega," segir Þórhalla. Sem dæmi um afsláttinn hjá Hag- kaupi má nefna að „Sálumessa syndara" fer úr 3.990 í 2.790 kr. - BÞ Annar tvíburanna á leið í gæsluvarð- hald eftir úrskurðinn. Báðir eiga við mikla persónuleikaröskun og alkóhólisma að etja, en geðklofaein- kenni Sigurðar komu ekki í veg fyrir þungan fangelsisdóm. - mynd: pjetur Annar tvíbnraniia fékk 16 ár Héraðsdómarar á Reykjanesi dæmdu í gær tvíburabræðurna Sigurð Júlíus og Olaf Hannes Hálfdánarsyni fyrir að hafa orðið Lárusi A. Lárussyni að bana í Heiðmörk 2. október sl. Sigurð- ur var dæmdur í 16 ára fangelsi en Olafur í 8 ára fangelsi. Sigurður átti fruuikvæðið Sannað þótti að það var Sigurð- ur sem varð Lárusi að bana með því að láta 15 kg. stein ítrekað dynja í höfuð Lárusar. Hann hafi auk þess átt frumkvæðið að ránstilrauninni. Einnig þótti sannað að Ólafur hefði ekið yfir Lárus eftir barsmíðarnar, en að þá hafi Lárus verið Iátinn, þvert á framburð Sigurðar um að Lár- us hafi þá verið lifandi. Geðklofi Dómarar málsins töldu fram- burð geðlæknis um geðræn vandamál Sigurðar, einkenni geðklofa, ekki koma í veg fyrir að refsing yfir honum myndi bera árangur. I niðurstöðum sínum taka dómararnir tillit til þess að báðir bræðurnir höfðu áður hlot- ið dóm, en Ólafur rauf skilorð og Sigurður var á reynslulausn þeg- ar brotið var framið. Dómarar tóku og tillit til þess að Ólafur hefði sjálfur gefið sig fram og sagt til brots síns. Akærðu voru auk þess dæmdir til að greiða fjölskyldu Lárusar 9,6 miíljóna króna skaðabætur, auk þess sem þeir eiga að greiða málskostnað, saksóknaralaun og málsvarnarlaun. — FÞG Bókastríðið er byrjað Þótt aðeins séu sex dagar liðnir af desember er verðstríð milli bókaverslana hafið og stefnir í enn harðari slag en áður. Þannig hefur Bókval lækkað verð á nýj- um bókum um allt að 40%. „Þetta eru um 60 bækur, allt frá 10% til 40% afsláttur. Nei ég er ekki að selja undir kostnaðar- verði. Ég fæ afslátt frá forlögun- um, því menn virðast loks að vakna eftir þijú ár og laga sig að- stæðum," segir Jón Ellert Lárus- son hjá Bókvali á Akureyri. Hann segir að neytendur muni tvímælalaust fá bækur á betra 1300 milljóiiÍTÍ Leifsstöð Blað 2 18 dagar • til jóla BIACKSl DECKER Hondverkf æri SINDRI h -sterkur í verki 2 B0RGARTUNI 31 • SIMI 562 7222 • BREFASIMI 562 1024 t

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.