Dagur - 13.12.1997, Page 7
LÍFIÐ í LANDINU
LAVGARDAGUR 13 .DESEMBER 199 7 - 23
StUltá
kvenna-
bylgjuna
FM
Berglind Hallgrímsdóttir er atvinnumálafulltrúi
Akureyrarbæjar. Hún segirmargarkonurstarfa
að atvinnumálum en þegarkomi að umræðu um
krana og bíla, vegi og skurði,þá séufáarkonur
sem tjái sig. „Égskilþetta ekki. Mérfinnst
kranarog bílar, vegirog skurðirskipta máli. “
Berglind er Akureyringur, dóttir
Hallgríms Indriðasonar, fram-
kvæmdastjóra Skógræktarfélags
Eyfirðinga, og Kristínar Aðal-
steindóttur, Iektors við Háskól-
ann á Akureyri. Hún bjó í
London í sex ár en kom aftur til
Akureyrar með masterspróf í
stjórnsýslufræðum.
„Það var hálf tilviljunarkennt
að ég fór í stjórnsýslufræði. Ég
leiddist mikið út í nútíma þjóð-
hagfræði og stjórnmálafræði í
B.A. náminu í London, lokarit-
gerðin mín var t.d. um sögu
efnahagsstefnu Evrópubanda-
lagsins. Það var ekki aftur snúið
þegar ég komst inn í mjög góðan
skóla í þessum fræðum og þá
ákvað ég að hella mér í þetta. Eg
var ekkert búin að kanna hvað ég
gæti gert að náminu loknu, en ég
vissi að ég hefði áhuga á efna-
hagsmálum, velferðarmálum og
vinnumarkaðsmálum og langaði
til að fá vinnu því tengda."
Ganian að koma aftnr
til AkuifyTar
„Það var alger tilviljun að ég fékk
starf atvinnumálafulltrúa á Akur-
eyri,“ segir Berglind. „Mig lang-
aði að flytja til íslands og fá starf
innan stjórnsýslunnar. Starf sem
tengdist náminu á beinan hátt.
Eg þurfti að koma heim haustið
1995 til að sinna ákveðnu erindi
en þá vildi þannig til að þáver-
andi atvinnumálafulltrúi á Akur-
eyri var að hætta og það vantaði
mann til að reka skrifstofuna í
millibilsástandi. Fljótlega var
Helgi Jóhannesson ráðinn en ég
var áfram starfsmaður skrifstof-
unnar. Ilengdist hér. Eg tók síð-
an við starfi atvinnumálafulltrúa
í febrúar á þessu ári.“
Það var því tilviljun sem réði
því að Berglind settist aftur að á
Akureyri og hún segir að þetta
hafi allt saman gerst mjög hratt.
„Þetta var einstaklega gleðilegt
og gaman að geta unnið að þess-
um málum hjá Akureyrarbæ.
Líka að geta kynnst aftur því sem
er í gangi í bænum. Það hefur
verið afar fróðlegt."
Staröð krefst
mikillar þolinmæði
Það er margt sem felst í starfi at-
vinnumálafulltrúa og segir Berg-
lind að hún sé n.k. tengiliður Ak-
ureyrarbæjar við atvinnulífið.
„Hér veitum við ráðgjöf þegar
fólk veit ekki hvert það á að snúa
sér í kerfinu. Við veitum styrki
tvisvar á ári og síðan eru ýmis
verkefni í gangi sem tengjast at-
vinnumálum. Við erum mikið í
samstarfi við Iðnþróunarfélag
Eyjafjarðar og vísum á milli okk-
ar verkefnum eftir því sem við á.“
Það er mikið leitað á skrifstof-
una til Berglindar og hún nefnir
að töluvert af þeim styrkjum sem
fertugum karlmanni hefði verið tekið öðruvísi sem nýjum atvinnumálafulltrúa heldur en mér. Að vera kona íþessu starfi þýðir það
að ég er ekki ein afköriunum í gufunni á.föstudögum.
atvinnumálanefnd hafi veitt hafi
nýst mjög vel. „Það er líka vegna
þess að það fólk sem hingað
kemur er duglegt að vinna að
sínum verkefnum og hugmynd-
um. I sjálfu sér er það því ekki
okkur að þakka. Ég vona bara að
sú ráðgjöf sem við veitum nýtist
fólki vel. Bærinn hefur tekið þátt
í atvinnulífinu á ýmsan hátt og
hér á skrifstofunni höfum við
ákveðin tæki til að vinna að því
að styrkja atvinnulífið. Mikið af
þeirri vinnu sem við innum af
hendi er hins vegar ósýnileg og
þess eðlis að við getum ekki verið
að veifa henni út á við. Hlutirnir
þurfa tíma og það þarf oft mikla
þolinmæði." Henni hefur þótt
starfið skemmtilegt, ...“en líka
kreljandi. Það krefst ákveðinnar
þrautseigju því það er ekki alltaf
sem eitthvað er að gerast. Einnig
eru gerðar ákveðnar væntingar til
starfsins og umhverfið hefur
væntingar til bæjarins. En raun-
veruleikinn er seigur að komast í
gegnum. Þetta er því barátta og
það er margt sem mætti betur
fara.“
Ekki eiu af körlimum í guf-
unni á föstudögum
I hugum fólks er atvinnumála-
fulltrúi frekar karlmaður á fimm-
tugsaldri en 29 ára gömul kona.
Berglind segist vera sammála en
hún hafi aldrei fundið fyrir undr-
un á því að kona sinnti þessu
starfi. „Hingað til hafa karlar ein-
göngu sinnt starfinu en þetta
hefur aldrei verið nefnt við mig.
Hins vegar held ég að fertugum
karlmanni hefði verið tekið öðru-
vísi sem nýjum atvinnumálafull-
trúa heldur en mér. Að vera kona
í þessu starfi þýðir það að ég er
ekki ein af körlunum í gufunni á
föstudögum. Þetta er öðruvísi.
En ég myndi alls ekki segja að
það væri erfitt að vera kona í
þessu starfi." Frá því Berglind
tók við starfinu segist hún hafa
orðið tilfinnanlega vör við það
hvað konur sjáist lítið á þessum
vettvangi. „Konur þurfa að hafa
áhuga á verklegum framkvæmd-
um, samgöngumálum og þess
háttar. Ef haldnar eru ráðstefnur
um slík mál þá eru kannski tvær
konur sem mæta. Það vantar
alltaf konurnar. Þær vinna
kannski að atvinnumálum en
þegar er verið að tala um krana
og bíla, vegi og skurði þá eru
rosalega fáar konur sem tjá sig.
Eg skil þetta ekki. Mér finnst
kranar og bílar, vegir og skurðir
skipta máli. Efnahagslífið skiptir
oldcur öllu máli og ég skil ekki
því konur sýna því miklu minni
áhuga en karlar.“
Fróðlegt að hlusta á
karlana tala uin steypu
Það má segja að hún sé kona að
vinna í karlaumhverfi. „í húsinu
vinna nokkuð margar konur að
atvinnumálum og það er svolítið
óvenjulegt. En ég á hins vegar
mjög mikil samskipti við karla á
miðjum aldri og vinn fyrir þá í
þessari vinnu. Þeir eru alls ráð-
andi þegar út fyrir dyrnar er
komið. En mér hefur ekki fund-
ist það slæmt. Þetta vinnuum-
hverfi hefur verið mjög sann-
gjarnt gagnvart mér og það hefur
verið ánægjulegt að vinna í því.
Ég er ekki að segja að ég hafi
ekki lent í hlutum sem mér hafa
mislíkað en væri ég karlmaður
hefði ég alveg getað lent í þessu
sama.“
Berglind segir það staðreynd
að hún hafi þurft að fara ólíkar
Ieiðir í starfinu þar sem hún sé
kona. „I sumum verkefnum sem
ég kem að þá finnst körlunum
oft erfitt að það komi inn ung
kona og ætli að láta Ijós sitt
skína. Konur í þeirri stöðu hafa
almennt tilhneigingu til að fara
aðrar leiðir en karlarnir til þess
að forðast ógnanir. En þetta er
auðvitað persónubundið. Vegna
þess að ég er kona hef ég auðvit-
að verið stillt inn á kvennabylgj-
una FM frá fæðingu og mér hef-
ur fundist rosalega fróðlegt að
hlusta á karlana tala um steypu.“
HBG