Dagur - 16.12.1997, Blaðsíða 2
2 —ÞRIÐJUDAGUR 16.DESEMBER 1997
FRÉTTIR
Frítt kaffi og skjólfatnaður virdist vera allra meina bót. I þaö minnsta hefur þaö náð að skapa frið á milli grunnskólakennara i Hjallaskóla í Kópa-
vogi og bæjaryfirvalda.
Kaffi og útigallar
skapa frið í Köpavogi
Kennarar í Hjallaskóla
hættir við að hætta. Frítt
kaffi og útigaHar gerðu
útslagið. Jafnræði hæjar-
starfsmanna.
Mikill meirihluti þeirra kennara sem
sögðu upp í Hjallaskóla í Kópavogi
hafa dregið uppsagnir sínar til baka.
Það gerðu þeir eftir að bærinn kom til
móts við óskir þeirra um frítt kaffi og
útigalla handa þeim sem þurfa að
sinna gæslu í misjöfnum veðrum.
Jafnræði
Kristinn Kristjánsson fræðslustjóri seg-
ir að þarna sé ekki um neinn kjara-
samning að ræða. Þetta hafi fyrst og
fremst verið spurning um að gæta jafn-
ræðis meðal starfsmanna bæjarins sem
fá kaffið frítt sem og skjólfatnað vegna
starfa utandyra. A meðan skólinn var
hjá ríkinu hefðu kennarar t.d. þurft að
greiða 500-600 krónur í kaffisjóð á
mánuði, auk þess sem þeim var ekki
séð fyrir útigöllum. Kennarar höfðu
bréflega farið fram á það við bæjaryfir-
völd að þeir nytu sama réttar og aðrir
starfsmenn hæjarins í þessu. A það var
fallist, enda ekki gert ráð fyrir öðru.
I framhaldi af þessari ákvörðun
fræðsluyfirvaida hafa 12 af þeim 15
kennurum sem sögðu upp ákveðið að
draga uppsagnir sínar til baka. Aður
höfðu 9 kennarar gert hið sama, en alls
sögðu 24 kennarar upp störfum þegar
kjaraviðræður kennara og sveitarfélaga
voru í brennidepli. Það verða því að-
eins þrír kennarar sem halda uppsögn-
um sínum til streitu en bærinn fram-
lengdi ekki uppsagnarfrest kennara á
sínum tíma. — GRH
Val kratamia á frambjóð-
endum í prófkjörið er inál
málanna í heita pottinum.
Það þótti tíðindum sæta að
Helgi Pé gekk alla leið í Al-
þýðuflokkinn á meðan
Gunnar Gissurarson vara-
horgarfulltrúi náði ckki
inn í sjö inanna hópinn.
Skýringin er sögð sú að
Guimar hafi vanrækt að sinna sínuin fyrrum
aðal stuðningsmönnum, ungkrötum. Því
hafi þeir snúist gegn honum með fýrrgreind-
um afleiðingum...
Alþýðuflokksmenn hafa valið sjö kandídata
fýrir prófkjör Reykjavíkurlistans og vakti
eðilega mesta athygli að varahorgarfufltrú-
anum Gunnari Gissurarsyni í Gluggasmiðj-
unni var hafnað. Hitt vekur eiirnig athygli
pottverja að hlnn ungi stjómmála- og þjóð-
hagfræðingur Stefán Jóhami Stefánsson náði
með vasklegri framgöngu eyrum uppstilling-
armanna og hefur þá áreiðanlega ekki sakað
að liami er alnafni fyrrum formanns Alþýðu-
flokksins og í ofanálag ættaður frá ísafirði.
Stefán Jóhann er síðan formaður knatt-
spyrnudeildar ÍR og húinn að koma liðinu
upp í efstu deiid og liefur kannski formúluna
fyrir flokkslegum uppgangi í pólitíkinni.
í pottinum benda memi á
að íýrir er í Alþýðuflokkn-
um amiar alnafni fyrmm
formanns krata, Gylfi Þ.
Gíslason „yngri“, en
hvorki í tilfelli hans né
Stefáns er um hlóðhönd að
ræða, hcldur hafa foreldr-
arnir sannað hoilustu sína
við skírnarlaugina. Skyldi ekki einhver
Hannihal vera á leiðinni að skíra?
V
Gylfi Þ. Gíslason
Helgi Pétursson
Hali spítalans er aUtaf að lengjast
Ingibjörg Sól-
rún Gisladóttir
borgarstjóri.
Hart er nú deilt um fjár-
veitingar til Sjúkrahúss
Reykjavíkur (SR) með sífellt
dramatískari yfirlýsingum.
Stjómendur og eigendur
spítalans hafa verið sakaðir
um að ýkja vandann.
- Er verið uð ýkja vanda SR í innræð-
unni um fjárskort spítalans, setn sögð er
orðin árlegt brauð?
„Staðreyndin er, að árlega er vanáætlað í
fjárframlagi til spítalans og halinn verður sí-
fellt lengri. Það mátti þola hann 1995 en
árið 1996 var hann orðinn 178 milljónir
króna vegna þessara tveggja ára og það bæt-
ast um 140 milljónir vegna jiessa árs. Síðan
er fyrirséð að það er allt of naumt skammt-
að í frumvarpinu fyrir næsta ár og að þar
vantar 400 milljónir króna. Þessi hali er
ýkjulaust alltaf að lengjast með tilheyrandi
erfiðleikum fyrir stjórnendur og starfsfólk.
Það er ekki hægt að ætlast til þess að spítal-
inn dragi svona langan hala á eftir sér.“
- Er þetta jyrir utan jjárvöntun vegna
stojnkostnaðar og viðhalds?
„Já. Fjárveitingar vegna t.d. tækjakaupa
og viðhalds og eru mjög lágar upphæðir ætl-
aðar í þetta, þótt mikil viðhaldsþörf sé fyrir
hendi. Húsnæðið liggur undir skemmdum
og skemmdirnar smita út frá sér og við-
haldsþörfin verður um Ieið stöðugt dýrari.“
- Bæði Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigð-
isráðlierra og Sturla Böðvarsson í jjár-
laganejnd geja í skyn að það sé verið að
„dramatísera“ vanda spítalans. Ertu
ósammála þessu?
„Þau vita það með sjálfum sér að þetta er
ekki rétt Iýsing. Við erum ekki að tala um
nýjar upplýsingar. Það er búið að funda um
málið í allt haust, með þingmönnum
Reykjavíkur, með fjárlaganefnd, með heil-
brigðisráðherra og fjármálaráðherra. Það er
búið að tjá þessum aðilum hvað það þýðir ef
fjárveiting samkvæmt frumvarpinu breytist
ekki. Þá þarf að loka allt að 100 rúmum og
segja allt að 200 starfsmönnum upp. Og
það yrði erfitt jiví að þetta er bráðasjúkrahús
með ákveðinni jrjónustu sem ekki er hægt
að skera og það er dýrasta þjónustan. Við
munum nú fara fram á viðræður við heil-
brigðisráðherra um hvernig hún vill að spít-
alinn komist út úr þessum vanda.“
- Telur þú að meðvitað sé skammtað oj
naumt til SR með í huga að bjarga mál-
um síðar meir með aukajjárveitingum?
„Ég held að það hljóti að vera meðvituð
stefna og e.k. stjórnunarstíll. Það er naumt
skammtað og síðan kemur eitthvað á auka-
fjárlögum sem enginn veit hvað verður og
það gerir alla áætlanagerð ómögulega."
- En er borgin ekki stikkjrí gagnvart SR
hvað jjárveitingar varða?
„Borgin er eigandi SR og það er eigandinn
sem gengur í ábyrgð fyrir spítalann. Rfkis-
spítalar hafa ríkisvaldið sem ábyrgðaraðila
sem greiðir á endanum ef Ríkisspítalar fara
frammúr. Sama á að gilda um SR en ríkið
getur alltaf sveiflað því sverði yfir hausa-
mótum okkar að borgarbúar verði látnir
blæða vegna SR.“
- Að lokum. Eru bæði meirihluti og
minnihluti í borgarstjórn sammála í
þessu máli?
„Það er ekki ágreiningur um málið í borg-
arráði eða innan stjórnar sjúkrastofnana.
Það eru allir þar sammála um þennan
vanda." — FÞG