Dagur - 16.12.1997, Blaðsíða 4

Dagur - 16.12.1997, Blaðsíða 4
4 -PRIÐJUDAGVR 16. DESEMBER 1997 FRÉTTIR L A HUSAVIK Sameining A- og G-lista Viðræður fulltrúa A- og G-lista á Húsavík um sameiginlegt framboð fyrir kosningar til bæjarstjórnar í vor ganga að sögn vel og ekkert komið upp á borðið sem hindrað gæti sameiningu. G-listi á nú 3 bæj- arfulltrúa og A-listi 1, þannig að sameiginlega þurfa listarnir ekki að bæta við sig mörgum atkvæðum til að fá hreinan meirihluta í bæjar- stjórn, þ.e. 5 bæjarfulltrúa. Enda segja samningamenn að það sé tak- markið með sameiginlegu framboði. Formaður segir af sér I kjölfar skoðanakönnunar sjálfstæðismanna um uppstillingu á lista fyrir bæjarstjórnarkosningar, sagði formaður Sjálfstæðisfélags Húsa- víkur, Friðrik Sigurðsson, af sér. Utkoma Friðriks, sem nú situr sem forseti bæjarstjórnar, var ekki nógu hagstæð, en hann segir sjálfur að persónulegar ástæður ráði ákvörðun sinni í málinu. Hið eina sauna jólahjól! Bæjarbúar eru duglegir við að skreyta Húsavík fyrir jólin og gerast margir frumlegir í þeim efnum, enda samkeppni í gangi í bænum um bestu og skemmtilegustu jólaskreytingarnar. Til þessa telst enginn hafa verið frumlegri en Guðbergur Ægisson, sem hefur raðað ljósa- seríum á reiðhjól sitt og stendur það nú skínandi fyrir utan íbúð Guðbergs. Stefán Hilmarsson er búinn að syngja um „Jólahjólið" um árabil, og nú er það loksins fundið - norður á Húsavík. Ár hvalsins Af 20.540 ferðamönnum sem fóru í hvalaskoðun á Islandi á líðandi- ári (og þeir verða varla fleiri héðan af) fóru 14.050 frá Húsavík. Enda tala menn nú um árið 1997 sem „Ar hvalsins" þar í bæ, og fylgja þar fordæmi Kínveija að nefna árin sín nöfnum málleysinga. Væntanlega verður árið 1998 á Eskifirði nefnt „Ar Keikós.“ Björk fullviimiir harðvið Þrjú fyrirtæki á Húsavík hafa stofnað fyrirtækið Björk ehf. sem mun annast fullvinnslu á harðviði fyrir Aldin hf. Aldin hf. er eina fyrirtæk- ið á landinu sem flytur inn óunninn harðvið og þurrkar hér, einkum til útflutnings. Meðal þess sem Björk mun framleiða úr harðviði er parket, gólflistar og límtrésplötur. Ekki þykir nafn fyrirtækisins spilla, ef menn hugsa sér útflutning á framleiðslunni, því líklega hefur ekkert íslenskt nafn fengið betri markaðssetningu erlendis en nafnið Björk - sem á Húsavík er reynd- ar nafn á trésmiðju sem starfrækt var fyrr áöldinni. Hollustuhættir Meirihluti umhverfisnefndar hefur lagt fram á Alþingi frumvarp um breytingar á lögum um hollustuhætti og heilbrigðiseftirlit. Frum- varpið er lagt fram þar sem ekki er ráðrúm til að afgreiða heildarlög um hollustuhætti á haustþingi. Hins vegar er talið nauðsynlegt að nokkur atriði frumvarpsins öðlist gildi 1. janúar 1998 og er þau að finna í þessu frumvarpi Endurhæfingarstöð sjónskertra Jóhanna Sigurðardóttir, Guðmundur Arni og Asta R. Jóhannesdóttir hafa lagt fram á Alþingi frumvarp um þjónustu- og endurhæfingar- stöð sjónskertra. Með frumvarpinu er stefnt að því að auka þátttöku ríkisins í gleraugnakostnaði einstaklinga yngri en 18 ára. Stefnt er að því að jafna réttindi þeirra sem eiga við sjónvandamál að stríða gagn- vart öðrum hópum samfélagsins sem þurfa á sjúkrahjálp að halda. Fæðingarorlof feðra Heilbrigðis- og tryggingaráðherra hefur Iagt fram frumvarp um breyt- ingar á lögum um fæðingarorlof. Gert er ráð fyrir að feður eigi rétt á tveggja vikna fæðingarorlofi, séu þeir giftir eða í sambúð, fyrstu 8 vikumar eftir fæðingu barnsins. Kópavogur hefur verið talsvert í fréttum vegna mikillar fjölgunar mannfólksins þar. En staðurinn hefur aðdráttarafl fyrir fleiri dýrategundir þvl smyrill hefur tekið sér bólfestu við miðbæinn þar og flögrar þaryfir höfðum manna og milli Ijósastauranna. Smyrillinn hefur haldið til þarna í u.þ.b. tvær til þrjár vikur og virðist kunna vel við sig. Hér sést hann virða fyrir sér ríki Sigurðar Geirdal ofan af Ijósastaur í nágrenni bæjar- skrifstofanna. mynd: eól Yfirvofaiidi verkfaU hefur þegar áhrif Framkvæmdastjóri Slippstöðvarinnar vill að ríkið skoði vandlega ávimiingiiin af því að smiði ný skips fyrir Hafró færi fram hérlendis. Orói á vinnumarkaði hvað varð- ar sjómenn og vélstjóra hefur þegar haft áhrif á skipaþjónustu á landinu. Þannig er óvenju lítið um verkefni hjá Slippstöðinni á Akureyri og segir Ingi Björnsson framkvæmdastjóri að svo virðist sem slaki hafi myndast: „Ég tel líklegt að verkfallsumræðan hafi einhver áhrif. Við skynjum að út- gerðaraðilar séu að halda að sér höndum," segir Ingi. Slippstöðin bauð nýverið í risaverkefni fyrir Hafrannsókna- stofnun, smíði nýs skips, og hljóðaði tilboðið upp á 1,6 millj- Yfirvofandi verkfall á flotanum virðist vera far- ið að hafa áhrifá skípasmíðastöðvar eins og Stippinn á Akureyri, en þar er nú óvenjulítiö að gera. arða króna. Hafrannsóknastofn- un hafði áætlað að kostnaður næmi milli 1300 og 1400 millj- ónum en lægsta tilboðið kom frá Kína og samsvarar aðeins 918 milljónum króna. Ingi vill ekki leggja mat á hvort Kínverjar geti smíðað skip fyrir íslenskar aðstæður en Kristján Vilhelmsson hjá Samherja dró færni þeirra í efa í viðtali við Dag fyrir skömmu. Hafrannsókna- stofnun mun taka sér einhveijar vikur í að fara yfir tilboðin og þótt mikið beri í milli, telur Ingi ekki óhugsandi að tilboði Slipp- stöðvarinnar verði tekið. „Mér finnst eðlilegt þar sem opinberir aðilar koma að málinu að gaum- gæfilega verði athugað hvaða hag ríkið hefði af þvf að taka inn- Iendu tilboði. Það myndi þýða heilmiklar beinar tekjur auk margfeldisáhrifanna.“ Leiða má líkum að því að bein- ar ríkistekjur vegna smíðinnar næmu a.m.k. um 200 milljónum í formi skatta án þess að óbeinn ávinningur sé tekinn með í reikninginn. Verkið yrði þó ekki að fullu unnið hérlendis heldur er Slippstöðin m.a. í samstarfi við pólska aðila og yrði skips- skrokkurinn sjálfur að líkindum smíðaður í Póllandi. — BÞ Engar atvinnuleysis- bætur í verkbanni Hátt í tvö þúsund sjó- menii laimalausir um áramót. Eiga ekki rétt á atviuuuleysisbót- um. Félög huga að bótagreiðslum. „Þeir sem eru í verkfalli og þeir sem verkbann beinist gegn eiga ekki rétt á atvinnuleysisbótum," segir Margrét Tómasdóttir hjá Vinnumálastofnun félagsmála- ráðuneytisins. Þetta þýðir að hátt í tvö þúsund sjómenn á 79 stærstu skipum fiskiskipaflotans fá engar at- vinnuleysisbætur þegar verkbann LIÚ kemur til framkvæmda um áramótin að öllu óbreyttu. Skipt- ir þá engu þótt þeir eigi engan hlut að boðuðu verkfalli vélstjóra á sömu skipum. Hinsvegar á fisk- vinnslufólk rétt til atvinnuleysis- bóta ef það verður sent heim vegna verkbannsins. Bætur úr vúmudeilusjóðum Hólmgeir Jónsson, framkvæmda- stjóri Sjómannasambands Is- lands, telur einsýnt að félög við- komandi sjómanna muni fara að skoða á hvern hátt verður hægt að aðstoða þá með bótagreiðslum úr vinnudeilusjóðum, ef deilan verð- ur langvinn. Það sé hinsvegar við- búið að boðað verkbann LIÚ muni hafa áhrif á framfærslu sjó- manna þegar þeir verða teknir af launaskrá og geta ekki skráð sig atvinnulausa. Sérstaklega þegar haft er í huga að grunnt er í buddu margra eftir hátíðarnar og reikningarnir blasa við. Þótt útlitið sé ekki kræsilegt fyrir sjómenn þessara skipa, er ekki loku fyrir það skotið að vél- stjórar muni fresta boðuðu verk- falli um nokkra daga um áramót- in. Gangi það eftir mun LÍÚ einnig fresta framkvæmd verk- bannsins. Akvörðun vélstjóra mun væntanlega liggja fyrir um miðja næstu viku, en næsti samn- ingafundur þeirra og LÍÚ er boð- aður 18. desember n.k. Atkvæða- greiðsla annarra sjómanna um boðun verkfalls 2. febrúar nk. á að vera lokið 5. janúar nk. og at- kvæði verða svo talin 8. sama mánaðar. — GRH

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.