Dagur - 16.12.1997, Blaðsíða 7
ÞRIÐJUDAGUR 16.DESEMBER 1997 - 7
ÞJÓÐMÁL
Leifsstöð eins og hún mun verða eftir stækkun.
Flugstöð Leifs Eidkssonar
Fátt er mikilvægara eyþjóð sem
byggir afkomu sína á alþjóðleg-
um viðskiptum en öflugar og
traustar samgöngur við um-
heiminn. Að slíkum samgöng-
um verður því að hlúa. Ferða-
og flutningsmöguleikar til og frá
Islandi eru bundnir við loft- og
sjóflutninga. Það eru því brýnir
hagsmunir þjóðarinnar að húið
sé vel að flug- og hafnarað-
stöðu.
KeflavíkurflugVöllur er eini al-
þjóðaflugvöllur landsins. Mál-
efni hans eru því málefni ís-
lensku þjóðarinnar allrar. Flug-
stöð Leifs Eiríkssonar hefur ver-
ið í notkun í rúman áratug.
Óumdeilt er að þetta glæsilega
mannvirki hefur þjónað landi og
þjóð með miklum ágætum. Afar
mikilvægt er að svo verði áfram
- að við getum áfram verið stolt
af þessari stærstu gestamóttöku
landsins.
I tvennu tilliti eru málefni
Flugstöðvarinnar á tímamótum
um þessar mundir. Annars vegar
hefur sú skuldaáþján, sein hvílt
hefur á flugstöðinni eins og
mara í áratug, verið tekin föst-
um tökum þannig að loksins
hillir undir lausn fjárhagsvanda
hennar. Hins vegar annar flug-
stöðin ekki lengur þeim fjölda
farþega sem fara um flugvöll-
inn, en ríkisstjórnin hefur
brugðist við því með aðgerðum
til að tryggja að stöðin verði fær
um að mæta þeirri auknu um-
ferð sem fyrirsjáanleg er.
Fjárhagsvandi leystnr
Flugstöð Leifs Eiríkssonar hef-
ur allt frá upphafi búið við mjög
erfiða fjárhagsstöðu þrátt fyrir
miþlar tekjur. Ríkissjóður og
flugmálaáætlun hafa notið góðs
af þessum miklu tekjum í veru-
legum mæli. A síðasta ári námu
tekjur flugstöðvarinnar rúmlega
l, 7 milljarði króna en af þeirri
upphæð rann nær 1,1 milljarð-
ur í ríkissjóð og til flugmálaá-
ætlunar. Engu af þessum tekj-
um hefur verið varið til að
greiða niður skuldir flugstöðvar-
innar.
Afleiðingin er sú að skuldir
Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar
eru sripaðar og þegar hún var
tekin í notkun eða u.þ.b. 4,4
milljarðar króna. Við þessa
stöðu varð ekki unað lengur og
raunar löngu kominn tími til að
skapa flugstöðinni heilbrigðan
rekstrargrundvöll þannig að
tekjur af rekstri hennar stæðu
bæði undir rekstrar- og fjárfest-
ingakostnaði.
A grundvelli álits sérstakrar
nefndar, sem fjallaði um mál-
efni Flugstöðvar Leifs Eiríks-
sonar, var ákveðið að hjóða út
einstaka þætti í þjónustu og
verslun í flugstöðinni. Niður-
staðan lofar góðu um framtíð-
ina. Allt bendir til þess að lausn
fjárhagsvandans sé í höfn. Þá er
ánægjulegt að farþegar sem fara
um flugstöðina á nýju ári munu
eiga kost á mun fjölbreyttari og
betri þjónustu en áður.
Sérstakt átak verður gert til að
laða meiri umferð að Keflavík-
urflugvelli. Sett hefur verið á
laggirnar sérstakt markaðsráð
skipað fulltrúum helstu við-
skiptaaðila innan flugstöðvar-
innar. Meginmarkmiðin með
starfi þess er að styrkja mark-
aðssetningu flugvallarins þ.e.
bæði auka flugumferð um völl-
inn og gera hann meira aðlað-
andi fyrir farþega. Má nefna
m. a. að með tilkomu fleiri inn-
ritunarborða heyra langar
biðraðir nú að mestu sögunni
til.
Stækkun Flugstöðvar Leifs
Eiríkssonar
Farþegafjöldi um Flugstöð Leifs
Eiríkssonar hefur tvöfaldast á
áratug. A síðasta ári fór farþega-
fjöldi yfir eina milljón. Það er sá
fjöldi sem stöðin var hönnuð til
að þjóna. Þá hafa vöruflutning-
Eini alþjóóíiflugvöll
ur allra landsmaima
er of miMLvægiir til
þess að ekki sá að
honum hlynnt. Með
þeim markvissu að-
gerðum sem gripið
hefur verið til varð-
andi rekstur og
stækkun Flugstöðvar
Leifs Eiríkssonar hef-
ur nú loksins skapast
eðlilegur grundvöllur
fyrir farsælli þróun.
ar um flugvöllinn farið mjög
vaxandi og hefur nýlega verið
úthlutað lóðum undir vörumið-
stöðvar Flugleiða hf. og Fragt-
flutninga ehf.
Fjölgun farþega hefur á und-
anförnum árum numið um 10%
á ári. Flugrekstraraðilar gera ráð
fyrir svipaðri aukningu næstu
árin, enda er mikill hugur í
þeim sem sinna ferðaþjónustu
og flugrekstri. Lykillinn að því
að þetta geti orðið að veruleika
er stækkun Flugstöðvar Leifs
Eirfkssonar. Ef ekki yrði hafist
handa á nýju ári gæti það haft
afdrifaríkar afleiðingar fyrir þró-
un ferðaþjónustunnar sem nú
þegar skilar þjóðarbúinu veru-
legum tekjum. Ferðaþjónustan
er önnur mikilvægasta atvinnu-
greinin til öflunar gjaldeyris-
tekna, næst sjávarútveginum.
Nýlega var lögð fram í ríkis-
stjórninni framkvæmdaáætlun
um stækkun Flugstöðvar Leifs
Eiríkssonar. Þar er gert ráð fyrir
að stækka flugstöðina f þremur
áföngum á næstu þrettán árum.
Framkvæmdaáætlunin tekur
mið af varkárri spá um farþega-
aukningu fram til 2010 eða um
7% á ári. Með stækkun flug-
stöðvarinnar í áföngum er skap-
aður sveigjanleiki til að meta
stöðuna milli framkvæmda-
áfanga. Þannig er tryggt að fullt
tillit verður tekið til raunveru-
legrar þróunar í flugumferðinni
og hægt að llýta eða draga úr
framkvæmdum eftir aðstæðum.
Ríkistjórnin hefur samþykkt
að leggja til við Alþingi að ráðist
verði án tafar í fyrsta áfanga
stækkunar og stefnt að því að
ljúka áfanganum um áramótin
1999-2000. Er þar fyrst og
fremst um að ræða gerð fleiri
flugstæða og flughlaða ásamt
fyrsta áfanga nýrrar tengibygg-
ingar fyrir landganga úr flugvél-
um.
Gert er ráð fyrir að öðrum
áfanga verði lokið á árinu 2005.
Í þeim áfanga verður m.a. hafist
handa við að stækka til norðurs
neðri hæð aðalbyggingar flug-
stöðvarinnar. Stefnt er að því að
ljúka þriðja og síðasta áfangan-
um í hinni nýju framkvæmda-
áætlun árið 2010.
Með þeim breytingum á flug-
stöðinni og rekstrarfyrirkomu-
lagi í henni sem að ofán er lýst
mun tekjuöflun flugstöðvarinn-
ar á næstu árum nægja til að
greiða niður eldri lán ásamt því
að standa undir kostnaði vegna
nýframkvæmda. Þetta felur í sér
söguleg umskipti í málefnum
flugstöðvarinnar.
Aukiii atvinna
Nú veitir starfsemi flugstöðvar-
innar yfir 800 manns atvinnu.
Ofangreindar breytingar munu
skapa fjölda nýrra atvinnutæki-
færa og renna styrkari stoðum
undir atvinnulíf á Suðurnesjum.
Ljóst er að 60-70 störf koma til
sögunnar við nýja þjónustu og
verslunarstarfsemi í flugstöð-
inni. Hver viðbótarflugvél í flug-
flota Flugleiða hf. skapar u.þ.b.
100 ný störf. Félagið á 4 far-
þegaþotur í pöntun sem koma í
notkun á næstu fimm árum.
Auk þess hefur það tryggt sér
kauprétt á 8 vélum til viðbótar
fram til ársins 2006. Velgengni
og vöxtur Atlanta flugfélagsins
styður einnig vonir um að at-
vinnustarfsemi aukist verulega í
flugstöðinni. Þá hafa umsvif
fleiri llugrekstraraðila farið vax-
andi. Framkvæmdir við sjálfa
stækkun flugstöðvarinnar kalla
einnig á umtalsvert vinnuafl.
Gert er ráð fyrir auknu frelsi
og samkeppni við flugafgreiðslu
á Ke0avíku rflugvc 11i. Afgreiðsla
á flutningavélum hefur þegar
verið gefin frjáls. Stefnt er að
því að strax á næsta ári verði
veitt leyfi til þjónustu óreglu-
bundins flugs smærri véla.
Til framtíðar
Aukið frjálsræði í verslun og
þjónustu á Keflavíkurflugvelli
og í Flugstöð Leifs Eiríkssonar
ásamt metnaðarfullum áform-
um flugrekstraraðila eru mikil-
væg forsenda áframhaldandi
vaxtar ferðaþjónustu á Islandi.
Það er því mikilvægt skref að
svo skuli hafa verið búið um
hnútana að Flugstöð Leifs Ei-
ríkssonar, aðalhliðið að Islandi,
hindri ekki heldur örvi þessa
uppbyggingu. Eini alþjóðaflug-
völlur allra Iandsmanna er of
mikilvægur til þess að ekki sé að
honum hlynnt. Með þeim mark-
vissu aðgerðum sem gripið hef-
ur verið til varðandi rekstur og
stækkun Flugstöðvar Leifs Ei-
ríkssonar hefur nú loksins skap-
ast eðlilegur grundvöllur fyrir
farsælli þróun.