Dagur - 16.12.1997, Page 7

Dagur - 16.12.1997, Page 7
 ÞRIÐJUDAGUR 16.DESEMBER 1997 - 7 ÞJÓÐMÁL Leifsstöð eins og hún mun verða eftir stækkun. Flugstöð Leifs Eidkssonar Fátt er mikilvægara eyþjóð sem byggir afkomu sína á alþjóðleg- um viðskiptum en öflugar og traustar samgöngur við um- heiminn. Að slíkum samgöng- um verður því að hlúa. Ferða- og flutningsmöguleikar til og frá Islandi eru bundnir við loft- og sjóflutninga. Það eru því brýnir hagsmunir þjóðarinnar að húið sé vel að flug- og hafnarað- stöðu. KeflavíkurflugVöllur er eini al- þjóðaflugvöllur landsins. Mál- efni hans eru því málefni ís- lensku þjóðarinnar allrar. Flug- stöð Leifs Eiríkssonar hefur ver- ið í notkun í rúman áratug. Óumdeilt er að þetta glæsilega mannvirki hefur þjónað landi og þjóð með miklum ágætum. Afar mikilvægt er að svo verði áfram - að við getum áfram verið stolt af þessari stærstu gestamóttöku landsins. I tvennu tilliti eru málefni Flugstöðvarinnar á tímamótum um þessar mundir. Annars vegar hefur sú skuldaáþján, sein hvílt hefur á flugstöðinni eins og mara í áratug, verið tekin föst- um tökum þannig að loksins hillir undir lausn fjárhagsvanda hennar. Hins vegar annar flug- stöðin ekki lengur þeim fjölda farþega sem fara um flugvöll- inn, en ríkisstjórnin hefur brugðist við því með aðgerðum til að tryggja að stöðin verði fær um að mæta þeirri auknu um- ferð sem fyrirsjáanleg er. Fjárhagsvandi leystnr Flugstöð Leifs Eiríkssonar hef- ur allt frá upphafi búið við mjög erfiða fjárhagsstöðu þrátt fyrir miþlar tekjur. Ríkissjóður og flugmálaáætlun hafa notið góðs af þessum miklu tekjum í veru- legum mæli. A síðasta ári námu tekjur flugstöðvarinnar rúmlega l, 7 milljarði króna en af þeirri upphæð rann nær 1,1 milljarð- ur í ríkissjóð og til flugmálaá- ætlunar. Engu af þessum tekj- um hefur verið varið til að greiða niður skuldir flugstöðvar- innar. Afleiðingin er sú að skuldir Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar eru sripaðar og þegar hún var tekin í notkun eða u.þ.b. 4,4 milljarðar króna. Við þessa stöðu varð ekki unað lengur og raunar löngu kominn tími til að skapa flugstöðinni heilbrigðan rekstrargrundvöll þannig að tekjur af rekstri hennar stæðu bæði undir rekstrar- og fjárfest- ingakostnaði. A grundvelli álits sérstakrar nefndar, sem fjallaði um mál- efni Flugstöðvar Leifs Eiríks- sonar, var ákveðið að hjóða út einstaka þætti í þjónustu og verslun í flugstöðinni. Niður- staðan lofar góðu um framtíð- ina. Allt bendir til þess að lausn fjárhagsvandans sé í höfn. Þá er ánægjulegt að farþegar sem fara um flugstöðina á nýju ári munu eiga kost á mun fjölbreyttari og betri þjónustu en áður. Sérstakt átak verður gert til að laða meiri umferð að Keflavík- urflugvelli. Sett hefur verið á laggirnar sérstakt markaðsráð skipað fulltrúum helstu við- skiptaaðila innan flugstöðvar- innar. Meginmarkmiðin með starfi þess er að styrkja mark- aðssetningu flugvallarins þ.e. bæði auka flugumferð um völl- inn og gera hann meira aðlað- andi fyrir farþega. Má nefna m. a. að með tilkomu fleiri inn- ritunarborða heyra langar biðraðir nú að mestu sögunni til. Stækkun Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar Farþegafjöldi um Flugstöð Leifs Eiríkssonar hefur tvöfaldast á áratug. A síðasta ári fór farþega- fjöldi yfir eina milljón. Það er sá fjöldi sem stöðin var hönnuð til að þjóna. Þá hafa vöruflutning- Eini alþjóóíiflugvöll ur allra landsmaima er of miMLvægiir til þess að ekki sá að honum hlynnt. Með þeim markvissu að- gerðum sem gripið hefur verið til varð- andi rekstur og stækkun Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar hef- ur nú loksins skapast eðlilegur grundvöllur fyrir farsælli þróun. ar um flugvöllinn farið mjög vaxandi og hefur nýlega verið úthlutað lóðum undir vörumið- stöðvar Flugleiða hf. og Fragt- flutninga ehf. Fjölgun farþega hefur á und- anförnum árum numið um 10% á ári. Flugrekstraraðilar gera ráð fyrir svipaðri aukningu næstu árin, enda er mikill hugur í þeim sem sinna ferðaþjónustu og flugrekstri. Lykillinn að því að þetta geti orðið að veruleika er stækkun Flugstöðvar Leifs Eirfkssonar. Ef ekki yrði hafist handa á nýju ári gæti það haft afdrifaríkar afleiðingar fyrir þró- un ferðaþjónustunnar sem nú þegar skilar þjóðarbúinu veru- legum tekjum. Ferðaþjónustan er önnur mikilvægasta atvinnu- greinin til öflunar gjaldeyris- tekna, næst sjávarútveginum. Nýlega var lögð fram í ríkis- stjórninni framkvæmdaáætlun um stækkun Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar. Þar er gert ráð fyrir að stækka flugstöðina f þremur áföngum á næstu þrettán árum. Framkvæmdaáætlunin tekur mið af varkárri spá um farþega- aukningu fram til 2010 eða um 7% á ári. Með stækkun flug- stöðvarinnar í áföngum er skap- aður sveigjanleiki til að meta stöðuna milli framkvæmda- áfanga. Þannig er tryggt að fullt tillit verður tekið til raunveru- legrar þróunar í flugumferðinni og hægt að llýta eða draga úr framkvæmdum eftir aðstæðum. Ríkistjórnin hefur samþykkt að leggja til við Alþingi að ráðist verði án tafar í fyrsta áfanga stækkunar og stefnt að því að ljúka áfanganum um áramótin 1999-2000. Er þar fyrst og fremst um að ræða gerð fleiri flugstæða og flughlaða ásamt fyrsta áfanga nýrrar tengibygg- ingar fyrir landganga úr flugvél- um. Gert er ráð fyrir að öðrum áfanga verði lokið á árinu 2005. Í þeim áfanga verður m.a. hafist handa við að stækka til norðurs neðri hæð aðalbyggingar flug- stöðvarinnar. Stefnt er að því að ljúka þriðja og síðasta áfangan- um í hinni nýju framkvæmda- áætlun árið 2010. Með þeim breytingum á flug- stöðinni og rekstrarfyrirkomu- lagi í henni sem að ofán er lýst mun tekjuöflun flugstöðvarinn- ar á næstu árum nægja til að greiða niður eldri lán ásamt því að standa undir kostnaði vegna nýframkvæmda. Þetta felur í sér söguleg umskipti í málefnum flugstöðvarinnar. Aukiii atvinna Nú veitir starfsemi flugstöðvar- innar yfir 800 manns atvinnu. Ofangreindar breytingar munu skapa fjölda nýrra atvinnutæki- færa og renna styrkari stoðum undir atvinnulíf á Suðurnesjum. Ljóst er að 60-70 störf koma til sögunnar við nýja þjónustu og verslunarstarfsemi í flugstöð- inni. Hver viðbótarflugvél í flug- flota Flugleiða hf. skapar u.þ.b. 100 ný störf. Félagið á 4 far- þegaþotur í pöntun sem koma í notkun á næstu fimm árum. Auk þess hefur það tryggt sér kauprétt á 8 vélum til viðbótar fram til ársins 2006. Velgengni og vöxtur Atlanta flugfélagsins styður einnig vonir um að at- vinnustarfsemi aukist verulega í flugstöðinni. Þá hafa umsvif fleiri llugrekstraraðila farið vax- andi. Framkvæmdir við sjálfa stækkun flugstöðvarinnar kalla einnig á umtalsvert vinnuafl. Gert er ráð fyrir auknu frelsi og samkeppni við flugafgreiðslu á Ke0avíku rflugvc 11i. Afgreiðsla á flutningavélum hefur þegar verið gefin frjáls. Stefnt er að því að strax á næsta ári verði veitt leyfi til þjónustu óreglu- bundins flugs smærri véla. Til framtíðar Aukið frjálsræði í verslun og þjónustu á Keflavíkurflugvelli og í Flugstöð Leifs Eiríkssonar ásamt metnaðarfullum áform- um flugrekstraraðila eru mikil- væg forsenda áframhaldandi vaxtar ferðaþjónustu á Islandi. Það er því mikilvægt skref að svo skuli hafa verið búið um hnútana að Flugstöð Leifs Ei- ríkssonar, aðalhliðið að Islandi, hindri ekki heldur örvi þessa uppbyggingu. Eini alþjóðaflug- völlur allra Iandsmanna er of mikilvægur til þess að ekki sé að honum hlynnt. Með þeim mark- vissu aðgerðum sem gripið hef- ur verið til varðandi rekstur og stækkun Flugstöðvar Leifs Ei- ríkssonar hefur nú loksins skap- ast eðlilegur grundvöllur fyrir farsælli þróun.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.