Dagur - 16.12.1997, Page 8
8- ÞRIÐJUDAGUR 16. DESEMBER 1997
Oxgur
Oíuýir.
ÞRIDJUDAGUR 16. DESEMBER 1997 - 9
FRETTASKYRING
Greinileg gróðurhúsaáhrif
BJÖRN ÞOR-
LAKSSON
SKRIFAR
Söguleg hlýindi eru að
eiga sér stað á íslandi
miðað við árstíma. Ar-
ferði hefur verið gott
frá um 1990 og er lík-
legt að næstu ár verði
einnig mild.
Mikil hlýindi hafa verið á landinu
að undanförnu og sérstæð miðað
við árstíma þótt ekki sé hægt að
tala um einsdæmi. Tvö hitamet
féllu í fyrradag, í Reykjavík mæld-
ist hæstur hiti í desember frá ár-
inu 1925 og einnig var slegið met
á Vopnafirði frá árinu 1988. Dag-
ur grennslaðist fyrir um orsök
hlýindanna og afleiðingar og kom
m.a. í ljós að fyrrum veðurstofu-
stjóri telur gróðurhúsaáhrif vera
merkjanleg á breyttu veðurfari.
„A hlýindaskeiðum eins og við
erum nú að upplifa eru hitamet
miklu tíðari en ella þó að ein tala
segi ekki mikið. Við höfum búið
við mildara veðurfar hér frá árinu
i 990 og ég sé ekki betur en
næstu ár verði einnig mild. Eg fer
mest eftir tveimur þáttum: Ann-
ars vegar gróðurhúsaáhrifunum
sem eru greinileg þótt þau séu
ekki mikil og hins vegar hita-
sveiflunum sem eru miklar hér
norður í höfum. Þar hefur verið
hlýtt undanfarið og er ekki farið
að kólna svo ég sjái að ráði. Það
ætti að duga okkur í nokkur ár
fram í tímann, bærilega góð,“
segir Páll Bergþórsson, fræði-
maður og fyrrum veðurstofu-
stjóri.
Páll treysti sér ekki til að spá
fyrir um seinni hluta vetrar en af
framangreindu má ráða að hann
telur Iíkur á langvinnum harðind-
um vera litlar. Páll sagði að um
Frá Ferjukoti við Hvítá i Borgarfirði en þar urðu mikiar leysingar í hlýindunum og ollu nokkru tjóni. mynd: ohr
mánaðamótin janúar-febrúar
væri tímabært að spá fyrir um
hafís.
Nyr lífsstíll!
*
Jlöfum opnað nýjan veitingc
LISTHÚSINU LAUGARDAL
glœsilegur salatbar!
LISTHUS
ILAUGARDAL
LLSTACAFt:
□pnunartíml 10-21
Opiö: 12-15 S 18-21
síis cisps mema sunnud.
Engjateigi 17-19 S: 568 4SSS
Mexikóbúar í hriðarbyl
Á sama tíma og Islendingar gætu
sprangað um á stuttbuxum hefur
kuldakafli og hrfðarbylur orðið
fjölda manns í Suður-Ameríku að
fjörtjóni. Dagur spurði Pál hvort
eitthvert samhengi væri hér á
milli? „Það er oft þannig að öfgar
í veðri á einum stað kalla á aðrar
öfgar annars staðar. Mjög sterk
sunnanátt hér kallar á sterka
norðanátt á öðrum stað. Það er
því ekkert undarlegt við að met
séu slegin á báða bóga,“ sagði
Páll.
„Úlfur, úlfur“
Unnur Ólafsdóttir, veðurfræðing-
ur á Veðurstofunni, sagði í gær að
skýringin á þessum hlýindum
væri að hlýtt loft næði að streyma
óvanalega langt sunnan að til Is-
Iands, alllt vestur undan Spáni.
Unnur sagði að áfram væri spáð
miklum hlýindum miðað við árs-
tíma en þó gætu landsmenn átt
von á næturfrosti inn til landsins
á næstunni. Telur Unnur að allt
sé að fara til fjandans vegna gróð-
urhúsaáhrifa? „Það eru mjög
skiptar skoðanir um gróðurhúsa-
áhrifin. Nei, ég held ekki. Það er
talað um hitasveiflur á löngum
tíma en enn sem komið er höfum
við mjög stutt skeið til að miða
við. Það verða alltaf sveiflur í
veðrinu og ég tel þetta ennþá allt
innan eðlilegra marka. Það er
óþarfi að hrópa alltaf „úlfur úlf-
ur“ þegar eitthvað sérstakt gerist.
Ég held að landsmenn ættu bara
Aurskriður féllu fyr-
ir austan laud, ræsi
höfðu varla iuidan
víðaog hvassviðri
setti umferð í hættu,
t.d. í Hvalfirði og á
Reykj aneshr aut.
Vegagerðarmenn sem
hlaðið ræddi við
sögðu ástandið væg-
ast sagt óvanalegt.
að brosa vegna hlýindanna. Rok-
ið er verst."
1100 mauns biðu eftir flugi
Hvassviðrið sem fylgir hlýindun-
um hefur lamað allt innanlands-
flug. Hjá Flugfélagi Islands feng-
ust þær upplýsingar sfðdegis í
gær að óvíst væri hvort nokkuð
yrði flogið, annan daginn í röð.
Reyndar komst ein vél á sunnu-
dag til Akureyrar um morguninn
en hún varð innlyksa. Atli Vivas
afgreiðslustjóri sagði að um 1 100
manns biðu eftir flugi í gær.
„Auðvitað hefur svona ástand
töluvert tap fyrir fyrirtækið í för
með sér en við reiknum alltaf
með að nokkrir dagar á ári detti
út. Þetta eru fyrstu dagar vetrar-
ins sem segja má að allt flug liggi
niðri,“ sagði Atli.
Vegir illa færlr
Hvað samgöngur á jörðu niðri
varðar voru vegir sums staðar ill-
færir á sunnudag. Ekki er ný-
lunda norðan heiða að snjór hafi
áhrif á færð á þessum árstíma en
hitt er mun sjaldgæfara að aur-
bleyta geri mönnum gramt í geði
eins og varð t.d. á Lágheiði, Mý-
vatnsheiði og Mývatnsöræfum
svo dæmi séu tekin. Nærri lá að
þjóðvegur 1 um Mývatnsheiði
lokaðist fólksbílum á sunnudag
vegna aurbleytu og Vegagerðin
var víða að störfum með hefla.
Aurskriður féllu fyrir austan
land, ræsi höfðu varla undan víða
og hvassviðri setti umferð í
hættu, t.d. í Hvalfirði og á
Reykjanesbraut. Vegagerðar-
menn sem blaðið ræddi við sögðu
ástandið vægast sagt óvanalegt.
Vorflódin mikilvæg íyrir orku-
búskapiim
En hvað þýðir þetta veðurfar fyrir
orkuhúskap landsmanna. Því svarar
Þorsteinn Hilmarsson hjá Lands-
virkjun. „Við notum jökulár að hluta
og þaðan kemur alllaf eitthvert
rennsli. Þá miðar vatnsrennsliskerf-
ið okkar af hálendinu við verstu af-
komu. Við reynum að hanna okar
virkjanir þannig að kerfið geti skilað
forgangsrafmagni við verstu að-
stæður. Við höfum oftast fengið
hlákukafla á veturna sem koma okk-
ur til góða. Það hækkar í lónum og
það þykir ekkert óvanalegt við að
hálendið sé snjólétt framundir ára-
mót. Haustið var einnig sérlega
hagstætt, við miðluðum seint úr
lónum og ég sé enga ástæðu til
svartsýni. A hinn bóginn verður á
næstunni mikil aukning í raforku-
noktun vegna ÍSAL og við þurfum
því að halda vel á spöðunum. Vor-
flóðin verða mikilvæg þegar við
söfnum í sarpinn í fyrir næsta vet-
ur.“
Dagur ræddi ennfremur við nátt-
úrufræðinga um gróðurfarið og
töldu þeir að hlýindakaflinn núna
myndi ekki spilla fyrir í þeim efn-
um. Ef auða jörð frystir snögglega
gæti það hins vegar haft alvarlegar
afleiðingar síðar í för með sér.
FRETTIR
Björk íhugar kaup á eyju
MTV segir Björk með
lekanda.
Staðhæft hefur verið á bresku
sjónvarpsstöðinni Rloomberg að
Björk Guðmundsdóttir söng-
kona hafi fjárfest í skoskri eyju
fyrir 60 milljónir ísl. króna. Dag-
ur bar þetta undir Einar Om
Benediktsson í gær þar sem
hann var staddur í Lundúnum
við störf. Hann hafði ekki séð
eða heyrt „fréttirnar" og taldi um
„Nei, hún er ekki búin að fjár-
festa neitt en e.t.v. hefur verið
reifað að hún sé að skoða mögu-
leikann á að kaupa sér eyju. Ég
veit að þau voru nokkur hérna
að kíkja á hvaða eyjur væru til
sölu í heiminum og þær munu
um 190 til sölu alls. En það
gengur alltaf einhver orðrómur
um Björk sem ekki er á rökum
reistur. Samkvæmt MTV er
Björk núna sögð með lekanda
svo dæmi sé tekið. Finnst mönn-
um það ekki geðslegt?"
Annars sagði Einar Örn að
Björk hefði það mjög gott, hún
væri „hraust stelpa“. Samkvæmt
orðum Einars er hún nú í hvíld
en hún mun búin að ná sér eftir
veikindi sem urðu til þess að
hún varð að fresta nokkrum tón-
leikum fyrir skömmu. Dagur
náði ekki viðtali við söngkonuna
sjálfa í gær vegna málsins. - BÞ
Björk Guðmundsdóttir.
hreinar getgátur að ræða.
„Þetta er einhver della, en við
erum hér að tala um persónuleg
mál. Ef fólk kaupir sér íbúð þá er
það einkamál þeirra. Eg veit ekki
til að hún hafi keypt neina eyju.“
- Ertu að segja að hún hafi þá
e.t.v. fjárfest í fasteign á ein-
hverri skoskri eyju?
JOIATBLBOÐ
Jólakjötió á stórmarkaósverði
^ Hangilæri með beini'
Bayonneskinka 899 kr. kg
-|Hangiframpartur 939 kr. kg~j
815 kr. kg
Svínahamborgarhryggur 1.065 kr. kg
Hangilæri úrbeinað 1.229 kr. kg
JOLAVORUR I URVALI
Jólaskreytingar - gjafavörur - jólakerti - jólaservíettur
'Zlmfgóour
Nýtt frá Goða:
kjötvörur í
ofninn og örbylgjuna
^Það vinsælasta hjá krökkunum f dag:
Blikkljós -
Ijósahálsmen
og Ijósahringar
Frí heimsendingarþjónusta alla daga
SÆKJUM
OG KEYRUM
'JOLASENDINGAR
HEIMI
Það er einfalt og þœgilegt að láta okkur
Jfytja jólapakkana innanlands. Gegn vœgu gjaldi
getum við sótt til þín pakka sem eiga aðjara út á
land, eða keyrt heim sendingu til þín.
Afgreiðslutími Landjlutninga-Samskipa.Skútnwgi 8:
Mánudaga-fimmtudaja: 8-17,
fostudaga S-16, laugardaga 10-14.
Afgreiðslutími jólapakkamidstöðrar á Laugaregi:
Frá 12.-22. desember:
Alla daga frá kl. 12-lokunar verslana.
Landfjutningar
JJ SÁMSKÍP
SKUTUVOGI 8, RFk'KJAVIK. S. 569 8400