Dagur - 16.12.1997, Qupperneq 13
ÞRIÐJVDAGVR 16.DESEMBER 1997 - 13
ÍÞRÓTTIR
L.
KR-iiigar féllu
út úr bikar-
keppniimi
Þaö var ekki margt
sem kom á óvart í 16
liða úrslitum í bikar-
keppni KKÍ og
Renault. ÍR-ingar
unnu sinu fyrsta al-
vöruleik á keppnis-
tímabilinu og stórtap
stjömuliðs KR fyrir
Njarðvíkingum er það
sem upp ur stendur.
Stjaman-Smári 101-55
Stjarnan úr Garðabæ fór létt
með Skagfirðingana í Smára frá
Varmahlíð. Kannski ekki við
öðru að búast enda sveitamenn
úr Skagafirði frægari fyrir hesta-
mennsku en körfubolta. Engu að
síður er ánægjulegt a'ð sjá hvað
körfuboltinn er að breiðast út
um allt land. Mikill áhugi og góð
frammistaða Ungmennafélags
Stafholtstungna og Smára-
manna í Skagafirði ætti að hvetja
landsbyggðarmenn til að reima
körfuboltaskóna á lappirnar og
nýta íþróttahúsin þar sem þau
eru fyrir hendi.
Valur-Höttur 113-62
Valsmenn fóru létt með Hött frá
Egilsstöðum og unnu með mikl-
um mun eins og við mátti búast,
enda leikið á heimavelli Vals að
Hlíðarenda. Valsarar eru greini-
lega á réttri leið undir stjórn
Svala Björgvinssonar.
ÍR-Skallagrinuir 66-62
Þessi sigur IR-inga ætti að koma
sjálfstrausti Breiðholtsliðsins á
rétta braut á ný. Liðið sem hafði
ekki unnið leik í DHL-deildinni,
þar til að þeir lögðu Skagamenn
í vikunni, eru nú komnir áfram í
átta liða úrslit bikarkeppninnar.
Tímabilinu er greinilega ekki
lokið í Breiðholtinu og þeir ættu
að geta unnið einhverja leiki í
Marel Gudlaugsson.
deildinni í framhaldinu.
Haukar-Þór Þorláksh. 110-72
Haukarnir unnu að sjálfsögðu
stórsigur á fyrstudeildarliði Þórs-
Þorlákshöfn. Annað af topplið-
um DHL-deildarinnar á ekki að
eiga í erfiðleikum með lið úr
neðri deildunum og alls ekki á
heimavelli. Þór hefur staðið sig
vel síðustu keppnistímabil en er í
einhverri lægð sem stendur.
Haukar verða í baráttunni um
Renault-bikarinn fram í rauðan
dauðann.
Grindavík-Selfoss 126-72
Topplið DHL-deiIdarinnar,
UMFG, átti ekki í vandræðum
með að afgreiða gesti sína frá
Selfossi. Grindvíkingar hafa ver-
ið að leika vel í síðustu leikjum
sínum og stefna ótrauðir áfram á
sigur í bæði deild og bikar. Darril
Wilson, Konstantin Tzartsaris og
Pétur Guðmundsson voru bestu
menn heimamanna en besti
maður Selfyssinga var Birgir
Guðfinnsson.
ÍA-Reynir Saudgerði 135-52
Tölurnar segja allt sem segja þarf
um þennan leik. Reynir, sem fyrir
ekki mörgum árum var í efstu
deild, má muna fífil sinn fegurri.
Það er greinilega eitthvað að hjá
Reynismönnum. Þeir hafa að-
stöðuna en enga afsökun fyrir
arfaslökum árangri undanfarin ár.
KR-UMFN 65 85
KR-ingar eru komnir með nýjan
leikstjórnanda. Hann átti eina
stoðsendingu í bikarleiknum við
Njarðvíkinga á sunnudagskvöld-
ið. Eftir að hafa sýnt góðá takta í
leiknum á móti Grindvíkingum á
dögunum, var lítil hjálp í
Jermaine Smith í bikarleiknum á
móti Njarðvík. Smith tapaði 9
boltum og hitti aðeins úr 8 af 20
skotum sínum í leiknum. Hann
hirti reyndar 7 fráköst en það
dugði ekki til. KR er fallið úr bik-
arkeppninni, nokkuð sem menn
áttu alls ekki von á þegar ljóst
var hvaða mannskap Vesturbæj-
arliðið tefldi fram í haust.
„Við mættum tilbúnir til leiks.
Orlygur Sturluson, 16 ára leik-
stjómandi okkar, fór á kostum
sem og hinn unglingurinn okkar,
Logi Gunnarsson," sagði Friðrik
Ingi Rúnarsson, þjálfari Njarð-
víkinga. „KR brotnaði einfald-
lega við mótstöðuna og átti eng-
in svör við því sem við vorum að
gera.“
Óskar bíður spakur
Óskar Kristjánsson, sem sama og
ekkert hefur fengið að spreyta
sig með KR í haust, hefur verið
orðaður við bæði Grindavík og
Njarðvík á síðustu dögum. Nú
hafa KR-ingar, bæði stjórnar-
menn og leikmenn, beðið Óskar
að bíða spakan og fara hvergi að
svo komnu máli. Öskar sagði það
skýrast í dag eða á morgun hvað
hann gerir. „Eg bfð að sjálfsögðu
eftir því hvað KR-ingar eru að
hugsa. Þeir eru jú mitt lið.“
Leik Isfirðinga og Unmenna-
félags Keflavíkur var frestað
vegna veðurs. — GÞÖ
Fridur
Skapti Hallgrímsson, formaður
SI, svarar Sjónvarpsstríðs-skrif-
um undirritaðs í Degi fimmtu-
daginn 11. des sl. Þegar moðið
hefur verið greint frá matnum í
skrifum Skapta stendur eftir að
hann staðfestir nánast allt sem
fram kom í grein undirritaðs í
Degi daginn áður. Ég vil þó biðja
Skapta afsökunar á því að hafa
látið þess ógetið að ástæða þess
að hann stjómaði ekki fundinum
3. des., (sem undirritaður dag-
setti óvart 30. nóv.) hafi verið sú
að hann var veikur og þvf verið
heima.
Það er misskilningur hjá
Skapta að ég hafi blandað saman
tveim fundum. Ég var eingöngu
að skrifa um það sem gerðist á
fundinum miðvikudaginn 3. des.
þegar ekki fór fram atkvæða-
greiðsla sem beðið var um og
jafnframt að benda á hörkuna
sem komin er í baráttu sjón-
varpsstöðvanna um bestu bitana
sem í boði eru fyrir sjónvarpsá-
horfendur. En það sem eftir
stendur er þetta:
Skapti sagði Stöð 2 hafa sýnt
áhuga á að fá þetta efni í fyrra og
aftur á þessu ári. Af hveiju tók
þá ekki skiptingin milli stöðv-
anna gildi nú?
Sjónvarpsstöðvarnar sátu ekki
við sama borð þegar að úthlutun
sýningarréttarins kom.
Fundurinn 3. desember, sem
var kallaður saman til að af-
greiða málið, var klúður. Með því
að afgreiða það ekki formlega
eins og gera á þegar um slíkar
deilur er að ræða.
Stjórn SÍ tók ekki formlega af-
stöðu til umsóknanna fyrr en
alltof seint ef hún hefur þá ein-
hvem tímann tekið hana.
Guðni Þ. Ölversson.
Aðventutónleikar
í Glerárkirkju
þriðjudaginn 16. des. kl. 20.30.
Fram koma Barnakór Glerárkirkju,
stjómandi Michael Jón Clarke, og Kór Glerárkirkju,
stjórnandi og organisti Hjörtur Steinbergsson.
Aðgangur ókeypis.
FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ
Á AKUREYRI
Laus eru til umsóknar eftirtalin störf á sviði hug-
búnaðar- og tölvumála:
Forstöðumaður: Starfið felur í sér yfirumsjón með tölvukerfi
stofnunarinnar, framþróun þess og stefnumörkun. Starfið fel-
ur einnig í sér umsjón með vali á hugbúnaði, forritun hug-
búnaðarverkefna, umsjón með útboðum og samningum og
ráðgjöf og þjálfun notenda. Gerð er krafa um að umsækjend-
ur hafi lokið námi í tölvunarfræði, verkfræði eða hafi aðra
sambærilega menntun.
Kerfisfræðingur: Starfið felur m.a. í sér eftirlit með staðar-
neti, uppsetmngu vinnustöðva, daglegri afritatöku og þjón-
ustu við notendur. Gerð er krafa um að umsækjendur hafi
þekkingu á netstýrikerfunum Windows NT og Novel-netware
og haldgóða reynslu og þekkingu á notkun almenns hugbún-
aðar.
Starfsemi FSA fer fram í 35 deildum og fjöldi starfsmanna er
liðlega 600. Tölvukerfi sjúkrahússins samanstendur nú af
u.þ.b. 150 einmenningstölvum. í notkun er fjöldi sérhæfðra
hugbúnaðarkerfa og framundan eru mörg áhugaverð verk-
efni.
Nánari upplýsingar veita Garðar Már Birgisson, tölvunar-
fræðingur og Vignir Sveinsson, aðstoðarframkvæmdastjóri og
skulu umsóknir sendast honum fyrir 5. janúar nk.
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri,
sími 463 0100.
Kosningar um sameiningu
6 sveitarfélaga í Borgarfirði
norðan Skarðsheiðar.
Sveitarstjórnir eftirtalinna 6 sveitarfélaga: Hvítársíðuhrepps,
Hálsahrepps, Reykholtsdalshrepps, Lundarreykjadals-
hrepps, Andakílshrepps og Skorradalshrepps, hafa sam-
þykkt tillögu sameiningarnefndar þessara sveitarfélaga um,
að kosið verði um sameiningu þeirra laugardaginn 17. janú-
ar 1998. Vegna þessa mun utankjörfundaratkvæðagreiðsla
hefjast miðvikudaginn 17. desember 1997 og Ijúka laugar-
daginn 17. janúar 1998.
Hægt er að kjósa utan kjörfundar á skrifstofum sýslumanna
og umboðsmanna þeirra um land allt.
Reir sem samþykkja tillöguna skrifa „Já“ á atkvæðaseðilinn
en þeir sem ekki samþykkja tillöguna skrifa „Nei“ á at-
kvæðaseðilinn.
Einnig hafa framantaldar sveitarstjórnir samþykkt, að ef til-
lagan verður felld í einhverju/um sveitarfélaganna, verði
strax tekin um það ákvörðun hvort kjósa skuli aftur um sam-
einingu þeirra sveitarfélaga sem samþykkt hafa sameiningu.
Kosið yrði um nýja tillögu eins fljótt og auðið væri.
F.h. sameiningarnefndar framantalinna hreppa
Svava Sjöfn Kristjánsdóttir
formaður.