Dagur - 19.12.1997, Side 1
H ■ ■ ■■- ■
Zí'St-
SSpgHk> ’ '£ '*&
Ií...
Sfe : .■ ■■;:'■ '' ■■■• ■■:,-':
w ■ v'tó-:. m
• ^pSp*'- -i ■ ;;t
Föstudagur 19. desember 1997
80. og 81. árgangur - 24 7. tölublað
Fjöldi sjúMinga
kcmur vanjnærðnr
Um fimmtimgur
sjuklinga sem lagður
er iun á Landspítal-
ann er vaunærður,
sem getur tafið fyrir
bata og kostað lengri
spítalavist.
Nýjar rannsóknir á vegum Land-
spítalans og Háskóla Islands
leiddu í ljós að fimmti hluti
sjúldinga, uppkominna yngri en
70 ára, sem lagðir eru inn á
Landspítalann eru vannærðir,
sem dregur úr batalíkum, eykur
hættu á aukaverkunum og lengir
legutíma. I sumum tilfellum
þurfa sjúklingar af þessum sök-
um að liggja 1 til 2 eða jafnvel 3
vikum lengur á spítalanum í sér-
hæfðri næringarmeðferð. Málið
snýst því ekki einungis um lé-
legra heilsufar heldur líka heil-
mikla peninga.
Vaiuiæring oft vandamál
við irmlögn
„Þetta hlutfall kom alls ekki
á óvart, því Landspítalinn
tekur við veikasta fólki lands-
ins, sem margt er áður búið
að vera heima hjá sér veikt
og lystarlítið,“ sagði dr. Inga
Þórsdóttir, forstöðumaður
Næringarstofu Landspítal-
ans, sem stjórnaði rannsókn-
inni. Hafi fólk verið veikt í
nokkum tíma þá geti þetta
oft verið nokkurt vandamál
við innlögn, sem brýnt sé að
taka á sem allra fyrst: Reyna
að fá þessa sjúklinga til að
borða betur eða að veita
þeim jafnvel aukanæringu á
annan hátt, t.d. með nær-
ingu í æð, nái þeir ekki að
borða nægilega. Fylgjast
þurfi grannt með því að næring-
arástand þeirra haldi ekki áfram
að versna inni á stofnuninni,
heldur sæki í betra horf.
Þá vannæringu sem fyrst verð-
Sú stadreynd aó sjúklingar koma margir
vannærðir inn á spítala iengir tegutima þeirra
og tefur bata.
ur vart segir Inga rýrnun á hand-
leggjum og fótum og öðrum
vöðvum. Skortur á einstökum
vítamínum og steinefnum sjáist
mun seinna.
Nauðsyn næringar gleymst í
tækniþróuninni
Þetta grundvallaratriði - næring-
arástand sjúklinganna - segir
hún svolítið hafa gleymst í allri
tækniþróuninni sem orðið hefur
á sjúkrahúsum á undanförnum
árum, jafnt á íslandi sem annars
staðar. Sé því full þörf á að huga
betur að þessu atriði í allri með-
ferð innan heilbrigðisstofnana.
„Þetta er orðið alþjóðlega þekkt
vandamál og víða er nú verið að
vinna á svipuðum nótum og við
höfum verið að gera hér á Land-
spítalanum," segir Inga.
„Við höfum þróað eyðublað
sem er einfalt í notkun til að
finna snemma þá sjúklinga sem
meta þarf nánar með tilliti til
næringarástands og þörf á sér-
hæfðri meðferð. Vísindagrein
um þetta efni verður birt á næsta
ári,“ sagði dr. Inga Þórsdóttir.
- HEI
Vélstjórar
óttast lög
Vélstjórafélags
íslands hefur
ákveðið að
fresta áður boð-
uðu verkfalli um
áramót um hálf-
an mánuð, eða
til 16 janúar nk.
hafi ekki samist
fyrir þann tíma.
Utvegsmönnum
og ríkissáttasemj-
ara var tilkynnt
þetta á árangurs-
lausum sáttafundi í gær. Sam-
hliða þessu frestast boðað verk-
bann LIÚ til sama tíma.
Helgi Laxdal, formaður Vél-
stjórafélags Islands, segir að ein
helsta ástæðan fyrir frestuninni
hafi verið ótti við að stjórnvöld
mundu grípa til setningu bráða-
birgðalaga um áramótin þegar
þingið er í jólaleyfi. Það hefðu
menn fengið að reyna í verkfalli
sjómanna á fiskiskipaflotanum í
ársbyrjun árið 1994. — GRH
Helgi Laxdai,
formaður
Véistjóraféiags
Islands.
Flest börn hlakka mikið til jólahátíðarinnar sem framundan er, en suma hlakkar jafnvel enn meira til áramótanna og alls
fjörsins sem þá verður. Víða um land eru menn nú farnir að leggja drög að áramótabrennum og uppi á Brekkunni á
Akureyri voru þeir Ásbjörn Tryggvi Svanbjörnsson [t.v.j og Ágúst Magni Sigurðsson að kanna aðstæður við brennuna
sem þar er verið að hlaða. - mynd: brink
wmmmmsmsmmmm
5 dagar
til jóla
Skyrgáutur
Premium
miðlarar
Sævar Marinó Ciesielski.
Sævar fer til
Strassborgar
Höfnun Hæstaréttar á endur-
upptöku Geirfinns- og Guð-
mundarmála verður áfrýjað til
Mannréttindanefndarinnar í
Strassborg. Sævar Marinó Ciesi-
elski leitaði ásjár ríkisstjórnar-
innar vegna þess kostnaðar sem
óhjákvæmilegur er við áfrýjun til
mannréttindadómstólsins.
Sævar segir að ríkisstjórnin
hafi samþykkt að veita styrk til
að greiða kostnað við þýðingar
og einnig lögfræðikostnað.
Hann segir að kæran til mann-
réttindanefndar muni snúast
um það hvernig Hæstiréttur mat
þau nýju gögn sem fram voru
lögð þegar hann fjallaði um
beiðnina um endurupptöku.
Benjamm
fær verðlaun
Benjamín Dúfa
vann fyrstu
verðlaun á
Cinemagic
International
Festival for
Young People,
sem er stór og
rnikil kvik-
myndahátíð
sem haldin er
árlega í Belfast.
Þar eru sýndar myndir sem ætl-
aðar eru börnum, heimildar-
myndir jafnt sem leiknar myndir
og teiknimyndir.
Fimm kvikmyndir í fullri lengd
voru tilnefndar til sérstakra verð-
launa á hátíðinni. Þrjár þeirra
eru frá enskumælandi löndum,
ein frá Italíu og síðan Benjamín
dúfa frá Islandi. Myndin er eins
og kunnugt er byggð á sam-
nefndri sögu Friðriks Erlings-
sonar og leikstjóri myndarinnar
er Gísli Snær Erlingsson.
Úr Benjamín
Dúfu.
Vnrmnskiptnr
AífaLaval
SINDRI %
-sterkur í verki