Dagur - 19.12.1997, Side 12

Dagur - 19.12.1997, Side 12
12 -FÖSTUDAGUR 19.DESEMBER 1997 rD^tr ÍÞRÓTTIR L A Goldin aftur fyrir áraniót Það hefur heldur betur verið ævin- týrasaga með Vlad- imir Goldin, hand- knattleiksmann KA frá Hvíta-Rúss- landi. Goldin kom fyrst hingað í sum- ar og allt leit út fyrir að hann myndi spila með liðinu og engin vandræði yrðu með það. Síðan voru yfirmenn hersins í Hvíta- Rússlandi ekki á eitt sáttir við að hermaðurinn væri að spila handbolta á Islandi. Goldin fór því aftur heim og KA menn réru á önnur mið. Það gekk illa og áðurnefnd- ir yfirmenn samþykktu að Gold- in mætti koma og spila með KA- mönnum fram á vor. Nú er hins vegar aftur komið babh í bátinn og Goldin farinn aft- ur heim að ræða við vfirmenn sína. En kemur þessi leikmaður/her- maður aftur? „Eg hef ekki heyrt í honum eftir að hann fór en á að tala við hann í kvöld (fimmtu- dag) og þá skýrist þetta vonandi. Ég reikna með hon- um í lok mánað- arins,“ sagði Atli Hilmarsson, þjálf- ari KA. Það verð- ur því gaman að sjá hvort Goldin verði mættur til að skjóta upp flugeldum á gamlárskvöld hér fyrir norðan. Kannski skrapp hann bara heim í jólasteikina! -JJ Deplið ekki auga iþriðju lotu Boxáhugamenn, beggja vegna Atl- antsála, bíða spenntir eftir bardaga Prinsins Naseem Hamed við Kevin KeHey. Þetta verður stór stund fyr- ir þá báða þar sem þeir stíga í fyrsta sinn í hringinn á aðalveUi Madison Square Gard- en. „Deplið ekki auga í 3. lotu. Þið getið misst af emliverju,“ segir Prinsinn. Prinsinn Naseem Hamed, enski Arabinn, fer í sinn fyrsta bardaga í Ameríku í kvöld. Eftir allar yi'ir- lýsingarnar og athyglina sem Hamed hefur fengið híður Kan- inn spenntur eftir því hvernig honum reiðir af. Hann hefur enn ekki hlotið almenna hylli vestan hafs en slái hann í gegn í nótt á hann vísa frægð og frama í Bandaríkjunum auk þess sem bankainnistæður kappans hækka verulega. Islenskir boxá- hugamenn þekkja vel orðið til Naseem Hamed. Hann hef- ur sigrað í öllum sínum 28 bardög- um og þar af 26 sinnum á rothöggi. En það styttist í tapið við hvern sig- ur. Kaninn krefst sigurs af sfnum manni, sem er enginn aukvisi. Hinn þrítugi Kevin Kelley hef- ur 47 kappleiki að baki. Hann hefur unnið 44, gert eitt jafntefli og tapað tveimur bardögum. Þrjá- tíu og tvisvar sinnum hefur hann sent andstæðinga sína í gólfið með rothöggi. Hann er einfald- lega fjaðurvigtarboxari númer 1 í Bandaríkjunum. Það er því morg- unljóst að nú á Naseem í höggi við verðugan andstæðing. Ómar Ragnarsson sagði að ómögulegt væri að segja fyrir um úrslitin í þessum bardaga. „Kelley er ekki mjög þekktur hér þó hann sé númer eitt í sínum flokld í Bandaríkjunum. Viðureignin ætti því að verða mjög skemmtileg. Eg hlalcka alla vega mikið til að sjá þá berjast. Prinsinn verður reynd- ar að vinna sinn fyrsta bardaga í Ameríku ætli hann að slá í gegn. En það kemur að því að hann tapar og þá verður gaman að sjá hvað hann gerir í framhaldinu. Kemur hann til baka eða verður hann bara enn ein fallin stjarna.“ Slær þá út af listanum Prinsinn hefur reyndar áður barist við þá bestu í Ameríku. Boom Boom Johnson reið ekki feitum hesti frá viðureign sinni við Naz ferkar en Medina. Það var ekki nóg með að Prinsinn rot- aði þá báða, hann sló þá einfald- lega út af afrekalistunum. Þessir kappar finnast ekld lengur meðal þeirra 12 efstu á boxlistum tímarit- anna í dag. Það glittir í nöfn þeirra hjá þeirra eigin samböndum en annarsstaðar ekki. Þessir drengir voru ein- faldlega fallbyssu- fóður fyrir arabann. Listin að berja er list hans. I dag er Kevin Kelley númer 4 á lista Boxing 98. Hvar hann verður á morgun kemur í Ijós í nótt. Vinni hann Naseem Hamed verð- ur hann stjarna á einni nóttu. Tapi hann viðureigninni verður hann öllum gleymdur fyrir há- degi á mánudaginn. Prinsinn birtist fslendingum á Sýn í kvöld. Tmdastóll hafði betur í einvígi norðanliðanna í gærkvöld og heldur stöðu sinni í toppbaráttunni en Akureyrarliðið er nær botninum. mynd: brink Grtndvíkuigar jóla- meistarar 1997 Botnslagur 11. iim ferdar var í Grindavík í gærkvöld. Jón Sig. leiðir KR tH sigurs í Borgamesi. ÍA sigrar KeflvHdnga. Þórsarar tapa á heimaveUi. í frábærum leik toppliðanna í Grindavík skoruðu gestirnir 4 fyrstu stigin. Eftir það hrökk Grindavík í gang og Grikkinn, Kostas, fór á kostum og kæfði flest skot Haukanna undir körf- unni, hirti aragrúa varnar- frákasta, auk þess að skora 13 stig í fyrri hálfleik. Staðan í leik- hléi var 45:34 fyrir heimamenn í Grindavík. Grikkinn hélt áfram að hrekkja gesti sína í seinni hálfleik. Hauk- arnir náðu aldrei takti við þenn- an leik, þeir létu skapið hlaupa með sig í gönur eins og oft áður og lentu í villuvandræðum. Lokamínúturnar voru þó Grindvíkingum erfiðar, Hauk- arnir léku stífa vörn og skynsam- an sóknarleik. En Grindvíkingar héldu haus. Darryl Wilson og Konstantin Tsartaris kláruðu leikinn og gerðu Grindvíkinga að jólameisturum. Þórsarar töpuðu fyrir Tinda- stóli í leik á AkureyTÍ. Fyrri part- ur fyrri hálfleiks var mjög jafn og spennandi, en heldur dró sundur með liðunum þegar leið á hálf- leikinn. Pressuvörn Tindastóls- manna virkaði vel á unga bak- verði Þórs og með Torrey John í fararbroddi náðu gestirnir níu stiga forystu fyrir hlé. Staðan f hálfleik var 50:41. Þórsarar byrjuðu af krafti í síð- ari hálfleik og minnkuðu mun- inn fljótt í fjögur stig. Þá tóku Tindastólsmenn betur við sér og unnu á endanum frekar öruggan sigur. Lokatölur urðu 85:73. Hjá Tindastóli voru Spánverjinn Nar- anjo og Torrey John bestir í jöfnu liði Sauðkrækinga. Þórsarar virk- uðu andlausir í leiknum og náðu sér aldrei strik. Góð stemmning var í húsinu, en fjögur hundruð manns sóttu leikinn, þó hann hefði mátt vera betri. Onnur úrslit kvöldsins: ÍA- Keflavík 96:86, Skallagrímur-KR 82:98, UMSN-ÍR 102:69 og Val- ur-KFÍ 85:80. Staðan er nú þessi: Grindavík 11 10 1 1019:869 20 Haukar 118 3 942:824 16 TindastóII 11 8 3 862:794 16 KFÍ 1 1 7 4 965:897 14 Keflavík 11 6 5 1048:981 12 Njarðvík 11 6 5 954:890 12 ÍA 11 6 5 871:872 12 KR 11 5 6 898:937 10 Skallagr. 11 4 7 910:1033 8 Valur 11 3 8 849:930 6 Þór 11 2 9 870:1021 4 ÍR 111 10 896:1036 2 Ami Gautur skrifaði und- ir samniug við Rosenborg Markvörðurinn Árni Gautur Ara- son, sem lék með Stjörnunni sl. sumar, hefur skrifað undir þriggja ára samning við norska stórliðið Rosenborg frá Þránd- heimi, sem án efa hefur verið eitt alsterkasta félagslið Norðurlanda á undanförnum árum. Trond Sollied, sem tekur við þjálfarastöðu Rosenborgarliðsins af Niels Arne Eggen, sagði í norskum blöðum í fyrradag að Árni Gautur mundi koma til með að keppa um stöðu í aðalliðinu við Jörn Jamtfell, sem er 32 ára gamall. Þjálfarinn sagði það nauðsynlegt að vera með tvo góða markverði í liði sínu og það væri ástæðan fyrir kaupunum á Islendingnum. Jamtfell, sem staðið hefur í marki Rosenborg á síðustu leik- tíð, hefur þótt nokkuð mistækur, en hann tók við stöðu Ola By Rise í aðalliðinu, þegar sá síðar- nefndi lagði skóna á hilluna fyrir síðasta tímabil. Ljóst er að einhverjar breyting- ar verða á norska liðinu, Harald Brattbak hefur verið seldur til Celtic, Roar Strand miðjumaður fer Iíklega til Olympiakos í Grikklandi og miðvörðurin sterki, Erik Hoftun, gæti verið á förum til Leeds. Árni Gautur er annar leikmaður sem Rosenborg fær til sín fyrir tímabilið, Jan Sörensen kom til félagsins frá Bodö/Glimt. Lúðvik lika? Lúðvík Jónasson hefur æft með Rosenborgarliðinu í tæpa fjóra mánuði, eða þangað til norska liðið fór í vetrarfrí í síðustu viku. Norska liðið hefur ekki verið á flæðiskeri statt með miðverði, þar sem fjórir sterkir miðverðir eru á mála hjá Iiðinu. Það hefur því ekki verið pláss fyrir Lúðvík eins og er, en það kann að breyt- ast, ef fleiri leikmenn verða seld- ir frá félaginu.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.